Hej hej Parken... :'(
Mikið getur maður orðið svekktur þegar skýjaborgirnar sem maður hefur dundað sér við að byggja undanfarna daga hrynja. Þá er ég auðvitað að tala um leik FC Köbenhavn og Manchester United sem verður á Parken 1. nóvember næstkomandi. Í dag klukkan 10:00 (fyrir hálftíma síðan) áttu miðarnir að fara í sölu. 10-15 mínútum síðar segir billetlugen.dk að það sé búið að selja alla miða og fólk geti náðarsamlegast skráð sig á biðlista. Ég komst ekki einu sinni lengra en skrefið sem leyfði mér að velja fjölda miða. En vonandi fáum við miða í gegnum biðlistann, annars verð ég bara að gera mér það að góðu að horfa á þetta í sjónvarpinu... :(
Annars var gærdagurinn helvíti nettur! Fórum eldsnemma í gærmorgun og sóttum okkur bíl á 'bílaleigu' sem er staðsett bókstaflega í næsta húsi. Þegar ég segi 'bílaleiga' þá meina ég að þetta er fyrirtæki sem leigir út bíla, ekkert mikið meira en það og bílarnir endurspegla það á vissan hátt. Engar glæsikerrur eins og hjá Hertz og Avis en fjandakornið nógu gott fyrir okkur að minnsta kosti. Á þessari 'lúxusdrossíu' (sem var Fiat Punto) keyrðum við (Þórunn keyrði, ég sá um kortið) með Sigríði alla leið í Ishøj til að kaupa okkur teppi og lampa (og eitthvað smádót að auki) í ILVA og fórum svo þaðan í IKEA sem er þar skammt frá þar sem við keyptum eitthvað meira smálegt og fengum okkur sænskar kjötbollur í hádegismat eins og IKEA einum sæmir.
Því næst tókum við stefnuna á Fields þar sem við gerðum slæma ferð í Bilka, keyptum tvö lök og fengum að bíða í hálftíma í röð til að fá að borga þau. Frábær þjónusta þar á ferð...
Í gærkvöldi var svo aðalfundur ÍF Guðrúnar þar sem farið var í gegnum venjuleg aðalfundarstörf og ný stjórn kosin. Skemmst er frá að segja að ég tók að mér að vera gjaldkeri félagsins næsta árið í það minnsta. Að auki kemur Gummi Þorkels (Prumminn með meiru) sterkur inn í stöðu vinstri formanns og Jón Auðunn smellir sér í bakvörðinn í varaformanninn. Það er því ljóst að það eru bjartir tímar framundan hjá Guðrúnu með slíka eðalstjórn! ;)
