Kanar, kænur og kjánar
Nei, gott fólk, hér er ekki verið að tala um Bandaríkjamenn, þó síður sé. Ég var nefnilega að komast að því, mér til mikillar furðu, að þetta eru íslensk heiti á karlkyns, kvenkyns og ungum kanínum! Hver segir svo að íslenskan sé ekki stórskemmtilegt tungumál, uppfullt af allskyns skrýtnum orðum og heitum. Grilluð kæna með kjánabollum og kanasósu, já takk!
Annars hefur veðrið verið í aðalhlutverki hérna í Danmörku (og í raun allri Skandinavíu) síðustu daga. Að vísu sluppu Danir við verstu hviðurnar en vindur fór víst í fellibylsstyrk á Skáni í gær og þegar ég síðast vissi þá höfðu þrír látist þar eftir að tré höfðu fokið upp með rótum og fallið á bíla þeirra. Þó svo það sé auðvitað ákaflega sorglegt þá er samt dálítið fyndið til þess að hugsa að þessi 'ofsavindur' var samt bara kjánavindur (í merkingunni lítill eða barn) miðað við íslenska vetrarstorminn sem við Íslendingar þekkjum svo mætavel. En samt nær þetta víst að setja allt úr skorðum hér í landi. Gaman væri að sjá hvað myndi gerast ef það kæmi hérna 'alvöru' íslenskur vindur! :D
Handboltinn er svo byrjaður aftur og fyrsti leikurinn eftir jólinn var haldinn í gær í Hellerup á móti sterku liði HIK 2 (sem eru efstir í deildinni okkar). Þetta var víst engin frægðarför og við fórum heim með 12 marka tap á bakinu þrátt fyrir mikla og góða baráttu og litla hjálp frá dómurum sem voru alls ekki að standa sig vel. Auk þess átti ég ákaflega dapran dag hvað varðar nýtinguna og lét spikfeitan og svifaseinan markmann HIK verja frá mér í þrígang úr dauðafæri. Þarf víst eitthvað að laga það en get þó glatt mig við það að mér tókst að skora með vinstri sem gerist nú ekki á hverjum degi sem er magnað í ljósi þess að þó að ég skrifi með vinstri hendi þá get ég ekki fyrir mitt litla líf kastað bolta með henni... ;)
