laugardagur, mars 04, 2006

Eins og ég sagði frá í gær þá hefur snjóað nokkuð grimmt hérna undanfarið og það var ekkert lát á því í gær heldur. Þegar verst var þá sást varla á milli húsa, ofankoman var svo mikil. En í gærkvöldi létti til og nú er bara þetta fína skíðaveður (verst að maður kemst ekki á skíði hérna). En það er samt sem áður allt á kafi í snjó og 'snjómokstursmennirnir' eiga í mesta basli með að hreinsa til allar götur og gangstéttar.

Klukkan fjögur í gær var búið að ráðgera að hafa æfingu í fótboltanum en rétt fyrir klukkan þrjú sendi Jón Auðunn þjálfari út tilkynningu um að æfingunni væri aflýst vegna veðurs. Það var einmitt þá sem ofankoman var sem mest. Eiginlega synd, var farinn að hlakka gríðarlega til að komast í smá snjótbolta með strákunum. Allavega auðveld að henda sér í skriðtæklingar í snjónum! Við hjónin hentum okkur þá bara í staðinn í ræktina þar sem við lyftum og púluðum eins og við fengjum borgað fyrir (fór líka í morgun en það er önnur saga (sem verður ekki tíunduð frekar))... ;)

Vegna þessa mikla fannfergis þá upplifði ég í gær í fyrsta skipti hvernig það er að hjóla í snjó og fljúgandi hálku. Heppilega er maður á vel útbúnu fjallahjóli þannig að þetta var svosem hið besta mál en hinsvegar var bremsuvegalengdin í allra lengsta lagi. Sem betur fer var engin umferð þegar við fórum af stað. Ragnhildur og Bruno höfðu boðið okkur í kvöldmat og þar sem við nenntum ekki að labba þá ákváðum við bara að hjóla. Þegar maður hugsar út í það var þetta samt frekar undarleg ákvörðun. Ef maður nennir ekki að labba, af hverju ætti maður þá að nenna að hjóla?!?

föstudagur, mars 03, 2006

Vetrarríkið Danmörk

Það mun vera hverjum manni ljóst að sumarið er ekki að koma hérna í Danmörku. Í morgun þegar við vöknuðum (klukkan sjö, svona til að koma því að) þá var allt á kafi í snjó og í morgun hefur líka snjóað nokkuð grimmt. Hélt að ég hefði flutt hingað í 'sólarlöndin' til að fá heitt sumar og mildan vetur, ekki vetur með meiri snjó og frosti heldur en á Íslandi, sveiattan!

Annars var dagurinn í gær fínn fyrir margra hluta sakir. Eitt það allra fyrsta sem ég las í blöðunum í morgun var sú stórfrétt að MR hefði tapað fyrir MA í Gettu betur í gær. Veit ekki hvað það er, þetta er sennilega sama prinsipp og með KR, annað hvort heldurðu með þeim eða elskar að hata liðið. Það hlakkar allavega alltaf jafn mikið í mér þegar MR tapar í Gettu Betur (eða Morfís eða bara hverju sem er)... :D

Danir eru víst í rusli þessa dagana yfir verkfalli ruslatínslumanna. Veit ekki hvers þeir eru að krefjast svosem og hef eiginlega engan áhuga á því heldur. Snertir mig ekki og hefur ekki haft nein áhrif á mig. Kannski ég fari að kvarta um leið og ég fer út með ruslið á eftir, kemur í ljós...

Og fyrir þá sem hafa áhuga á kvikmyndum en nenna ekki að eyða tíma í að horfa á þær (einn og hálfur plús tími getur verið dálítið mikið ef maður vill horfa á margar myndir) þá vil ég benda á Angry Alien Productions sem sérhæfa sig í 30 sekúndna útgáfum af vinsælum myndum. Sérdeilis skemmtilegt! :D

fimmtudagur, mars 02, 2006

Það er farið að verða verra, ferðaveðrið hérna syðra...

Heppilega keyptum við þessar stofugardínur á dögunum því annars væri varla líft hérna inni í stofunni. Það er þvílíka glampandi sólin að það mætti halda (þ.e. þegar maður situr hérna inni og horfir út og upp (alls ekki niður)) að það væri komið þetta fína sumarveður. Þetta er merkilegt í ljósi þess að þegar ég vaknaði í morgun var snjókoma sem breyttist svo í haglél og læti. En nei, nei, núna bara komin þessi rjómablíða!

Talandi um rjóma. Fórum í afmæliskaffi til meistara Runa í gær og þáðum með þökkum veitingar sem spúsa hans Heiðrún hafði kokkað upp fyrir okkur gestina (geri bara ráð fyrir að Runi hafi lítið hjálpað til). Og þar var einmitt boðið upp á bollur með súkkulaði, sultu og rjóma þannig að þessi eina skitna bolla sem ég fékk á sjálfan bolludaginn var víst ekki eina rjómabolla ársins hjá mér. Hafði að vísu vit á því að telja þær ekki ofan í mig en þær voru allavega fleiri en ein og fleiri en tvær! Það er víst ekki að spyrja að því, það fer enginn svangur úr boði hjá Runa og Heiðrúnu... D

Heppilega er svo æfing hjá mér í handboltanum í kvöld og svo fótbolti á morgun þannig að e.t.v. næ ég eitthvað að hlaupa þetta af mér. Ef ekki, þá verður bara að hafa það... ;)

miðvikudagur, mars 01, 2006

Öskudagur!!!

Öskudagur er runninn upp, eina ferðina enn. Sól skín í heiði og allir glaðir og sáttir (eða svona næstum því allir). Að vísu hef ég ekki enn slegið neina ketti úr neinum tunnum en kannski maður taki sig til og slái tvær flugur í einu höggi (þarf þá bara að finna flugur). Gæti líka slegið krakka sem ég hitti í dag en það er sennilega illa liðið... ;)

Þeir sem hafa áhuga á að klæða sig í grímubúning þá bendi ég á www.stevesoutfit.com. Gæti það verið eitthvað betra, líta út eins og meistari Steve Jobs! Ætli nokkrum detti í hug að setja upp samskonar verslun fyrir Bill Gates, kannski www.geekoutfit.com?!?

Annars á hann Runólfur Þór Ástþórsson stórmeistari (ekki í skák þó) 28 ára afmæli í dag og er hann vel að því kominn (enda búinn að lifa hvern einasta dag þessi 28 ár sem hann hefur lifað). Hann hringdi einmitt í mig fyrr í vikunni og bauð okkur hjónunum í afmæliskaffi í kvöld og fyrir það hlýtur hann að sjálfsögðu heimsókn okkar að launum og jafnvel að maður hendi í hann eins og einum afmælispakka, hann á það svo sannarlega skilið, blessaður... :D

þriðjudagur, febrúar 28, 2006

Saltkjötslaus Sprengidagur... :(

Ekkert saltkjöt, engar baunir, enginn túkall! Gæti varla verið ömurlegra! Fengum okkur í staðinn soðna ýsu með kartöflum og þó að hún sé vissulega góð þá kemur hún engan veginn í staðinn fyrir saltkjötið góða. Hefðum auðvitað átt að sæta lagi og láta tengdó taka með sér saltkjöt þegar hún kom hérna út um daginn. En maður tryggir víst ekki eftirá (Almennar tryggingar)...

Áðan var fyrsta útiæfing ársins hjá fótboltanum og heppilega var hún bara hérna í bakgarðinum hjá mér (nánast). Að vísu er búið að snjóa í allan dag þannig að völlurinn var þakinn í snjó. En að hætti sannra Íslendinga þá létum við það engan veginn á okkur fá og skemmtum okkur stórvel í boltanum. Gott ef við náðum ekki að spæna upp allan snjóinn af vellinum með þessu brölti okkar! :D

Næsta æfing verður svo á föstudag og er stefnan sett á að hafa æfingar úti allavega tvisvar í viku. Vonum bara að Jonni hafi það af að kaupa sér skó fyrir föstudag, ætti allavega að hafa góðan tíma til þess... ;)

mánudagur, febrúar 27, 2006

Af hverju eru ekki allir mánudagar bolludagar?!?

Mmmmmmmm bollur! Bollur, bollur, bollur, bollur, bollur!!! Nenntum að vísu ekki að baka okkar eigin en fórum út í bakarí og keyptum okkur sitt hvora bolluna áðan og hámuðum í okkur með bestu lyst. Að vísu vantaði súkkulaðið á þær en við björguðum því bara, áttum súkkulaði íssósu sem við sulluðum bara yfir, var alveg fine! Verst að Danir vita ekki einu sinni hvað saltkjöt er... :(

Annars er þetta skrýtið hjá Dönunum, þeir halda fastelavn yfir helgina fyrir föstuna (fastan byrjar á miðvikudaginn fyrir ykkur trúleysingjana) og í gær var einmitt hringt á bjölluna hjá okkur (og bankað líka) og fyrir utan var grímuklæddur strákur að sníkja nammi. Tókum þann pólinn í hæðina (eða pólinn í hólinn eins og einn nettur sagði um árið (nefni engin nöfn, en fyrsti stafurinn í nafnin hans er Runólfur Þór Ástþórsson)) að opna bara ekki neitt því við áttum barasta ekkert nammi til að gefa vesalings barninu. Algjörir púkar! :D

Tengdó og mágkonan kvöddu okkur svo um hádegið og héldu heim í 'blíðuna' á Skerinu. Alltaf gaman að fá fólk í heimsókn, hefði nú samt kosið að þær hefðu verið duglegri að elda og vaska upp en það verður víst ekki á allt kosið í þessu... ;)