laugardagur, apríl 08, 2006

Vorhret á glugga

Dettur helst í hug kvæðið eftir Halldór Laxness núna um maístjörnuna, ekki af því ég er svo mikill kommúnisti eða eitthvað álíka heldur vegna þess að rigningin (og jafnvel haglél) er þessa stundina að berja á gluggana hjá okkur. Svo sannarlega vorhret ef það er til einhver lýsing á því á annað borð. Það er varla að maður nenni nokkrum hlut þegar veðrið er svona fúlt, sem er einmitt það sama og ég hef verið að gera í allan dag... ;)

Eins og ég sagði frá í gær þá komu Jonni og Erla hérna í gærkvöldi með Guðjón Inga í farteskinu (já, og Sigríður kom líka). Hann var víst eitthvað pínu feiminn fyrst eftir að þau komu en var fljótur að gleyma því og tók upp sína vanalegu hegðun, okkur öllum til mikillar ánægju og gleði (er að meina þetta sko). Ótrúlega gaman af þessu litla pjakk, var meira að segja að hjálpa mér við að raða í geisladiskahilluna (ekki í stafrófsröð þó, sveiattan). Eftir að þau voru farin horfðum við svo á Dýrlinginn með Val Kilmer og Elisabeth Shue, dýrlingurinn klikkar nú sjaldan...

Þórunn er svo búinn að sitja sveitt í allan dag við að skrifa B.S. ritgerðina sína sem hún er víst að leggja lokahönd á þessa dagana. Á meðan dúndraði ég í þvottavél og hef setið við tölvuna að slæpast í allan dag. Í kvöld ætlum við svo að gera okkur dagamun og kíkja í bæinn og fá okkur eitthvað í gogginn, spurning hvort veðrið komi í veg fyrir það samt. Nú annars verðum við bara heima og kíkjum á American Idol og kannski einn eða tvo Friends þætti, svona til tilbreytingar... ;)

föstudagur, apríl 07, 2006

Heimsfrægur á Íslandi!

Kannski spurning um að draga aðeins í land með fyrirsögnina, en samt, einhvern veginn verður maður að fanga athygli lesenda sinna... ;)

Var allavega að frétta það í gær að þetta tómstundargaman mitt (þ.e. að blogga um þetta lítilfjörlega líf mitt) er orðið að skemmtiefni í hinum ýmsu boðum á Íslandi! OK, kannski gróft að segja ýmsum því það var víst bara eitt boð, fjölskylduboð Þórunnar megin. En hvað um það, þetta raus mitt þykir víst það merkilegt og skemmtilegt (vona að það hafi verið ástæðan allavega) að hluti af því var lesinn upp fyrir þá sem voru mættir í boðið! Í dag Ísland, á morgun, tjah, heimurinn?!? :D

Pabbi hennar Þórunnar fór aftur til Íslands í dag en skildi eftir handa okkur tvö páskaegg númer 4 frá þeim kumpánum Nóa og Siríus. Hann var líka svo mikill öðlingur að drösslast með heilt lambalæri með sér og að auki blöndu af ýmiskonar íslensku súkkulaði (í viðbót við páskaeggin semsagt). Það verður semsagt íslenskur páskamatur hjá okkur þetta árið. Já, kannski Sigríður fái að mæta líka, en bara ef hún er stillt og prúð... ;)

Jonni og Erla koma svo í mat hérna á eftir (með Giggs með sér væntanlega). Ætla að taka mig til að galdra fram pizzur a la Laddi, það hefur enginn kvartað yfir þeim enn (kannski bara fyrir kurteisissakir samt). Helgin framundan lítur vel út, byrjað að hlýna og sólin farin að skína, United að keppa við Arsenal á sunnudaginn (hittingur á Shamrock fyrir þá sem vilja) og dymbilvikan svo að byrja í næstu viku.

fimmtudagur, apríl 06, 2006

Heima hjá Sigríði

Sit hérna í 'íbúðinni' hennar Sigríðar á 'Orkubókinni' hennar að henda inn smá færslu. Þar sem faðir hennar er hérna í Kaupmannahöfn á vegum vinnunnar bauð hún honum og okkur hjónunum í mat, því faðir hennar Sigríðar er víst líka faðir hennar Þórunnar og þar með tengdafaðir minn! Svona geta hlutirnir verið tengdir... ;)

Kom hérna beint af æfingu sem fer í annála, ekki fyrir færni, tækni og góðan leik heldur frekar fyrir það hversu allir voru svakalega þreyttir á eftir. Það getur nefnilega tekið töluvert á að hlaupa í tvo tíma í rennblautu grasi, sérstaklega þegar maður er ekki í sína allra besta formi. Ekki bætti úr skák að við þurftum svo að hlaupa út á lestarstöð líka þannig að þegar ég var kominn í lestina var ég kominn með nettan krampa í fæturna. En það er víst á hreinu að maður er að fá eitthvað út úr öllum þessum hlaupum (eða ég vona það)...

Við Jonni erum annars að fá lausn í skrifstofuvandann alræmda. Eins og þeir sem til þekkja vita þá höfum við félagarnir verið skrifstofulausir síðan í desember og ég hef því verið að vinna heima síðan þá. Jonni gat að vísu troðið sér inn hjá Glitni (fyrrum Íslandsbanka) en það hjálpaði mér ákaflega lítið. En nú er Gunni framkvæmdastjóri (idega) víst búinn að rigga til fyrir okkur plássi hjá Kraftvaerk sem eru með aðsetur á Vesterbrogade 74, fimmtu hæð, á besta stað í bænum. Við megum semsagt mæta þangað með allt okkar hafurtask þriðjudaginn 18. apríl. Verður fínt að losna úr 'prísundinni', þá hættir Þórunn kannski að kvarta yfir að ég sé ekki búinn að vaska upp þegar hún kemur heim úr skólanum... :D

miðvikudagur, apríl 05, 2006

Hælasár

Í annað sinn á þessu ári hefur mér tekist að klikka á því að gera jafn einfaldan hlut og að taka lest/metró/strætó. Var semsagt á leiðinni á æfingu í gær og var dálítið seinn fyrir. Kem á Nørreport með metró og sé á tímatöflunni að það eru 2 mínútur í lestina sem ég þarf að taka áfram til Åmarken. Hleyp því upp á pall og sé þá að á sporinu stendur lestin og bíður eftir mér. Stekk upp í hana og tek upp símann og hringdi í Jonna sem hafði einmitt ætlað að hitta mig í lestinni (eða öllu heldur á Nørreport), sigri hrósandi yfir að hafa rétt náð lestinni...

Um leið og Jonni svarar þá fatta ég að það er eitthvað einkennilegt í gangi því lestin var farin af stað en samt heyrði ég í símanum hljóðið sem heyrist þegar hurð er að fara að lokast sem hurðin í lestinni minni var löngu búin að gera. Jonni tjáir mér að hann hafi verið að stíga upp í lestina og ég lít því á töfluna sem sýnir næstu stöðvar. Sjónin sem blasti við mér var ekki skemmtileg, ég hafði nefnilega farið upp í rétta lest en í vitlausa átt! Og þar sem þetta var S-tog þá þýddi það í rauninni að ég þyrfti að bíða í 20 mínútur eftir næstu lest. Fyrir vikið kom ég 15 mínútum of seint á æfingu í staðinn fyrir að koma á réttum tíma. Súrt en kennir manni kannski þá lexíu að vera tímanlega í því þegar maður er að nota almenningssamgöngurnar hérna í Köben! :D

Æfingin var annars stórskemmtileg, blautt gras og mikill hraði. Eina var að ég var að prófa nýju skóna í fyrsta sinn og fyrir vikið voru þeir dálítið stífir. Og auðvitað fékk ég hælsæri af þeim (ekki samt hælsæri því nuddið varð aðeins ofar, á hásininni) og þarf því að redda mér second-skin plástri fyrir næstu æfingu. En annars voru skórnir að virka mjög vel, góð kaup í þessu...

þriðjudagur, apríl 04, 2006

Hringdans?!?

Þar sem sunnudagurinn var ákaflega tíðindalítill þá fannst mér réttast að vera ekkert að þreyta ykkur með lestri á engu. Slíkur lestur gæti þó verið ákaflega fljótafgreiddur, því það tekur væntanlega enga stund að lesa engan texta, ekki satt? ;)

Annars var bara dæmigerður vinnudagur í gær hjá okkur báðum því nám er víst líka vinna (eða það er allavega alltaf verið að hamra á því). Eftir næstum 12 tíma vinnudag þá héldum við hjónin í vikulega salsakennslu og bjuggumst við því að læra fleiri spor sem við gætum tekið í næsta partýi. How wrong we were...

Þegar upphitun var að baki kom í ljós ákveðið vandamál. Af ellefu aðilum sem mættir voru í kennsluna (með kennaranum) voru bara þrír karlmenn. Því var brugðið á það ráð að taka svokallaðan hringdans þar sem dansað er í hring og sífellt er verið að skipta um dansfélaga. Kennarinn (sem er kona) tók að sér hlutverk karlmanns og einnig önnur fórnfús kvennsa. Svo var byrjað á hringdansinum...

Kannski er ég orðinn allt of vanur að dans við Þórunni eingöngu, en þetta var allavega töluvert furðuleg upplifun. Sérstaklega var erfitt að dansa við sænsku kvennsuna því hún er sennilega tveir metrar í það minnsta og ekki alveg hlaupið að því fyrir mig að snúa henni í einhverja hringi og krúsídúllur. Önnur, sem er há og AFSKAPLEGA grönn, var svo brothætt (í útliti) að ég þorði varla að stýra henni í nein spor, var hræddur um að hún myndi bara hrynja í sundur við minnsta tog. Annars var þetta ágætis tilbreyting og bara þónokkuð skemmtilegt. Ef ég fæ að ráða þá vil ég frekar bara dansa við Þórunni einvörðungu...

Svo er æfing í fótboltanum á eftir, fyrsta æfingin (mín) á grasi. Get þá prófað nýju takkaskóna sem ég keypti um daginn. Vona bara að skórnir skapi (leik)manninn! :D

sunnudagur, apríl 02, 2006

Post wedding

Vaknaði frekar seint í morgun og hef verið að vinna síðan. Fórum seint að sofa í gær þannig að hvíldin var kærkomin. Vorum ekki komin heim fyrr en rúmlega tvö þannig að þetta voru fínir átta tímar sem ég náði í svefn, dugar ekkert minna, sérstaklega ekki á sunnudegi... ;)

Vorum semsagt í brúðkaupi í gær hjá Hönnu Gunnu og Ómari. Ég fór að vísu fyrr um daginn að keppa í handbolta, það var ekki för til frægðar. Töpuðum með einu marki í leik þar sem ég gerði nákvæmlega ekki neitt, ekkert mark, ekkert færi, engar brottvísanir. Eigum leik á þriðjudaginn sem sker úr um hvort við komumst í annan leik á sunnudag. Ef báðir leikir vinnast þá förum við upp um deild, annars verðum við áfram í deildinni sem við erum í núna. Kemur bara í ljós hvernig þetta fer...

En aftur að brúðkaupinu. Mættum rétt fyrir fimm í St. Pauls Kirke þar sem vígslan fór fram. Brúðurinn mætti stundvíslega og allt fór eins og það átti að fara, báðir aðilar tóku að eiga hinn og allir voða sáttir. Verst að það heyrðist lítið sem ekkert í prestinum en hann var örugglega ekki að segja neitt merkilegt hvort eð er. Eftir vígsluna var rúta til reiðu að flytja gestina upp í Hellerup þar sem veisla var haldin.

Veislan var bara helvíti fín og mikið étið og drukkið. Kakan var sérstaklega góð og sé ég mest eftir því að hafa ekki fengið mér aðra sneið en ég var bara of saddur til þess. Fullt af fínum skemmtiatriðum og þar fór fremst í flokki Þórunn ásamt saumaklúbbnum þar sem þær tróðu upp með söngatriði og tóku smá Sylvíu Nótt með 'aðlöguðum' texta sem hæfði tilefninu. Slógu rækilega í gegn og eru menn þegar farnir að tala um plötuútgáfu og túr um Færeyjar.

Eftir dans og gleði þá skutlaði ég brúðhjónunum á hótel á bílnum þeirra og keyrði svo á honum heim. Það gekk ótrúlega vel, villtumst ekkert á leiðinni. Bara nokkuð gaman að keyra bíl aftur eftir smá hvíld. Hanna Gunna og Ómar komu svo áðan að sækja bílinn og voru mjög hress með gærdaginn, brostu allavega hringinn þegar þau komu... :D

Þarf svo að klára verkefni fyrir morgundaginn þannig að ég sé fram á langan vinnudag, jafnvel fram á nótt, læt vita á morgun hvernig það fer. Þangað til þá, peace out!