föstudagur, janúar 20, 2006

Loksins alvöru vetur!

Í gær fór að snjóa hérna í Kaupmannahöfn sem gerist nú endrum og eins. En í þetta sinn er það aðeins öðruvísi, því snjórinn er hérna enn í dag! Yfirleitt er þetta farið nokkrum tímum eftir að byrjar að snjóa, en kuldinn gerir það víst að verkum að þetta mun halda sér, allavega um sinn. Magnað, alveg hreint!

Við hjónin getum loksins tekið gleði okkar á ný því búið er að tengja sjónvarpið okkar aftur! Og ekki nóg með það heldur fáum við miklu fleiri stöðvar en við erum að borga fyrir. Fengum greinilega bónuspakkann. Segið svo að Danir séu ekki liðlegir við mann ;)

Já, ég gleymdi víst að nefna það að Þórunni hefði gengið ágætlega í prófinu, allavega fékk ég ekki að heyra neitt 'Ég er fallin' í þetta skipti. Ætla að skilja það sem svo að þetta hafi gengið betur en vonir (hennar) stóðu til.

Annars stefnir bara í rólega helgi, matarboð og þægilegheit (þá þurfum við ekkert að elda). Þórunn er meira að segja búin að þrífa alla íbúðina hátt og lágt þannig að ekki verð ég plagaður með óskum um það heldur. Er ekki lífið hreint dásamlegt? :D

fimmtudagur, janúar 19, 2006

Litlir kassar, á lækjarbakka...

Loksins er maður risinn úr rekkju, má eiginlega segja upp frá dauðum. Gærdagurinn fór að mestu leyti í svefn, þurfti að vinna upp tapaðan 'alone time' með rúminu góða. Er allur hinn hressasti núna hinsvegar og bíð spenntur eftir 'átökum' dagsins :D

Ég var svo ótrúlega heppinn með það að í gær (á meðan ég svaf) fór Þórunn í IKEA (heppinn í merkingunni að ef ég hefði ekki verið sofandi hefði hún hugsanlega dregið mig með). Þær systur fóru að kaupa eitthvað dót fyrir herbergið hennar Sigríðar. Þórunn ákvað að það væri tilvalið að kaupa nokkra kassa til að nota undir eldhúsdót og mat. Hún kom semsagt heim með troðfullan IKEA-poka af kössum í öllum stærðum og gerðum og eyddi góðum parti af deginum í gær (þeim hluta sem fór ekki í IKEA ferðina auðvitað) í að endurskipuleggja eldhúsið! Núna er bókstaflega allt í einhvers konar kassa, morgunmaturinn, osturinn, skinkan, hveitið, pastað, sykurinn, flórsykurinn, rúgmjölið og svona mætti endalaust áfram telja. Manneskjan er orðinn kassasjúk! Ætli hún reyni ekki næst að troða mér í kassa líka... ;)

Var búinn að ákveða að ég ætlaði ekki að stefna að 100% nýtingu með þetta raus mitt, en er ennþá nokkuð nærri lagi. Þannig að þó að ég klikki endrum og eins þá er það bara hluti af hinu stærra plani...

þriðjudagur, janúar 17, 2006

Froskafætur og kálfakjöt!

Mmmmmmmmm! Vorum rétt í þessu að detta inn eftir stórgóðan kvöldverð með Gunzo. Hann þurfti eitthvað að þvælast hingað til Skandínavíu og notaði tækifærið og bauð okkur hjónunum og skötuhjúunum Jonna og Erlu út að borða. Héldum á Thorvaldsens (sem er rétt hjá Amagertorv) og átum okkur smekkfull af alls konar góðgæti.

Við Gunzo hentum okkar í froskalappirnar á meðan hinir fengu sér andalifur og blómkálssúpu. Allir fengu sér svo kálfasteik í aðalrétt. Froskarnir voru bara ferlega góðir, komu skemmtilega á óvart. Svolítið eins og kjúlli en samt ekki. Kálfurinn var líka stórfínn, nokkuð ljóst að þar var ekki sjálfdautt kvikindi á ferð... ;)

Er annars bara í góðum fíling að fara að vinna (já, núna, klukkan 23:43), no rest for the wicked (eða lazy, man aldrei hvernig þetta var). En heppilega er þetta allt að klárast, ætla að taka mér gott frí eftir hádegið á morgun! :D

mánudagur, janúar 16, 2006

Prófdagurinn mikli!

Jæja! Þá er Þórunn farin af stað í prófið mikla og ég er í fyrsta skipti í langan tíma bara einn heima að vinna. Ágætis tilbreyting, get ekki sagt annað. Hún var orðin töluvert spennt og stressuð, eðlilega, búin að sitja yfir bókunum í næstum hálft ár núna og svo eitt sex tíma próf sem ákveður hvort hún hafi lesið það nógu vel. Svona er þetta víst...

Einhver (lesist bróðir minn) var að spyrja um hin ýmsu gælunöfn sem ég hef haft um ævina. Kannski er bara ágætt að ég setji saman smá lista.
  • Laddi: Þetta þekkja allir og þarf varla að tala um það frekar
  • Tóti: Var víst kallaður þetta bæði í grunnskóla og í Versló (bekkjarfélagar mínir þar neituðu alfarið að kalla mig Ladda (að vísu er Gulli eitthvað farinn að draga í land með það núna)) og það eru enn til þeir aðilar sem kalla mig aldrei neitt annað (Jonni og Óli Þór t.d.)...
  • Tósi: Grímur Jónsson var í góðu flippi einhvern daginn og ákvað að ég þyrfti nýtt gælunafn, þetta var afraksturinn. Þórunn fékk meira að segja nýtt líka. Hann og Svana kalla okkur núna Tósa og Tósu...
  • Þóttli: Já, einhvern tímann var þetta það 'heitasta' í bransanum, var kallaður þessu í grunnskóla af sumum (þó alls ekki öllum). Var aldrei neitt hrifinn af þessu en það er þó skárra en...
  • Þórstli: Veit ekki hvernig þetta kom til og var aldrei sáttur við það. Heppilega dó það jafn hratt út og Spice Girls...
  • Lubbi: Mamma kallaði mig alltaf Lubba í fleiri fleiri ár þegar ég var yngri, hef klippt mig síðan þá...
  • Bubbi: Enginn nema bara Dói sem hefur kallað mig Bubba, Bubbi bróðir alltaf hress!
  • Prumpi: Nei, heyrðu, var aldrei kallaður Prumpi! Allavega aldrei opinberlega...
  • Litli ljóti: Heppilega er nú bara ein manneskja sem kallar mig þessu miður fallega nafni, það er hún 'stjúpamma' mín. Heppilega kallar hún Dóa bróðir þetta líka ;)
  • Stubbur: Fyndið með svona nöfn, sérstaklega þegar maður fær þau í andlitið frá aðilum sem eru nánast dvergar að vexti. You know who you are! (ef það er eitthvað að fara á milli mála þá er ég að tala um Guðrúnu Lilju frænku mína)

That's it! Ef einhver man eftir fleiri gælu-/ónöfnum þá endilega láta mig vita...

sunnudagur, janúar 15, 2006

Sunnudagssæla...

Þeir sem þekkja mig vita að ég get verið svolítið latur stundum (var oft kallaður Laddi lati í boltanum í gamla daga t.d.). Því er það meira en við hæfi að ég skuli eiga 'letibuxur'! Svei mér þá ef þetta eru ekki bara uppáhaldsbuxurnar mínar. Ætla jafnvel að ganga svo langt og segja að þetta sé sennilega sú flík sem ég held mest uppá. Þið vitið hvað ég er að tala um, mjúkt bómullarefni, ca. 1-2 númerum of stórar, engan veginn hæfar almenningi! Hef eytt töluverðum tíma undanfarið í téðum buxum því að ef maður er að vinna heima í stofunni eins og ég, þá er svona 'letigalli' eina vitið...

Við hjónin erum meira að segja saman í þessum 'letibuxnapakka'. Ekki svo að skilja að við séum bæði í einhverri leti, nei, aldeilis ekki. Hún er á fullu að lesa fyrir próf (sem er á morgun btw) og ég á fullu að vinna (meira að segja á sunnudegi (ekki segja ömmu samt)). Og þegar 'ástandið' er svona á heimilinu þá er sko reynt að hafa það eins gott og hægt er til að reyna að vega upp á móti leiðindunum við það að þurfa að læra/vinna. Gos, snakk, nammi, it's all good! ;)

Á morgun gerist svo skrýtinn hlutur, ég verð einn heima megnið af deginum í fyrsta skipti í ár! Ætla að halda uppá það með því að gera nákvæmlega það sama og alla aðra daga (nema einstaka laugardaga og sunnudaga), vinna...