Taumlaus fimmtudagsgleði!
Gleymdi auðvitað að nefna að á þriðjudaginn tók ég leigubíl út á Kastrup til að hitta 'gamla' (eins og við Palli bróðir köllum hann). Hann var semsagt að millilenda hér í Köben á leið sinni til Innri Mongólíu þar sem hann ætlar að taka að sér að vera verksmiðjustjóri í nýrri járnblendiverksmiðju sem Elkem hefur sett þar á laggirnar. Spurning um að breyta viðurnefninu hans í Helgi Póló?!?
Í gær rölti ég svo 'alla leið' á Eyrarsundsstúdentagarðinn og hitti þá félaga Jón Auðun og Sigga og fór með þeim á 'staðinn okkar' sem við Shamrock er kenndur. Þar gláptum við (með Adda og fleiri svölum peyjum) á United vs. Celtic í Meistaradeildinni og er skemmst frá því að segja að United hafði góðan 3-2 sigur í þessum leik sem var víst kallaður 'Baráttan um Bretland' af gárungunum. Alltaf gott að byrja vel í keppninni og vonandi verður þetta tímabil til að bæta upp vonbrigðin á því síðasta...
Hverjir eru annars þessir gárungar? Er það einhver þjóðflokkur eða e.t.v. trúarhópur? Altént eru þeir manna duglegastir að trana sér fram með hnyttin (á stundum) og óhnyttin (oftast) tilsvör/athugasemdir/upphrópanir/uppnefningar þegar tilefni (að þeirra mati) þykja til. Spurning um að hvetja þá til að koma fram undir réttu nafni framvegis, bendi þeim á að www.garungar.is lénið er víst á lausu sem stendur... ;)
Í dag á svo elskuleg mágkona mín, Karitas Gunnarsdóttir þrjátíuog...... eh...... tuttuguogþriggja ára afmæli (yes, that will do) og fær hún miklar og góðar hamingjuóskir í tilefni af því frá öllum Bröndby aðdáendum sem búsettir eru í Óðinsvéum! :D
Í kvöld er stefnt á tvöfalda gleði, fótboltaæfing klukkan sex og svo beint á handboltaæfingu klukkan hálf átta. Kemur svo auðvitað í ljós hvort/hvernig það á eftir að ganga... ;)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home