Prófdagurinn mikli!
Jæja! Þá er Þórunn farin af stað í prófið mikla og ég er í fyrsta skipti í langan tíma bara einn heima að vinna. Ágætis tilbreyting, get ekki sagt annað. Hún var orðin töluvert spennt og stressuð, eðlilega, búin að sitja yfir bókunum í næstum hálft ár núna og svo eitt sex tíma próf sem ákveður hvort hún hafi lesið það nógu vel. Svona er þetta víst...
Einhver (lesist bróðir minn) var að spyrja um hin ýmsu gælunöfn sem ég hef haft um ævina. Kannski er bara ágætt að ég setji saman smá lista.
- Laddi: Þetta þekkja allir og þarf varla að tala um það frekar
- Tóti: Var víst kallaður þetta bæði í grunnskóla og í Versló (bekkjarfélagar mínir þar neituðu alfarið að kalla mig Ladda (að vísu er Gulli eitthvað farinn að draga í land með það núna)) og það eru enn til þeir aðilar sem kalla mig aldrei neitt annað (Jonni og Óli Þór t.d.)...
- Tósi: Grímur Jónsson var í góðu flippi einhvern daginn og ákvað að ég þyrfti nýtt gælunafn, þetta var afraksturinn. Þórunn fékk meira að segja nýtt líka. Hann og Svana kalla okkur núna Tósa og Tósu...
- Þóttli: Já, einhvern tímann var þetta það 'heitasta' í bransanum, var kallaður þessu í grunnskóla af sumum (þó alls ekki öllum). Var aldrei neitt hrifinn af þessu en það er þó skárra en...
- Þórstli: Veit ekki hvernig þetta kom til og var aldrei sáttur við það. Heppilega dó það jafn hratt út og Spice Girls...
- Lubbi: Mamma kallaði mig alltaf Lubba í fleiri fleiri ár þegar ég var yngri, hef klippt mig síðan þá...
- Bubbi: Enginn nema bara Dói sem hefur kallað mig Bubba, Bubbi bróðir alltaf hress!
- Prumpi: Nei, heyrðu, var aldrei kallaður Prumpi! Allavega aldrei opinberlega...
- Litli ljóti: Heppilega er nú bara ein manneskja sem kallar mig þessu miður fallega nafni, það er hún 'stjúpamma' mín. Heppilega kallar hún Dóa bróðir þetta líka ;)
- Stubbur: Fyndið með svona nöfn, sérstaklega þegar maður fær þau í andlitið frá aðilum sem eru nánast dvergar að vexti. You know who you are! (ef það er eitthvað að fara á milli mála þá er ég að tala um Guðrúnu Lilju frænku mína)
That's it! Ef einhver man eftir fleiri gælu-/ónöfnum þá endilega láta mig vita...

2 Comments:
Dúddi!
Þú gleymir því... nú verður amma Tóta sko móðguð!
shame on you...
Cool blog, interesting information... Keep it UP »
Skrifa ummæli
<< Home