laugardagur, janúar 14, 2006

...et tu Laddus?

Laugardagur. Til lukku? Á víst eftir að koma í ljós, sit allavega enn sveittur við að klára þetta blessaða verkefni sem átti að klárast í gær. Svona er þetta stundum. Eins og einhver (sem tók víst skýrt fram að væri ekki Jonni) sagði í 'athugasemdunum' í gær, kannski hefði verið betra að byrja fyrr. Sennilega rétt, ég greinilega strengdi rangt áramótaheit þetta árið... ;)

Datt í hug að það væri kominn tími til að útskýra í eitt skipti fyrir öll hvernig nafnið Þórhallur getur orðið að gælunafninu Laddi. Og vil líka leiðrétta þann leiðinlega misskilning að Þórhallur Sigurðsson (fyrrverandi grínari (er ekki fyndinn lengur)) var alls ekki sá fyrsti af okkur Þórhöllunum til að vera kallaður Laddi að gælu. Mér var nefnilega tjáð af áreiðanlegum heimildum að afi minn (og nafni) hafi líka verið kallaður Laddi. Og hér kemur svo hin 'langþráða' útskýring á því hvernig þetta getur passað...

Það er ekki óalgengt að þeir sem heita Þórhallur séu kallaðir Halli (borið fram með dl-i en ekki tveimur ll-um (a la Hallgrímur -> Halli)). Eðlileg afleiða af því væri Lalli (aftur með dl-i í framburði en ekki eins og gælunafnið fyrir Lárus). Nú þar sem við erum núna komin með Lalli (sem er samt eiginlega Ladli) þá er bara næsta skref að breyta seinna l-inu í d líka í framburðinum og hvað fáum við þá?!? Hva, gæti það verið, tjah, Laddi...?? ;)

2 Comments:

At 12:35 e.h., Blogger Skaffen-Amtiskaw said...

En hvar er þá skýringin á öllum hinum "gælunöfnunum"? T.d. Tóti, Ljóti, Lubbi, Lilli, Stubbur, Prumpi, Bubbi og svo framvegis ;)

 
At 12:45 e.h., Blogger Grímur Jónsson said...

Það væri kannski verðugt verkefni fyrir morgundaginn að lista upp öll þessi 'glæsilegu' gælunöfn og skýra frá uppruna þeirra ;)

 

Skrifa ummæli

<< Home