Síðasti dagur sumarfrís... :(
Allt verður fyrr en síðar endi að taka. Sú er víst nú raunin með sumarfríið mitt því á morgun byrjar gamla góða rútínan þar sem vinnan spilar afskaplega stórt hlutverk. Ekki svo að skilja að mér leiðist eitthvað voðalega í vinnunni en ég skal alveg viðurkenna að þetta frí var ansi kærkomið. En ég ætla bara að vera jákvæður og hlakka bara til að mæta aftur á Vesterbrogade og hitta þar fyrir Jonna og hina Danina...
Talandi um Jonna! Honum varð það á að skora sjálfsmark í gær í leik FC Íslands við Fox United. Vil þó segja Jonna það til varnar að þetta var meira gríðarleg óheppni en nokkuð annað og eiginlega bara ótrúleg tilviljun. Og það var engan veginn það sem réði úrslitum í þessum leik hvort eð er því við vorum bara skítlélegir og töpuðum verðskuldað (að mínu mati) 4-2 eftir að hafa leitt 2-1 í hálfleik. Ætla ekki að koma með neinar afsakanir, betra liðið vann bara leikinn í gær, einfalt mál...
Eftir leikinn hitti ég svo Þórunni og Sigríði á Grábræðratorgi þar sem þær systur sátu og kjömmsuðu á einhverju góðgæti og drukku bjór með. Ég var ekki lengi til að panta mér pizzu og kók og sporðrenndi hvoru tveggja þeim til samlætis. Svo fór gærkvöldið bara í gríðarlega afslöppun og gerðum við hjónin bókstaflega ekki neitt og hvíldum okkur svo vel á eftir!
Já, og meðan ég man! Ég gleymdi víst algjörlega í upptalningu minni á 'afrekum' sumarsins á Íslandi að minnast á stórgóða og skemmtilega ferð okkar hjónanna til Flateyjar! Eiginlega ótrúlegt að ég skyldi gleyma því þar sem þetta var sennilega hápunktur sumarsins! Fórum semsagt þangað í helgarferð með Gimma og Svönu og Eika og Láru og gistum í húsi sem foreldrar Láru eiga þar. Mögnuð upplifun að koma þarna út í eynna og ekki spillti fyrir ferðin í náttúrulega heita pottinn út á miðjum Breiðafirðinum, dáldið öðruvísi upplifun að sitja í heitum potti með seli syndandi í kringum sig úti á miðju ballarhafi á skeri sem á flóði er undir sjávarmáli. Það er eitthvað sem venjulegir túristar upplifa sennilega aldrei... ;)

1 Comments:
þetta var það fyrsta og síðasta skipti sem ég reyni að bjarga deginum með því að skalla aftur til markvarðarins ....
Skrifa ummæli
<< Home