Laminn með lurkum...
Það var víst nokkuð ljóst að brjálæðið sem fólst í því að ætla á tvær æfingar sama kvöldið myndi taka sinn toll. Að vísu ekki alveg á þann hátt sem ég hafði sjálfur haldið því að strax á fótboltaæfingunni (sem var fyrri æfing kvöldsins) hafði ég af að fljúga á hausinn og taka netta skriðu eftir jörðinni á annarri höndinni. Síðan tókst mér sama kvöld á hinni æfingunni að fleygja mér inni í teiginn (til að reyna að skora auðvitað) og lenda aftur á sömu höndinni og rann fína vegalengd á henni eftir parketinu. Og árangurinn? Jú, þetta líka fína brunasár sem svo sannarlega lét mig hafa fyrir hlutunum í nótt því ég gat ekki sofið á hliðinni fyrir vikið. En þetta var samt sem áður þess virði og vel það! :D
Og það var meiri gleði í gær því að Siggi hafði samband við mig og hafði haft uppá einhverjum Dana sem var að selja miða á United vs. FC Köbenhavn þann 1. nóvember. Og hann var auðvitað svo elskulegur að bjóða mér miða sem ég þáði að sjálfsögðu með þökkum þrátt fyrir hátt svartamarkaðsverð (sem verður ekki gefið upp og verður aldrei rætt meir). Lít bara svo á að þetta sé alveg þess virði og hananú! Allavega er nokkuð ljóst hvar ég verð 1. nóvember 2006 klukkan 20:45 að staðartíma, stúku C-4 á Parken að horfa á kickoff-ið (útsýnið úr sætinu mínu sést á myndinni)! hauuuuuuuuuuuuuuuu...Og fyrir ykkur sem segið alltaf 'góðan daginn' eins og ekkert sé eðlilegra, kíkið þá á þetta!

1 Comments:
GÓÐAN DAGINN!
Skrifa ummæli
<< Home