laugardagur, júní 10, 2006

Úr sambandi við umheiminn...

Gærdagurinn fer í sögubækurnar fyrir að vera dagurinn þar sem einhverjum snillingi tókst að gera nánast alla Kaupmannahöfn netsambandslausa nánast allan daginn. Forsaga málsins er sú að maður á gröfu er að grafa (eðlilega) og verður það á að klippa í sundur einhverja kapla sem liggja í jörðu. Þessir kaplar voru nú ekki minna merkilegir en svo að þetta var tenging Kaupmannahafnar (eða svona næstum því allrar) við umheiminn! Og fyrir vikið þá misstum við út nettenginguna í vinnunni í gær rétt fyrir hádegið og vorum enn án netsambands þegar við loks gáfumst upp um þrjúleytið og fórum bara heim til Jonna...

Eiginlega merkilegt hvað maður heyrir oft um svona atvik, þegar einhverjir gröfumenn eru að grafa í sundur rafmagnsvíra, netsnúrur, gasleiðslur eða vatnsæðar. Er ekki einhver möguleiki að athuga hvað er undir yfirborðinu áður en menn rjúka af stað að grafa eins og moldvörpur?!?

Annars var ekki sem verst að vera bara heima hjá Jonna, sérstaklega þar sem við vorum búnir að ákveða að horfa þar á fyrsta daginn á HM í góðu yfirlæti. Gláptum á báða leikina, að vísu með tölvuna í fanginu þannig að það var svona með einu og hálfu auga. En keppnin fór allavega þrusuvel af stað miðað við leikina sem voru í boði í gær. Meðalfjöldi marka í leik eru semsagt fjögur mörk eftir gærdaginn og vonandi heldur það áfram í dag á svipuðum nótum...

Á eftir er leikur hjá FC Ísland við topplið deildarinnar, Boldklubben Cito, og má búast við hörkuleik að venju. Eftir leikinn verður svo haldið á Solbakken í grillveislu og HM áhorf. Í þessum skrifuðu orðum er svo að auki glampandi sól og hitinn strax kominn upp í 18 gráður á Celsíus kvarða. Mín spá fyrir daginn í dag: Sumarfílingur a-plenty!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home