Sjö dagar til jóla...
Sá sjötti, Askasleikir,
var alveg dæmalaus. -
Hann fram undan rúmunum
rak sinn ljóta haus.
Þegar fólkið setti askana
fyrir kött og hund,
hann slunginn var að ná þeim
og sleikja á ýmsa lund.
- Jóhannes úr Kötlum
Ah, vika í aðfangadag! Það þýðir að það eru ekki nema þrír dagar í Íslandsferð okkar hjónakornanna! Mark your calendars, people, the Helgason's (eða kannski Juliusdottir's?!?) are coming to town (og Sankti Klás sennilega í leiðinni, frétti að hann væri á standby miða sama kvöld)... :)
Er búinn að vera eitthvað tuskulegur í dag, annars, með þrálát ónot í maganum og hef nánast ekki komið niður nokkrum bita í allan dag! Vona að ég sé ekki að lenda í einhverjum veikindum, ekki það að ferð á veðravítið Ísland er nú yfirleitt áskrift á allskyns pestir og krankleika á borð við sullaveiki og gin- og klaufa. Vonandi er þetta bara eitthvað tilfallandi eða bara afleiðing af öllu óhófinu um helgina... ;)
Enn og aftur fann ég grein/blogg sem gerir grín að þessari trúarumræðu sem hefur tröllriðið landanum undanfarið. Að þessu sinni er umræðuefnið 'verkleg kristinfræði'. Skal viðurkenna það að ég hefði verið töluvert áhugasamari um að læra kristinfræði í skóla hefði kennslan verið eitthvað á þessa leið. Þá hefði maður sennilega ekki sofið í tímunum og svindlað í prófunum eins og venjan var í gaggó (látið ekki svona, það gerðu þetta allir, líka kennarasleikjurnar!)... :D
Rakst á fyndna frétt í gær um drukkna ferðamenn í Leifsstöð. Ekkert fyndið við það í rauninni, en það sem mér fannst hinsvegar drepfyndið voru ummæli vaktstjórans í fríhöfninni sem sagði: „Það er ekkert vesen, en þeir eru búnir að drekka mikið. Þeir eru rólegir hérna frammi og það er einn og einn sofnaður - bara eins og við værum ef við værum í útlöndum..." Og þar hafið þið það, ástandið er semsagt bara svipað og þegar Íslendingar eru á ferð allsstaðar annars staðar í heiminum, false alarm!
Og hver sagði svo að Norðmenn væru ekki fyndnir eða sniðugir?!? Allavega tekst þeim hérna svei mér þá bara að vera bæði í einu! Þarf greinilega eitthvað að endurskoða álit mitt á þeim (eru samt ennþá upp til hópa leiðinlegir, ikke?). Ekki skil ég svo hvað þessu fólki gengur til! Get vel skilið að borga morðfjár fyrir miða á tónleikana ÁÐUR en þeir eru haldnir. En að borga morðfjár fyrir notaðan miða er sennilega með verri fjárfestingum sem maður getur gert...
...nema kannski að veðja á að þetta nýja myndband með Britney Spears hafi EKKI verið 'photoshop-að' í ræmur! Verst að ekki er hægt að laga til lagið og sönginn með Photoshop líka, þá værum við (og Britney væntanlega líka) að dansa... ;)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home