Vika 2
Önnur vika ársins formlega hafin (sunnudagur er víst fyrst dagur vikunnar) og heilsar okkur hérna í Köben með þessu líka blíðskaparveðrinu! Að vísu er ansi kalt en sól og logn, er hægt að biðja um það mikið betra í byrjun janúar?!?
Var að koma af fyrstu fótboltaæfingu ársins. Nokkuð greinilegt að menn hafa verið ansi duglegir í jólamatnum og formið (og þyngdin) eftir því. Þó örlaði á snilldar tilþrifum einstaka sinnum (sorglega sjaldan samt) og greinilegt að menn eru vel stemmdir fyrir átök sumarsins. Það verður svo annað mál hvort menn ná að koma sér í form fyrir þann tíma... ;)
Bakaði pizzur í gær fyrir mig og lærdómsgrísinn (það er semsagt Þórunn), alveg fine eldamennska þar á ferð (að vanda). Já, ég veit, þetta er farið að snúast ansi mikið um mat og hvað ég er duglegur að elda. En málið er bara að ég er alveg þrusugóður í eldhúsinu (þó ég segi sjálfur frá). Maður verður nú að góður í einhverju, ekki satt? Kannski ég bæti við uppskriftarhorni hérna og verði með vikulegar uppskriftir (en samt ekki)... ;)

2 Comments:
Hvað er verið að monta sig á veðrinu! þú ættir að vera hérna heima á fróni...rigning og rok! Þú færð það ekki betra...
Ef thér leidist tharna sudur frá á sídkvøldum er thér velkomid ad koma á Østervold og sulla upp good-sjitt spisning ef thu vilt! ;)
Skrifa ummæli
<< Home