Skotinn í kaf!
Ein færsla! Það var allt og sumt. Eftir eina færslu með 'nýju' útliti fékk ég alls kyns hótanir um fjárnám og þess háttar og var vinsamlegast beðinn um að breyta þessu hið snarasta. Kom víst í ljós að Jonni taldi sig 'eiga' þetta útlit sem ég valdi (hafði ekki hugmynd um að hann væri að nota það sama) og fyrir vikið mætti ég ekki nota það líka. Verð víst að sætta mig við það, enda alveg á hreinu að hann 'á' greinilega útlitið, enda bjó hann það til alveg sjálfur (tjah, allavega valdi hann það sjálfur úr listanum af mögulegum útlitum)... ;)
Á miðvikudaginn fengum við heimsókn frá tengdó. Hann þurfti víst að mæta á einhvern fund á fimmtudaginn og þurfti því að koma til Kaupmannahafnar á miðvikudagskvöld og fékk að sjálfsögðu að gista hjá okkur um nóttina. Eins og góðum gestgjöfum sæmir þá buðum við honum og Sigríði til kvöldverðar þar sem á boðstólum var ágætis lasagna sem við vorum svo að klára í gærkvöldi (borgar sig að gera mikið í einu). Hann leyfði svo Þórunni að æfa sig í nálastungu og það er greinilegt að hún hefur æft sig vel því að hún stakk ekki á neinar taugar og tókst bara helvíti vel upp (þrátt fyrir smá blóðpoll á borðstofudúknum). Greinilegt að kallinn er töluvert minni kelling en ég... ;)
Um daginn dó víst DVD spilarinn okkar eftir annars ágæta ævi. Gæti kvartað yfir endingu en hann lifði þó rúmlega sjö ár þannig að það er kannski eðlilegt að hann hafi gefið upp öndina eftir þann tíma og mikla notkun. Allavega var ljóst að við þurftum að skipta honum út og hentum okkur því í Merlin þar sem við fengum glænýjan United spilara á 299 DKK. Ákváðum að hafa þetta bara ódýrt en þess ber þó að gera að þetta var eini region-free spilarinn í búðinni og jafnframt langódýrasti. Ef nýi spilarinn endist 1-2 ár þá myndi ég kalla þetta ofurfjárfestingu...
Var svo vakinn upp við hina stórskemmtilegu símhringingu í GSM símanum mínum aðfararnótt föstudags. Að vísu átti ég von á símtalinu en það er alltaf eitthvað verulega skrýtið við að vera vakinn upp klukkan 2:30 á næturna. Á hinum enda samtalsins var Ómar nokkur Gústafsson sem tjáði mér að hann og Hanna Gunna (og Agnes) væru úti á Kastrup að bíða eftir töskunum sínum. Ég vippaði mér því í föt og út í bíl til að sækja þau. Þegar heim var komið er ég ekki frá því að ég hafi fellt eitt eða tvö tár þegar þau keyrðu svo af stað aftur, allavega er ljóst að við eigum eftir að sakna bílsins töluvert... :(
Í gær var svo aftur haldið út á Kastrup (í metró og lest í þetta skiptið þó) til að sækja systur nr. 3 (lesist: Sólveig). Systir nr. 2 (lesist: Sigríður) hitti okkur þar og það voru miklir fagnaðarfundir þegar nr. 3 kom út um hliðið. Hún ætlar víst að dvelja hjá okkur fram á þriðjudag og nýta tímann vel til að máta allar flíkur sem í boði eru í H&M (karla og kvennadeildir). Sérstaklega skemmtilegt í ljósi þess að mér finnst fátt eins 'skemmtilegt' (lesist sem kaldhæðni) að rölta á milli búða og bíða eftir fólki sem er að máta... ;)

1 Comments:
ég segi bara velkominn í hópinn
Skrifa ummæli
<< Home