þriðjudagur, mars 28, 2006

Mér finnst rigningin góð!

Við erum víst komin með nýja vekjaraklukku. Hún heitir Ævar Ingólfsson og er sjö mánaða. Ævar þessi er sonur Sólu og Ingós og er gestur okkar hérna í kotinu fram á miðvikudag. Honum finnst greinilega fínt að vakna snemma og ætla ég ekkert að kvarta yfir því. Pollinn er svona líka eldhress og skemmtilegur og hjalar eins og hann fái borgað fyrir. Þetta semsagt rekur mann á lappir sem er kannski bara hið besta mál... :D

Sóla kom semsagt á sunnudaginn og fær að gista hjá okkur því hún er að fara með okkur í brúðkaup um næstu helgi hjá Hönnu Gunnu (Handgun) og Ómari. Ingó kemur svo á föstudaginn og slæst í lið með okkur ásamt megninu af saumaklúbbnum hennar Þórunnar. Það verður sennilega glatt á hjalla í brúðkaupinu, en það er hinsvegar saga fyrir sunnudaginn...

Fórum í dans í gær sem væri ekki frásögum færandi ef ekki hefði verið fyrir það að á leiðinni heim (við nýstigin á fákana) þá byrjaði þessi líka úrhellisrigning. Það var ekki þurr þráður á okkur þegar við komum inn úr dyrunum! Fötin fóru bara beint á snúruna og við í heita sturtu til að reyna að koma smá yl í kroppinn aftur! :D

En þetta þýðir auðvitað bara eitt, vorið er loksins komið! Hitinn hefur rokið upp og er núna í kringum 10 gráðurnar og á víst að haldast þannig áfram. Alveg magnað hvernig þetta gerist hérna, einn daginn er vetur og svo eins og hendi væri veifað er komið vor, bara einn, tveir og þrír. Ætla heldur ekki að kvarta yfir því enda löngu orðið tímabært. Verst að nú þarf maður að taka fram pollagallann og gúmmístígvélin (en samt ekki)...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home