laugardagur, júní 10, 2006

Úr sambandi við umheiminn...

Gærdagurinn fer í sögubækurnar fyrir að vera dagurinn þar sem einhverjum snillingi tókst að gera nánast alla Kaupmannahöfn netsambandslausa nánast allan daginn. Forsaga málsins er sú að maður á gröfu er að grafa (eðlilega) og verður það á að klippa í sundur einhverja kapla sem liggja í jörðu. Þessir kaplar voru nú ekki minna merkilegir en svo að þetta var tenging Kaupmannahafnar (eða svona næstum því allrar) við umheiminn! Og fyrir vikið þá misstum við út nettenginguna í vinnunni í gær rétt fyrir hádegið og vorum enn án netsambands þegar við loks gáfumst upp um þrjúleytið og fórum bara heim til Jonna...

Eiginlega merkilegt hvað maður heyrir oft um svona atvik, þegar einhverjir gröfumenn eru að grafa í sundur rafmagnsvíra, netsnúrur, gasleiðslur eða vatnsæðar. Er ekki einhver möguleiki að athuga hvað er undir yfirborðinu áður en menn rjúka af stað að grafa eins og moldvörpur?!?

Annars var ekki sem verst að vera bara heima hjá Jonna, sérstaklega þar sem við vorum búnir að ákveða að horfa þar á fyrsta daginn á HM í góðu yfirlæti. Gláptum á báða leikina, að vísu með tölvuna í fanginu þannig að það var svona með einu og hálfu auga. En keppnin fór allavega þrusuvel af stað miðað við leikina sem voru í boði í gær. Meðalfjöldi marka í leik eru semsagt fjögur mörk eftir gærdaginn og vonandi heldur það áfram í dag á svipuðum nótum...

Á eftir er leikur hjá FC Ísland við topplið deildarinnar, Boldklubben Cito, og má búast við hörkuleik að venju. Eftir leikinn verður svo haldið á Solbakken í grillveislu og HM áhorf. Í þessum skrifuðu orðum er svo að auki glampandi sól og hitinn strax kominn upp í 18 gráður á Celsíus kvarða. Mín spá fyrir daginn í dag: Sumarfílingur a-plenty!

fimmtudagur, júní 08, 2006

Niðurtalning og talnaleikur...

Að sjálfsögðu virkaði ekki blogger.com í gær þegar ég ætlaði að henda inn færslu þannig að ég þarf bara að reyna að bæta það upp í dag. Magnað með alla þessa tækni, hvað maður verður 'fatlaður' þegar hún svo virkar ekki... ;)

Í dag eru átta dagar þangað til við förum til Íslands! Það þýðir þá líka að það eru níu dagar í 17. júní (þeir sem eru duglegir að reikna geta þá fundið út nákvæma dagsetningu á heimkomu okkar hjónanna). Og það þýðir þá auðvitað líka að Þórunn sé að fara í próf eftir nákvæmlega sex daga. Annars tekur hún því bara með ótrúlegri ró að þessu sinni, hún er kannski eitthvað að sjóast í þessu öllu saman (vonandi)...

Það eru 81 dagur þangað til við hjónin förum út aftur (þ.e. eftir að við erum á annað borð komin til Íslands) sem þýðir þá jafnframt að við munum dvelja á Íslandi í 73 daga. Það eru jafnframt 44 dagar þangað til ég fer í langþráð sumarfrí og 88 dagar þangað til því lýkur svo aftur, sem gerir samtals 44 daga (helgar og frídagar meðtaldir) í langt og gott frí...

Og fyrst við erum að tala um tölur þá er kannski vert að geta þess að í dag eru nákvæmlega 200 dagar til jóla! Þannig að ef þið eruð ekki farin að hugsa um hvað á að gefa fólki í jólagjöf þá er kannski ekki seinna vænna. Það eru líka bara 135 dagar þangað til veturinn kemur aftur (skv. dagatali allavega) og eftir nákvæmlega 208 daga verður svo komið árið 2007...

En það sem er samt mikilvægast af þessu öllu saman er að á morgun (eftir daginn í dag = einn dag), þá byrjar HM í fótbolta... :D

mánudagur, júní 05, 2006

Sunna hin hvíta

Vegna óbilandi leti þá hefur þetta (næstum því) daglega raus mitt fengið að sitja á hakanum undanfarna daga. Og eins og áður hefur komið fram þá bið ég bara engan afsökunar á því! Ef fólk hefur ekki þolinmæði í að bíða í nokkra daga þá getur það bara átt sig og hananú! :D

En það er samt ekki svo að þessi tími sem liðinn er hafi verið stútfullur af engu, síður en svo. Við erum að tala um afmæliskvöldverð, bíóferð, kappleik í knattspyrnu ásamt nokkrum fleirum minna merkilegur viðburðum sem samt hafa náð að fylla þessa löngu helgi. En við byrjum á afmæliskvöldverðinum...

Við höfðum heyrt því fleygt að rétt við Strikið væri lítill og skemmtilegur indverskur veitingastaður (Bombay) sem byði upp á góðan mat og væri í þokkabót ódýr. Þar sem við trúum nú yfirleitt því sem okkur er sagt þá ákváðum við að skella okkur þangað á afmælinu hennar Þórunnar og ég hringdi fyrr um daginn og pantaði borð fyrir þrjá (Sigríður fékk að koma með). Þegar við komum svo á staðinn upp úr hálf átta þá er þetta ekki alveg eins og við höfðum búist við, þjónarnir sátu makindalega á nokkrum stólum og virtust hafa lítinn áhuga á komu okkur og tjáðu okkur með lítilli áherslu að við mættum setjast hvar sem væri. Við tókum svo fljótlega eftir þrennu. Í fyrsta lagi var engin tónlist í gangi sem þó getur verið kostur en var hinsvegar frekar leiðinlegt í ljósi þess að í öðru lagi var vifta beint fyrir ofan sætin okkar sem var á sama desíbelstyrk og meðal þotuhreyfill. Og í þriðja lagi sat einhver gæra á næsta borði og glápti á Þórunni stanslaust frá því við komum inn og settumst. Þegar Sigríður svo kom þá tókum við þá pólitísku ákvörðun að yfirgefa staðinn bara í hvelli og leita á önnur mið því þjónarnir höfðu ekki einu sinni nennt að taka við pöntun eða boðið okkur drykki á þessum tíu mínútum sem við þó vorum inni á staðnum. Ég gef því staðnum -2 stjörnur og heiti því að fara þangað aldrei aftur...

Á föstudagskvöldið skelltum við Jonni og Björgvin okkur í bíó á X-Men III, fínasti hasar og ágætis afþreying. Á laugardag var svo leikur í fótboltanum við meistara síðasta árs, B1901 København. Það er skemmst frá að segja að gott lið B1901 fór með sigur af hólmi 3-1 í leik þar sem FC Ísland náði aldrei að setja mark sitt almennilega á leikinn. Í stöðunni 2-1 gat allt gerst en B1901 slökkti allar vonir með því að skora þetta mikilvæga fjórða mark leiksins. Við verðum því bara að girða okkur í brók og klára það sem eftir er af leikjum tímabilsins með sigri.

Í gær var ekki gert neitt, góður dagur það...

Í dag koma svo pabbi og mamma í heimsókn og fara aftur annað kvöld. Ég geri því fastlega ráð fyrir ferð í Tívolí í kvöld og á morgun bæjarrápi með mömmu. Fínt að fá svona fjögurra daga helgi af og til... ;)