Rétt náði!!!
Hjúkket (svo ég noti smá unglingaslangur), hélt ég myndi klikka í fyrsta sinn á þessu ári. Blogger.com er búinn að vera í ruglinu í allan dag (ég líka að vísu). Sit hérna sveittur að klára verkefni sem á að vera tilbúið klukkan 10 í fyrramálið. Nótt dauðans framundan, gaman, gaman!!!
Hendi kannski inn einhverju í nótt, þ.e. þegar ég er orðinn syfjaður og vitlaus og veit ekki lengur hvort ég er að koma eða fara eða hvað ég heiti og hvar ég bý... ;)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home