Loksins alvöru vetur!
Í gær fór að snjóa hérna í Kaupmannahöfn sem gerist nú endrum og eins. En í þetta sinn er það aðeins öðruvísi, því snjórinn er hérna enn í dag! Yfirleitt er þetta farið nokkrum tímum eftir að byrjar að snjóa, en kuldinn gerir það víst að verkum að þetta mun halda sér, allavega um sinn. Magnað, alveg hreint!
Við hjónin getum loksins tekið gleði okkar á ný því búið er að tengja sjónvarpið okkar aftur! Og ekki nóg með það heldur fáum við miklu fleiri stöðvar en við erum að borga fyrir. Fengum greinilega bónuspakkann. Segið svo að Danir séu ekki liðlegir við mann ;)
Já, ég gleymdi víst að nefna það að Þórunni hefði gengið ágætlega í prófinu, allavega fékk ég ekki að heyra neitt 'Ég er fallin' í þetta skipti. Ætla að skilja það sem svo að þetta hafi gengið betur en vonir (hennar) stóðu til.
Annars stefnir bara í rólega helgi, matarboð og þægilegheit (þá þurfum við ekkert að elda). Þórunn er meira að segja búin að þrífa alla íbúðina hátt og lágt þannig að ekki verð ég plagaður með óskum um það heldur. Er ekki lífið hreint dásamlegt? :D

2 Comments:
Já, snjórinn hefur nú aldeilis raskað lífi manna hér í dag! Þurfti að fara upp í skóla áðan, og hvernig gerir maður það öðruvísi en að HJÓLA!! Eftir að ég hafði skakkhjólast upp í skóla, var ég þar í ca. hálftíma. Þegar ég ætlaði heim var hjólið orðið gaddfreðið og einn teinninn barasta losnaður. Þar kom gaffa-tape að góðu gagni, en hjólaferðin heim var aldeilis ekki eins farsæl. Var "polluð" af bílum oftar en einusinni..say no more..Ætla að halda mig innandyra í dag.
Langt komment..úps...
heyriði..veriði ekkert að segja! þið ættuð að vera hér á landinu sem ku vera kennt við ís! hér er allt á kafi í snjó! ég er held ég búin að stíga svona 10 sinnum í skafl sem að ég hélt að væri frosinn en það reyndist sko ekki vera, en það var með þeim afleiðingum að snjórinn náði manni upp að læraum! allamalla, help me god!
Skrifa ummæli
<< Home