laugardagur, janúar 07, 2006

351 dagur til jóla...

Jæja, þá eru jólin víst formlega að baki og grákaldur veruleikinn tekur við (ákvað að vera pínu skáldlegur, ekkert grákalt við minn veruleika samt). En það er hægt að hugga sig við það að nú eru ekki nema 103 dagar í sumar (samkvæmt íslensku dagatali)... ;)

Þórunn tók niður jólaskrautið og ég tók niður seríuna af svölunum. Við hentum okkur líka í post-jólahreingerningu þar sem Þórunn þurrkaði af og ég ryksugaði. Verkaskiptingin er sko aldeilis til fyrirmyndar á okkar heimili! Hentar mér ágætlega, jólaseríur og ryksugun er sennilega það karlmannlegasta af þessum heimilisstörfum, veitir ekki af að reyna að ýta undir minn eigin karlmannleika... :D

Lærði í gær að búa til 'rúllettur' sem er frábær leið til að nýta fiskur-og-kartöflur afganga. Öllu draslinu hent í matvinnsluvél, bæta við hveiti, lyftidufti, eggjum og mjólk, steikja svo á pönnu í litlum klöttum (eiga samt ekki að vera mjög flatir, mínir voru víst heldur flatneskjulegir) og bera fram með kartöflum og grænmeti! Klassamáltíð á no-time og afbragðsgott að auki! Alltaf er maður nú að læra eitthvað nýtt...

föstudagur, janúar 06, 2006

Beefin' it up!

Skellti mér á handboltaæfingu í gær með IF Guðrúnu, mannskapnum þar til mikillar gleði. Kom í ljós að ég hafði engu gleymt, sem er kannski ekki skrýtið því við spiluðum fótbolta allan tímann! Eitt sem mér finnst alltaf jafn gaman við að mæta í handboltann. Þar er ég alltaf með þeim yngstu á svæðinu þannig að þegar það var skipt í ungir vs. gamlir þá var ég automatically ungur, þurfti ekki einu sinni að kanna það :D Verst að þannig er það alls ekki í fótboltanum... :(

Framvegis (þ.e. fram á sumar) verður semsagt handbolti á fimmtudögum og fótbolti á sunnudögum. Mánudaga og föstudaga eru handalyftur, miðvikudaga fótalyftur og afgangsdagana (þriðjudaga og laugardaga) verður svo reynt að hlaupa/hjóla. Markmiðið er semsagt að losna við x mörg kíló á þessum 5-6 mánuðum fram á sumar og komast þá niður í þyngd sem er þá allavega nær kjörþyngdinni en sú þyngd sem ég er í dag. Eiginlega rugl þegar bróðir minn er næstum 10 kg léttari en ég, get ekki endalaust haldið því fram að ég sé bara svona stórbeinóttur ;)

Fékk svo að vita í gær að við hjónin verðum án sjónvarps í lágmark átta daga í viðbót. Danir og þjónustulund, tvö orð sem fara engan veginn saman...

Mæli með: O með Damien Rice, fín föstudagstónlist þar á ferð, mellow og þægileg...

fimmtudagur, janúar 05, 2006

...and no TV makes Laddi go crazy!!!

Dagurinn í gær byrjaði alveg stórglæsilega. Settist við tölvuna og ætlaði að byrja að vinna en komst þá að því að netið var úti. Við nánari eftirgrennslan kom jafnframt í ljós að það var ekki bara netið heldur líka síminn og sjónvarpið. Þjónustuaðilinn minn (sem sér mér fyrir öllu þrennu) hafði semsagt lent í einhverjum rafmagnsvandræðum og ég varð því bara að bíða rólegur þangað til það yrði leyst. Þremur tímum síðar datt þetta svo í gang. Eða það hélt ég...

Í gærkvöldi ætlaði ég að setjast fyrir framan sjónvarpið og glápa á eitthvað skemmtilegt. En það virtist vera alveg sama hvaða stöð ég kveikti á, fékk ekkert nema bara gamla góða drauginn. Gangverkið í heilanum fór á flug og eftir smá umhugsun rann upp fyrir mér ljós. Ég hafði ákveðið í haust að skipta um þjónustuaðila á sjónkanum, hafði pantað nýtt (sem var svo aldrei tengt af einhverjum orsökum) og sagt upp því sem ég var með. Þetta átti allt að taka gildi um miðjan október en þar sem hvorugt gerðist, þ.e. þetta nýja tengt og því gamla sagt upp, þá ákvað ég bara að láta kyrrt liggja og gera ekkert í málinu. Svo gengur nýtt ár í garð og gamla fyrirtækið hefur greinilega ákveðið að hreinsa til hjá sér og slekkur þá (að sjálfsögðu) á minni sjónvarpstengingu! :D

Þannig að ég í dag bíður mín það skemmtilega verkefni að panta sjónvarpið aftur, vona að það taki ekki þessar klassísku 4-6 vikur þeirra Dana að fá það í gegn... ;)

miðvikudagur, janúar 04, 2006

Mannleg mistök...

Undarlegur hlutur gerðist í gær. Ég er vanur að vera (nánast) hinn fullkomni kokkur og það hreinlega kemur ekki fyrir (allavega ekki fyrr en í gær) að ég klúðri einhverju á því sviði. En í gær tókst mér að kveikja í fullum potti af hrísgrjónum og að auki að ofsalta næsta skammt af hrísgrjónum sem áttu að bæta upp fyrir þann fyrri! Þetta gerðist þrátt fyrir það að við hjónin fengum þessa forlátu eldhúsklukku í jólagjöf! Það hefði kannski verið sniðugra að allavega kveikja á henni... ;)

Við Jonni gerðum góða ferð á O'Learys í gær, troðfullt út úr dyrum og gríðarleg stemmning. Leikurinn var fjörugur og endaði með sanngjörnu steindauðu jafntefli. Menn leiksins voru tvímælalaust Darren Fletcher (og eru flestir sammála mér í því vali) og Pascal Cygan (við Jonni vorum allavega sammála um það)! Sá næsti sem segir stakt ljótt orð um vin minn Fletcher fær sko aldeilis að kenna á því, megið tala eins illa um Cygan og þið viljið... ;)

Í dag mæta svo fleiri góðvinir mínir til leiks eftir langa fjarveru. Snillingarnir Zach Braff (J.D.), Donald Faison (Dr. Turk), Ken Jenkins (Dr. Kelso) og síðast en alls ekki síst John C. McGinley (Dr. Cox) eru komnir til baka úr góðu fríi (ásamt öllum hinum snillingunum) með nýja seríu af Scrubs sem fór í loftið í USA í gær. Tveir nýjir þættir bíða sem við hjónin getum 'kjammsað' á í kvöld. Eins og skáldið sagði: "...og þá var kátt í höllinni!"

þriðjudagur, janúar 03, 2006

Back in the D.D.D.K.

Alltaf er nú jafn ljúft að vera kominn til Kaupmannahafnar aftur! Betra veður, ódýrara að versla (í matinn), engar langar og leiðinlegar bílferðir og mjúkt og þægilegt rúm!!! Svefnsófinn hjá tengdó er svosem sæmilegur, en eftir tvær vikur þá er bakið (og þolinmæðin) alveg búið...

Kláraði að lesa V for Vendetta í gær. Þvílík endemis snilld sem þessi bók er!!! Nokkuð ljóst að myndin (sem er væntanleg í mars) er efst á must-see listanum hjá mér þessa stundina. Mæli eindregið með þessari lesningu...

Við Jonni ætlum svo að skella okkur á O'Learys á eftir og horfa á Arsenal vs. Manchester United. Er þegar kominn í gallann og vona auðvitað að mínir menn sæki sigur á Highbury. Annars getur auðvitað allt gerst í þessum leikjum, heppilega eru Arsenal búnir að vera slappir undanfarið. Sætti mig við ekkert minna en þrjú stig og að minnsta kosti tvö rauð spjöld!

Á náttborðinu: The Chronicles of Narnia e. C.S. Lewis
Í eyrunum: Mezzanine m. Massive Attack
Í augunum: House, M.D. Alltaf gaman af Hugh Laurie!
Á bakinu: United treyjan, númerslaus...

Áfram United!!!

mánudagur, janúar 02, 2006

Gjörspilltur!

Jæja, nú er það búið! Ég flýg hreinlega ekki aftur nema það sé í Saga Class sætum (eða sambærilegu)!!!

Það er nokkuð ljóst að það borgar sig að mæta snemma, tjah, og líka að fljúga þegar það eru margir sem vilja fljúga því að vélin í dag var stappfull og þ.a.l. þurfti að nýta allt Saga Class plássið fyrir 'almúgann'. Við, sem mættum mjög snemma í innritun, fengum semsagt sæti í fjórðu sætaröð þar sem eru bara fjögur sæti en ekki sex í hverri röð og að auki sérdeilis gott leggjarými. Semsagt ein allra besta flugferð sem ég hef farið í og við hjónin höfum ákveðið í kjölfarið að fækka Íslandsferðum um helming (til að sporna gegn auknum kostnaði) og fara héreftir aðeins í lúxusinn sem Saga Class býður upp á ;)

sunnudagur, janúar 01, 2006

Litið um axlir...

Við upphaf nýs árs er yfirleitt venjan að líta um öxl og fara yfir það sem markvert taldist á árinu sem var að líða. Ákvað því að setja saman smá lista (sem er þó engan veginn raðaður eftir mikilvægi og/eða eftirminnilegheitum):
  • United skitu upp á bak í Meistaradeildinni og í ensku deildinni (þ.e. tímabilið 2004-2005).
  • Mér tókst loksins að koma upp borðstofuljósi, með MIKILLI hjálp frá Runa félaga þó...
  • Ég hafði það loksins af að ganga endanlega út, kvenfólki heimsins til mikillar gleði.
  • Í kjölfarið eignaðist ég tvær hreint ágætar mágkonur og í kaupbæti tengdaforeldra.
  • FC Ísland hafði það af, þriðja árið í röð, að vinna sig upp um deild í fótboltanum og í handboltanum var það sama uppi á teningnum, Áfram FC Ísland!
  • Ég bætti þriðju heimsálfunni í safn þeirra heimsálfa sem ég hef heimsótt. Three down, four to go...
  • Bæði Jonni og Runi (og fylgifiskar þeirra að sjálfsögðu) fluttu til Kaupmannahafnar til þess eins að ég hefði fleiri leikfélaga.
  • Ég hafði það af, annað árið í röð, að komast hjá því að mála ofnana ;)

Besta jólagjöfin: Flíspeysan frá Þórunni :)
Áramótaheitið: Reyna að drattast til að setja inn fleiri færslur, allavega einu sinni í mánuði (tjah, eða ári bara)
Eyrnakonfektið: Fisherman's Woman m. Emilíönu Torrini, meistarastykki þar á ferð...
Þáttasnilldin: Firefly, synd og skömm að Fox skuli ekki hafa áttað sig á snilldinni...

Gleðilegt ár!