Dagur fyrir laugar
Úff! Ekki gekk þessi æfingarleikur eins og til var ætlast. Honum lauk með leiðinlegu 4-1 tapi fyrir frískum Baununum. Samt var alveg ótrúlegt hvað við klúðruðum mörgum dauðafærum í þessum leik. Held að þeir hafi þrisvar sinnum bjargað á línu og við klúðrar fjórum eða fimm öðrum dauðafærum. Í þokkabót fengu þeir ekki nema þrjú alvöru færi en skoruðu samt fjögur mörk. Eiginlega alveg magnað. En ef við lítum á björtu hliðarnar þá örlaði á góðu spili svona inn á milli...
Eins og sönnum Íslendingi sæmir hef ég tekið saman góðan 'afsökunarlista' fyrir tapinu (annað væri lélegt):
- Völlurinn var slæmur
- Léleg birtuskilyrði
- Boltinn loftlaus
- Við slakir og í lélegu formi
- Dómarinn blindur
- Hitastigið
Ef listinn er skoðaður sést að það er nánast allt þarna sem hafði líka áhrif hitt liðið þannig að það eina sem stendur eftir er að við vorum slakir og í lélegu formi. Við verðum því bara að girða okkur í brók og reyna að laga það sem úrskeiðis fór fyrir fyrsta leik sem er eftir um þrjár vikur. Fall (eða tap) er fararheill!
Haukur handboltaþjálfari hafði svo samband í gær og plataði mig til að keppa í handbolta á eftir sem ég ætla að sjálfsögðu að gera. Svo erum við boðin í mat til Stefáns og Sóleyjar (og Margrétar Nætur/Nóttar). Ætla víst að kokka upp indverskan fyrir okkur hjónin (já, og Sigríði líka, það þarf víst að koma fram). Stefnir í góðan dag, sjáum til eftir handboltaleikinn samt... ;)

2 Comments:
Var búinn að segja ykkur að vera ekki að fá sóknarþjálfarann sem Liverpool henti í síðustu viku :)
Excellent, love it! » »
Skrifa ummæli
<< Home