laugardagur, október 14, 2006

Handbolti, fótbolti og afmælisbolti (já, eða boð)

Róleg vika að baki þar sem lítið markvert gerðist. Í fréttum er þó þetta helst...

Á fimmtudag fór ég og keppti í handbolta með IF Guðrúnu. Kannski væri réttara að segja að ég hafi farið að horfa á handbolta því að ég kom ekkert við sögu í leiknum fyrr en það voru um þrjár og hálf mínúta eftir og leikurinn svo að segja búinn. En ég skemmti mér samt konunglega á bekknum því leikurinn var þrælskemmtilegur. Peyjarnir sem við kepptum við byrjuðu betur og komust mest fjórum mörkum yfir en í hálfleik leiddu þeir 14-12. Í seinni hálfleik tók svo IF Guðrún völdin og fór þar markvörðurinn fyrir liðinu með því að verja eins og berserkur og tók í heildina 12 góða bolta í seinni hálfleik. Mest náðum við sex marka forskoti og unnum svo leikinn verðskuldað 29-27. Alltaf gaman af handboltanum (samt skemmtilegra þegar ég fæ að spila aðeins meira)... ;)

Í gær var svo hætt snemma í vinnunni (að hætti Skandínava á föstudögum) og hentum við hjónin okkur í allsherjarþrif á íbúðinni. Þá erum við að tala um eftirfarandi:
  • Ryksuga allt hátt og lágt
  • Þrífa klósettið og spúla
  • Þurrka af öllu, stóru sem smáu
  • Þvo allan óhreinan þvott
  • Vaska upp allt leirtau
  • Skúra eldhúsgólfið
  • Skipta um rúmföt
Eftir allan þennan þrifnað var ekkert annað eftir í stöðunni en að hjóla út á Massimo og ná sér í flatböku sem við gæddum okkur svo á meðan við gláptum á uppáhaldsþátt allra samkynhneigðra Dana (já og kvenna), Vild med dans...

Í hádeginu í dag var svo leikur hjá fótboltanum á móti núverandi meisturum deildarinnar. Allt annar bragur var á liðinu frá því í síðasta leik (sem enginn man þó eftir að hafi nokkurn tímann verið spilaður) og með smá heppni hefðum við getað farið inn í hálfleik með stöðuna 1-1. Í síðari hálfleik skora þeir svo mjög ódýrt rangstöðumark auk þess sem við missum mann útaf fyrir litlar sakir. Þegar hér er komið sögu er Baldvin farinn útaf meiddur og enginn skiptimaður því til staðar auk þess að vera einum færri. Þá var nú fokið í flest skjól en við börðumst þó eins og við gátum og leikurinn lauk svo með 1-5 tapi sem þrátt fyrir allt var nú bara alls ekki sem verst. Samt leiðinlegt að tapa í þessum leik, sérstaklega þar sem ég tók það að mér að vera fyrirliði í fjarveru Eika bleika... :(

Eftir leikinn var svo brunað á nöðrunni beint á Valby station þar sem ég tók lest upp í Herlev. Þaðan var svo hjólað í 21. gír sem leið lá heim til Hönnu Gunnu og Ómars þar sem þau voru að halda uppá tveggja ára afmælið hennar Agnesar. Að sjálfsögðu var nóg af veitingum sem ég gat troðið í mig og ég er ekki frá því að mér verði refsað rækilega fyrir það næst þegar ég stíg á vigtina góðu... :D

Í kvöld verður svo bara legið í leti og safnað kröftum fyrir komandi viku, veitir víst ekki af á þessum síðustu og verstu tímum! ;)

þriðjudagur, október 10, 2006

Systurnar, stórtap og Snjóvaktin

Er fyrst núna hættur að heyra suðið sem maður fær fyrir eyrun eftir að hafa hlustað á mikinn hávaða í langan tíma. Ástæðan fyrir þessu suði er sú að í gærkvöldi fórum við á tónleika með Snjóvaktinni (Snow Patrol á engilsaxnesku) í Vega. Stórskemmtilegir tónleikar þrátt fyrir að við hefðum nú ekki þekkt öll lögin (þekkjum þau bara núna) en fyrir þá sem ekki vita þá eiga þeir smelli á borð við Chasing Cars (ofurdramatíska lagið í lokaþætti annarrar seríu af Grey's Anatomy) og Open Your Eyes (sem hefur örugglega heyrst einhvers staðar)...

En Sólveig er semsagt núna úti á Kastrup að gera sig klára til að fara í flug aftur til Íslands. Þar með er þessari stuttu heimsókn lokið í bili en hér eru nú samt sem áður hápunktarnir:
  • Fórum út að borða á ágætis wok stað á föstudagskvöldið. Fengum þessar fínu núðlur og steiktu hrísgrjón...
  • Sátum inni í leti allan sunnudaginn þar sem glápt var á sjónvarp, svaka stuð. Ég eldaði svo núðlusúpu ofan í skvísurnar og á eftir spiluðum við smá Trivial...
  • Systurnar fóru svo í bæinn bæði í dag og í gær í búðarröltsleik...
  • Fórum í mat til Sigríðar í gær fyrir tónleikana, prýðilegt...
Eins og sést á þessari upptalningu var þetta frekar rólegt en gaman engu að síður...

Á sunnudag áttum við í FC Ísland svo 'stórleik' gegn sterku liði B1901 Köbenhavn. Menn eru víst að tala um að þetta sé stærsta tap FC Íslands frá stofnun, á eftir að kanna það í sögubókunum en allavega er nokkuð ljóst að þetta var frekar lélegt (eiginlega svo lélegt að ég ætla ekki einu sinni að gefa upp stöðuna í leikslok)...