Er farinn að sjá einn góðan kost við að láta nokkra daga líða á milli pósta, þá hef ég frá miklu meira að segja í einu. Gallinn er hinsvegar sá að ég upplifði það rétt í þessu að muna ekki hvað ég var að gera á föstudagskvöldið! Þurfti nokkrar mínútur í smá heilaplokk til að muna að Sigríður bauð okkur Þórunni í mat, í kjúkling í kókos með hrísgrjónum og ný(of)bökuðum bollum. Í eftirrétt hafði hún svo hent í eitt stykki bananabrauð. Fínt föstudags feast!
LaugardagurLaugardagurinn var ráðgerður í lærdóm (hjá Þórunni) og vinnu (hjá mér). Vorum byrjuð bara nokkuð snemma, ég ryksugaði líka alla íbúðina og þreif svo klósettið hátt og lágt. Um þrjúleytið komu Jonni, Runi, Heiðrún, Ástþór Ingi og Kristján Daði óvænt (og óboðin) í heimsókn. Þau höfðu hent sér í hjólaleiðangur og ákváðu að kíkja á okkur í leiðinni. Úr varð að ég fór svo bara með þeim heim til Runa og Heiðrúnar með viðkomu í Paradis (sem er besta ísbúð í heimi nb.). Ástþóri Inga tókst svo að slasa sig í ísbúðinni þannig að Runi fór með hann upp á slysó á meðan ég og Jonni flatmöguðum í sófanum hjá Runa og gláptum á gamla Friends þætti (sofnuðum báðir). Runi skilaði sér eftir netta bið með Ástþór Inga og var víst bara sendur heim með áminningu um að hætta að berja barnið (annað sinn í þessari viku sem þau fara með hann á slysó). Starfsfólkið þar er víst farið að sjá eitthvað pattern í þessu... ;)
Þórunn hjólaði svo og hitti okkur eftir að hún var hætt að læra og við elduðum saman og átum. Gláptum svo á American Idol og gripum svo í RISK sem Jonni keypti á dögunum. Tók okkur dálítinn tíma að muna reglurnar en það hafðist að lokum. Kláruðum þó ekki spilið en ég vil meina að ég hafi haft pálmann í höndunum þegar við hættum... :D
SunnudagurÍ gær var svo enn einn leikurinn í boltanum. Í þetta sinn var tekist á við BK Thor sem eru vaskir drengir úr Nørrebro (eða ghettó-inu). Þeir voru fyrir þennan leik með 12 stig eftir fjóra sigra og tvö töp þannig að ljóst að um hörkulið var að ræða. En þessi leikur var mjög eftirminnilegur og ekki síst vegna þess að í honum gerðist í fyrsta skipti eftirfarandi:
- FC Ísland hélt hreinu (þ.e. fékk ekki á sig mark) í fyrsta skipti það sem af er sumri (kominn tími til)
- FC Ísland fékk ekki eitt einasta spjald í þessum leik, sem er líka í fyrsta sinn á þessu tímabili
- Ég var fyrirliði liðsins í leiknum (í fjarveru Eika sem hefur farið fyrir liðinu af stakri prýði það sem af er)
Spilaði í hjarta varnarinnar með Gumma og eins og áður hefur komið fram þá fengum við ekki á okkur mark og spiluðum bara helvíti vel. Hinu megin á vellinum þá setti Jói örvfætti hinsvegar tvö mörk og tryggði okkur sanngjarnan 2-0 sigur. Beggi hafði það svo af að fiska einn í hinu liðinu útaf með rautt spjald eftir að sá hafði tekið illa upp þegar Beggi tæklaði hann (löglega) og réðst á hann og skallaði hann! Begga varð að vísu ekki meint af en sá er skallaði fær nokkra leiki í bann fyrir þetta heimskulega athæfi. Eftir leikinn trónum við á toppnum en höfum þó spilað fleiri leiki en liðin í næstu tveimur sætum þannig að staðan gæti breyst eitthvað...
Í gærkvöldi var svo haldið á Øresundskollegíið þar sem tvö atriði voru á dagskrá:
- Pössun á Margréti Nótt á meðan Stefán og Sóley hentu sér í 'dinner-and-a-movie'
- Matur hjá Björgvin og Guggu
Krílið var bara tekið með í matinn þar sem þau búa á sama stað og höfðu þau skötuhjúin hent sér út og keypt pizzur hjá Ítalanum Massimo. Á eftir var boðið upp á Häagen-Dazs ís og að auki heimagert ítalskt sorbet (gert heima hjá Massimo, ekki af Björgvin og Guggu). Ég stakk svo af og skildi Þórunni og Sigríði (sem hafði líka mætt í herlegheitin) eftir með Margréti Nótt og fór heim og vann til miðnættis...