þriðjudagur, september 26, 2006

Þriðjudagshelgarsprok...

Gleymdi mér alveg í gær en það á víst ekki að koma að sök, lesendur mínir (báðir) fyrirgefa mér það vafalítið...

Tökum þetta bara lið fyrir lið og byrjum á föstudeginum. Standard föstudagur í rauninni, fór í vinnuna, vann, kom heim úr vinnunni. En að vísu þá komu Sigríður og Valdi (fyrir þá sem ekki vita er hann nýji 'vinur' hennar) í heimsókn og að sjálfsögðu þurfti að elda ofan í liðið. Það varð því úr að ég henti mér út í búð og keypti hráefni til að baka pizzur sem ég gerði svo að sjálfsögðu eins og innfæddur Ítali (fyrir utan kastið auðvitað). Eftir matinn nýttum við okkur svo bílinn og fórum á pöbbarúnt um bæinn. Á eftir var svo afskaplega notalegt að geta keyrt heim í staðinn fyrir að taka strætó/metró/leigubíl...

Á laugardeginum var svo byrjað á því að bruna upp í IKEA til að kaupa skammel (er það skrifað þannig?!?) og nýja sessu á einn af borðstofustólunum (ein lést í blóði sínu kvöldið áður (förum ekki nánar út í það hér samt)). Settum sennilega heimsmet því að okkur tókst að klára þetta af á innan við hálftíma! Vildi óska að allar IKEA ferðir væru svona fljótlegar. Eftir það var stefnan sett á Fields þar sem við höfðum ráðgert að fara í Bilka að versla því þar væri allt til sem við þurftum fyrir veislu kvöldsins en við höfðum einmitt boðið R+H og J+E í mat. En við komumst að því að lykilatriðið í veislumatnum, kalkúnabringa, var bara alls ekki til í Bilka! Við þurftum því að setja í gang víðtæka leit um matvöruverslanir borgarinnar í leit að blessuðum bringunum og fundum þær svo í Fötex. Brunuðum svo heim og settum eldamennskuna á fullt og í grófum dráttum voru allir MJÖG sáttir við matinn og við sátum að spjalli langt fram á nótt, mettuð eftir þríréttaðan kvöldmatinn. Eins og góðum gestgjafa sæmir þá skutlaði ég svo öllum heim um nóttina...

Á sunnudag þurfti ég svo að vakna fyrir allar aldir (lesist klukkan níu) því að það var mæting klukkan 9:30 í Valby þar sem við áttum leik við De Grönne Bude (Grænu búðingana) klukkutíma síðar. Hörkuleikur sem við unnum 3-1 eftir að hafa skorað mark frá miðju (í boði Odds). Eftir leikinn var brunað heim og haldið í road trip upp eftir ströndinni og enduðum svo í Helsingör. Kíktum þar aðeins á Krónborgarkastala en ákváðum að koma aftur síðar til að skoða innviðið. Tókum svo hraðbrautina til baka beinustu leið upp í sófa (þar sem skammelinn kom sér ákaflega vel). Að vísu skuldar TV2 Film mér núna einn og hálfan tíma af ævi minni því við horfðum á eina verstu mynd allra tíma (Princess Diaries (læt ekki einu sinni link fylgja á þennan viðbjóð)). En heppilega þá tókst mér að gleyma viðbjóðnum strax á eftir þegar Martin Lawrence birtist í Bláu rákinni (Blue Streak fyrir þá sem ekki til þekkja) og gladdi allan lýðinn...

Í gær gerðist harla lítið, vinna og svo ferð í ræktina, frekar lame í rauninni...

1 Comments:

At 1:28 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Sénsinn að þér verði fyrirgefið að gleyma degi...

 

Skrifa ummæli

<< Home