Hringdans?!?
Þar sem sunnudagurinn var ákaflega tíðindalítill þá fannst mér réttast að vera ekkert að þreyta ykkur með lestri á engu. Slíkur lestur gæti þó verið ákaflega fljótafgreiddur, því það tekur væntanlega enga stund að lesa engan texta, ekki satt? ;)
Annars var bara dæmigerður vinnudagur í gær hjá okkur báðum því nám er víst líka vinna (eða það er allavega alltaf verið að hamra á því). Eftir næstum 12 tíma vinnudag þá héldum við hjónin í vikulega salsakennslu og bjuggumst við því að læra fleiri spor sem við gætum tekið í næsta partýi. How wrong we were...
Þegar upphitun var að baki kom í ljós ákveðið vandamál. Af ellefu aðilum sem mættir voru í kennsluna (með kennaranum) voru bara þrír karlmenn. Því var brugðið á það ráð að taka svokallaðan hringdans þar sem dansað er í hring og sífellt er verið að skipta um dansfélaga. Kennarinn (sem er kona) tók að sér hlutverk karlmanns og einnig önnur fórnfús kvennsa. Svo var byrjað á hringdansinum...
Kannski er ég orðinn allt of vanur að dans við Þórunni eingöngu, en þetta var allavega töluvert furðuleg upplifun. Sérstaklega var erfitt að dansa við sænsku kvennsuna því hún er sennilega tveir metrar í það minnsta og ekki alveg hlaupið að því fyrir mig að snúa henni í einhverja hringi og krúsídúllur. Önnur, sem er há og AFSKAPLEGA grönn, var svo brothætt (í útliti) að ég þorði varla að stýra henni í nein spor, var hræddur um að hún myndi bara hrynja í sundur við minnsta tog. Annars var þetta ágætis tilbreyting og bara þónokkuð skemmtilegt. Ef ég fæ að ráða þá vil ég frekar bara dansa við Þórunni einvörðungu...
Svo er æfing í fótboltanum á eftir, fyrsta æfingin (mín) á grasi. Get þá prófað nýju takkaskóna sem ég keypti um daginn. Vona bara að skórnir skapi (leik)manninn! :D

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home