fimmtudagur, september 07, 2006

Í tómu rugli!

Eitthvað hef ég verið annars hugar undanfarið því ég hef algjörlega gleymt blogginu mínu! Gæti verið tilkomið vegna þess að ég held að ég hafi sjaldan eða aldrei verið jafn ótrúlega aktívur í vinnunni, hreinlega setið non-stop við tölvuna að vinna frá því ég mætti á mánudaginn! Svo höfum við líka verið boðin heim ansi oft undanfarna daga og það hefur í raun ekki verið neinn 'letitími' síðan að sumarfríið kláraðist. En altént, þetta hefur markvert gerst...

Sigríður mágkona átti auðvitað afmæli á þriðjudaginn (Júlli tengdó að vísu líka) og bauð okkur í kvöldkaffi af því tilefni á Eystri Ofbeldisgötu (eins og hún kýs að kalla hana sjálf). Hún hafði tekið sig til og bakað súkkulaðiköku og eplapæ auk þess að bjóða upp á osta og smákökur. Ótrúlegur dugnaður í stúlkukindinni sem er greinilega að stimpla sig rækilega inn í bakstrinum. Allavega fór enginn svangur heim úr boðinu... ;)

Fann aftur gamla góða fákinn og, eftir smá pumpun og sætishækkun, þá var maður kominn aftur í gamla góða hjólagírinn og tilbúinn að takast á við hjólaumferðina og vindinn hérna í Köben. Ótrúleg þægindi sem fylgja þessu, verst að þetta er ekki eins auðvelt og þægilegt í Reykjavík... ;)

Í gær var svo mikil spenna í loftinu því Íslendingar voru í baráttunni á tveimur vígstöðum, bæði á Laugardalsvellinum og hérna úti í Köben því FC Ísland átti leik í átta liða úrslitum bikarkeppninnar. Hörkuleikur sem hefði getað endað á hvorn veginn sem var en því miður (fyrir okkur) þá hafði B1901 Köbenhavn sigur með tveimur mörkum í lokum, 4-2 (kunnuglegar tölur). En eins og sönnum Íslendingum sæmir þá vorum við ekki að gráta það mjög lengi heldur drifum okkur í sturtu og beint á O'Learys þar sem Íslendingar höfðu ákveðið að fjölmenna til að horfa á Ísland vs. Danmörk. Gríðarleg stemmning í kofanum og sennilega var skiptingin um 50-50, allavega létu þeir Íslendingar sem mættu á svæðið vel í sér heyra! Því miður þá gekk þetta ekki í dag frekar en fyrri daginn en við skemmtum okkur allavega stórvel. :D

Í kvöld er svo annar leikur hjá FC Ísland gegn Team Punnani og vonandi náum við að berja duglega á þeim og hirða öll stigin sem í boði eru. Á eftir verður svo haldið til Heiðrúnar en mærin sú á víst 28 ára afmæli í dag og að sjálfsögðu fær hún þrefalt húrrahróp og jafnvel eitt gott ógí-ógí-ógí í tilefni af því! :D

3 Comments:

At 1:49 e.h., Blogger Jonni said...

Alveg dæmigert. Maður skorar í eigið mark og þá er bara heil færsla tileinkuð því. Svo þegar maður skorar glæsilegt jöfnunar-skalla mark og jafnframt fyrsta mark sitt (sem ekki var í eigið net :P) fyrir IF Guðrúnu þá er ekki einusinni minnst á það ... For shame T-bag! :P

 
At 5:00 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Mmm, kaka....kjamssmjatt.....
Hef ákveðið að borða sjokolaðekage í hvurt mál. Det er livet...

 
At 10:18 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

við eigum þó allavegna magasin :)

 

Skrifa ummæli

<< Home