fimmtudagur, mars 09, 2006

Er strax kominn fimmtudagur?!?

Magnað hvað tíminn er alltaf fljótur að líða. Mér finnst eins og það hafi verið janúar fyrir nokkrum dögum (sem er að vísu rétt því febrúar er svo stuttur). En það er allavega kominn 9. mars og farið að styttast í vorið hérna í Kaupmannahöfn, þó fyrr hefði verið...

Vil byrja á að óska Jonna félaga til hamingju með sigur Arsenal í gær. Hefði nú sennilega ekki trúað því ef einhver hefði sagt mér það í upphafi tímabils að Arsenal yrði eina enska liðið í átta liða úrslitum. Að sama skapi óska ég Liverpool aðdáendum innilega til hamingju með að vera lélegasta sóknarlið í heimi. Magnað hvað þeir eru slakir á toppnum, held svei mér þá að ég gæti náð að smella inn fleiri mörkum heldur en þessar sultur sem þeir eru með þarna í liðinu! :D

Við Jonni erum annars að vinna hérna heima hjá mér í dag. Það er æfing hjá okkur í fótboltanum á eftir og þar sem hún er í bakgarðinum hjá mér þá þótti okkur tilvalið að hann kæmi bara hingað og ynni í dag. Ætlum á eftir að henda okkur í Amager Center þar sem Jonni ætlar loksins að kaupa sér takkaskó, kominn tími til! Þetta verður annars dagur hlaðinn hreyfingu því að það er líka handboltaæfing í kvöld og að sjálfsögðu mæti ég þar líka. Veitir víst ekki af allri þessari hreyfingu... ;)

miðvikudagur, mars 08, 2006

Bikarmeistari!!!

Sjibbí!!! Að hugsa sér að ég skuli hafa verið að kvarta í gær yfir því að missa af fótboltaæfingu og af leikjunum í Meistaradeildinni! Í staðinn fékk ég að spila handbolta með Guðrúnu og vinna bikarmeistaratitil. Eftirá að hyggja var það eiginlega bara miklu skemmtilegra!

Þetta var sérstaklega gaman í ljósi þess að mér tókst að skora tvö mörk og fiska víti á lokamínútunum og leggja þar með mitt af mörkum til að landa sigrinum. Það mætti jafnvel segja að ég hafi ráðið úrslitum í leiknum (svona óbeint) en ég get auðvitað ekki sannað það á nokkurn hátt. Þið verðið þá bara að taka mig trúanlegan... ;)

Og í þokkabót féll Chelsea úr keppni í Meistaradeildinni og hryggir það mig afskaplega lítið, sérstaklega þar sem ég hef alltaf verið dyggur Barcelona aðdáandi (á meira að segja búning). Svo vona ég bara að Liverpool sýni sömu 'færni' fyrir framan mark andstæðinganna í dag og þeir hafa sýnt undanfarna leiki og detti þar með líka út. Þá er vikan algjörlega fullkomnuð!

þriðjudagur, mars 07, 2006

The agony of choice...

Var farinn að undirbúa mig sálfræðilega undir svaðalega fótboltaæfingu núna seinnipartinn þegar ég fékk SMS frá Hauki handboltaþjálfara. Hann var víst svo hrifinn af frammistöðu minni um helgina að hann bara varð að fá mig til að vera með í leik í kvöld (sem er að vísu úrslitaleikur í bikarkeppninni). Og þar sem ég er skáti mikill og 'ávallt viðbúinn' þá skoraðist ég að sjálfsögðu ekki undan þessu kalli hans og því verð ég að setja knattspyrnuiðkun á ís fram að næstu æfingu og fara að undirbúa mig undir handboltann.

Að vísu er kannski rétt að það komi fram að það eru þrír meiddir síðan í leiknum á sunnudaginn þannig að ég er meira svona uppfylliefni í liðið heldur en máttarstólpi. En það er samt alltaf fínt upp á sjálfstraustið að vita að maður geti gert eitthvað gagn, get t.d. fyllt á brúsana og klappað þegar við skorum og svona... ;)

Annars er þessi leikur á versta tíma því að þetta þýðir að ég missi af stórum hluta af Barcelona vs. Chelsea í Meistaradeildinni. Þetta gæti orðið afskaplega skemmtileg vika, United fann Wigan afar óverðskuldað í gær í uppbótartíma (og gleðst ég að sjálfsögðu yfir því) og svo gætu bæði Liverpool og Chelsea dottið út úr Meistaradeildinni (og ég verð síðasti maðurinn til að gráta það). Ætla, aldrei þessu vant, svo að halda með Arsenal á móti Real Madrid, það styðja víst allir Davíð í viðureign hans við Golíat...

mánudagur, mars 06, 2006

Dunuone Latine loquebar?

Verð að byrja á því að viðurkenna að ég eiginlega gleymdi að henda inn færslu í gær. Ekki það að ég hafi verið svona rosalega upptekinn við eitthvað annað, ætlaði bara alltaf að gera það aðeins seinna og að lokum er aðeins seinna orðið í dag. Skiptir í sjálfu sér ekki nokkru einasta máli, ekki eins og ég hafi frá rosalega miklu að segja hvort eð er... ;)

Fengum Vilborgu, Sóley og Margréti Nótt í kaffi hérna á laugardaginn. Þar sem við hjónin erum ákaflega góðir gestgjafar þá tókum við okkur til og bökuðum, Þórunn bakaði bollur en ég bakaði súkkulaðibitaköku. Afganginn (af kökunni þ.e.) tókum við svo með til Runa og Heiðrúnar sem hringdu og buðu okkur í pizzu með stuttum fyrirvara. Var eiginlega ágætt því við nenntum ekki að standa í eldamennsku. Runi er líka nokkuð nettur pizzabakari þannig að þetta var win-win fyrir alla hlutaðeigandi. Horfðum svo á American Idol með þeim og skemmtum okkur stórvel yfir Randy, Paulu, Simon og heimsku tvíburunum (þeir sem eru að horfa á season 5 vita um hverja ég er að tala)...

Fór í gær að horfa á leik í handboltanum. Haukur handboltaþjálfari sagði mér að taka með mér dót til öryggis en ég gerði nú bara ráð fyrir að geta horft á þetta úr áhorfendastúkunni. En þegar til taks kom þá var Gummi línumaður eitthvað slappur (hafði víst eytt nóttinni í að taka út lestarkerfið í Kaupmannahöfn, sofandi...) þannig að ég vippaði mér bara í búning og hljóp í skarðið. Hefði svo sannarlega óskað að geta sagt frá því að ég hafi verið hetjan og skorað sigurmarkið og bla bla bla en það var víst ekki svo gott. Þetta endaði með stóru og miklu tapi fyrir frísku Gribben liði sem tók Guðrúnarmenn hreinlega í bakaríið í þessum leik. Get þó allavega sagt að ég hafi ekki verið versti maður vallarins...

Og þar sem veðrið er manni gríðarlega hugleikið þessa dagana þá fannst mér við hæfi að henda mynd af 'veðrinu' eins og það er núna. Glöggir sjá að fyrir neðan er svo veðurhorfur næstu daga. Framundan er semsagt frost og meiri snjókoma. Hvar var þetta veður um jólin þegar ég bað um það?!?!?