laugardagur, október 14, 2006

Handbolti, fótbolti og afmælisbolti (já, eða boð)

Róleg vika að baki þar sem lítið markvert gerðist. Í fréttum er þó þetta helst...

Á fimmtudag fór ég og keppti í handbolta með IF Guðrúnu. Kannski væri réttara að segja að ég hafi farið að horfa á handbolta því að ég kom ekkert við sögu í leiknum fyrr en það voru um þrjár og hálf mínúta eftir og leikurinn svo að segja búinn. En ég skemmti mér samt konunglega á bekknum því leikurinn var þrælskemmtilegur. Peyjarnir sem við kepptum við byrjuðu betur og komust mest fjórum mörkum yfir en í hálfleik leiddu þeir 14-12. Í seinni hálfleik tók svo IF Guðrún völdin og fór þar markvörðurinn fyrir liðinu með því að verja eins og berserkur og tók í heildina 12 góða bolta í seinni hálfleik. Mest náðum við sex marka forskoti og unnum svo leikinn verðskuldað 29-27. Alltaf gaman af handboltanum (samt skemmtilegra þegar ég fæ að spila aðeins meira)... ;)

Í gær var svo hætt snemma í vinnunni (að hætti Skandínava á föstudögum) og hentum við hjónin okkur í allsherjarþrif á íbúðinni. Þá erum við að tala um eftirfarandi:
  • Ryksuga allt hátt og lágt
  • Þrífa klósettið og spúla
  • Þurrka af öllu, stóru sem smáu
  • Þvo allan óhreinan þvott
  • Vaska upp allt leirtau
  • Skúra eldhúsgólfið
  • Skipta um rúmföt
Eftir allan þennan þrifnað var ekkert annað eftir í stöðunni en að hjóla út á Massimo og ná sér í flatböku sem við gæddum okkur svo á meðan við gláptum á uppáhaldsþátt allra samkynhneigðra Dana (já og kvenna), Vild med dans...

Í hádeginu í dag var svo leikur hjá fótboltanum á móti núverandi meisturum deildarinnar. Allt annar bragur var á liðinu frá því í síðasta leik (sem enginn man þó eftir að hafi nokkurn tímann verið spilaður) og með smá heppni hefðum við getað farið inn í hálfleik með stöðuna 1-1. Í síðari hálfleik skora þeir svo mjög ódýrt rangstöðumark auk þess sem við missum mann útaf fyrir litlar sakir. Þegar hér er komið sögu er Baldvin farinn útaf meiddur og enginn skiptimaður því til staðar auk þess að vera einum færri. Þá var nú fokið í flest skjól en við börðumst þó eins og við gátum og leikurinn lauk svo með 1-5 tapi sem þrátt fyrir allt var nú bara alls ekki sem verst. Samt leiðinlegt að tapa í þessum leik, sérstaklega þar sem ég tók það að mér að vera fyrirliði í fjarveru Eika bleika... :(

Eftir leikinn var svo brunað á nöðrunni beint á Valby station þar sem ég tók lest upp í Herlev. Þaðan var svo hjólað í 21. gír sem leið lá heim til Hönnu Gunnu og Ómars þar sem þau voru að halda uppá tveggja ára afmælið hennar Agnesar. Að sjálfsögðu var nóg af veitingum sem ég gat troðið í mig og ég er ekki frá því að mér verði refsað rækilega fyrir það næst þegar ég stíg á vigtina góðu... :D

Í kvöld verður svo bara legið í leti og safnað kröftum fyrir komandi viku, veitir víst ekki af á þessum síðustu og verstu tímum! ;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home