Klakinn...
...er ekki réttnefni á litla landið í Atlantshafi þessa stundina. Hér er alls enginn klaki heldur bara skítarigning og leiðinda rok. Eiginlega er eins og við höfum ekki farið neitt því þetta er sama veður (meira rok hér þó) og hefur verið í Kaupmannahöfn í allt haust. En maður ætti svosem að vera orðinn vanur svona veðráttu eftir öll þessi ár sem maður hefur búið á Íslandi...
Gærdagurinn fór eiginlega allur í ferðina hingað, fór heim um hádegið úr vinnunni og við Þórunn gengum frá því sem þurfti að ganga frá, kláruðum og/eða hentum matarafgöngum, tókum allt úr sambandi og læstum öllum gluggum. Hentum svo í tösku og tókum leigubíl út á Kastrup. Vorum svo sniðug að tékka okkur inn með sjálfsala í staðinn fyrir að standa í röð. Sérdeilis þægilegt að geta bara klárað þetta af sjálfur. Héldum að þetta yrði aldeilis þægilegt þegar hér var komið sögu þegar í ljós kom að það var tveggja tíma seinkun á vélinni sem varð svo í heildina enn lengri því það tók svo langan tíma að hlaða vélina með öllu draslinu sem þurfti að flytja með henni. Við vorum því ekki að lenda á Íslandi fyrr en rétt fyrir eitt eftir langt flug (sökum mótvinds) þar sem við sátum í þokkabót í næst öftustu röð þannig að við fengum allan hristinginn beint í æð...
Vaknaði svo í morgun klukkan átta til að henda mér í vinnuna með tengdó. Þar voru allir voðalega kátir að sjá kallinn eins og gefur að skilja. Það var að vísu ekki mikið unnið en hver getur svosem unnið svona rétt fyrir jólin hvort eð er? ;)
