fimmtudagur, júní 01, 2006

Hún á afmæli í dag... (o.s.frv.)

27 ár. Það er fjöldi þeirra ára sem Þórunn Jóhanna Júlíusdóttir hefur heiðrað íbúa jarðar með nærveru sinni. Nokkuð gott miðað við aldur hennar og fyrri störf, myndi ég segja. Verst er að hún skuli vera á fullu í próflestri, annars hefðum við sennilega eytt deginum í eitthvað skemmtilegt (lesist: vitleysu). En í staðinn sat þessi elska inni allan daginn með nefið ofan í bókunum að undirbúa sig undir prófið sem hún fer í 14. júní. Dugleg...

En að sjálfsögðu reyni ég, eins og góðum eiginmanni sæmir, að gera henni glaðan dag þar sem fæðingardagur manns er víst bara einu sinni á ári (sem er auðvitað ákveðin synd). Að sjálfsögðu gaf ég henni afmælispakka sem var henni svo sannarlega að skapi, skór og Anna í Grænuhlíð (á DVD (ekki persónan sjálf semsagt)). Þórunn var himinlifandi með glaðninginn og ekki spillti fyrir að ég fór í morgun út í bakarí og keypti rúnstykki og köku (bara litla samt) og var með morgunmat tilbúinn þegar hún fór á fætur. Minn kann á það nefnilega ;)

Í kvöld ætlum við svo að fara út að borða og kíkja á indverskan veitingastað og að sjálfsögðu drögum við Sigríði með okkur. Hvað væri afmæli svosem án hennar?!? :D

2 Comments:

At 8:17 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Ti hamingju með Þórunni :D En búhú! mig langar líka að fara með ykkur útað borða :( Lofiði að koma með mér útað borða þegar þið komið heim? annars fer ég bara að gráta...

 
At 11:35 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Skilaðu til hennar kveðju. Svo styttist í að maður sjá ykkur á landinu helga ...

 

Skrifa ummæli

<< Home