Að kemba hórurnar?!?
(Myndin hér til hægri tengist færslunni ekki á nokkurn hátt, er bara hér ykkur til yndisauka...)Verð að viðurkenna það að ég hef ekki verið neitt svakalega duglegur að fara niður á Vestergade eftir að Jonni flutti heim og Runi sagði upp sínu plássi. En ég er hinsvegar mættur hingað í dag og það er eiginlega bara stórfínt! Ekki það að ég sé feginn að losna við félagana, síður en svo, en það er hinsvegar ágætis tilbreyting frá stofuborðinu á Bremensgade, betri stóll hérna auk þess sem 20" skjárinn spillir ekki fyrir, hvað þá nýja Apple lyklaborðið sem Jonni gaf mér, it's all good! Verð kannski bara að fara að koma oftar... ;)
Annars hefur þetta bara verið ósköp venjuleg vika það sem af er. Hef að vísu verið helvíti duglegur að fara í ræktina, búinn að fara núna síðustu þrjá daga og hlaupið í öll skiptin og lyft í tvö, stefnan að verða helköttaður fyrir páska, massaður í rusl og tanaður í drasl. Spurning samt um að sleppa tönuninni, er víst ekkert sérlega hættulítið að fara í ljós hérna í Kaupmannahöfn þessa dagana... :O
Talandi um smáauglýsingar, af hverju sér maður aldrei svona smáauglýsingar í íslensku blöðunum?!? Þessar auglýsingar eru víst í boði sama þjóðfélagsins og færir okkur svona fréttir, hefðum alveg mátt hafa þetta í huga um daginn í handboltanum þegar helv.... kvendómarinn dæmdi okkur allt í óhag (að okkar mati).
Gimmi benti mér svo á nokkrar klippur af YouTube af þvílíkum gítarsnillingum að það hálfa væri nóg, hér er t.d. einn að taka Pink Floyd lagið Money á sérlega skemmtilegan máta. Svo er hann Naudo líka helvíti nettur og tekur hérna Angie, Total Eclipse of the Heart og Another Brick in the Wall. Spurning hvort þessir tveir kappar hafi orðið svona góðir af því að spila Guitar Hero...??? ;)
Og svona rétt í lokin, fyrir þá sem nenna ekki að vinna/læra, þá er hægt að skemmta sér stórvel í þessum leik... :D

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home