sunnudagur, desember 24, 2006

Jólakveðja!

Langar að senda öllum sem ég þekki (og hafa ekki nú þegar fengið jólakort frá okkur hjónunum) óskir um gleðileg jól. Gangið hægt um gleðinnar dyr í kvöld og munið að eftir einn ei aki neinn. Megi þið drukkna í jólapappírsflóði og vonandi verða allir ykkar pakkar harðir (því hver vill svosem fá mjúka pakka). Passið ykkur á því að jólasteikin standi ekki í ykkur og munið að tyggja hvern bita vel og vandlega. Óþarfi að láta hátíðarmatinn enda á bráðamóttökunni því að offorsið við átið er of mikið... ;)

Gleðileg jól!