Thank you for nothing!
Í dag er þriðjudagur og það þýðir að það eru tveir dagar liðnir frá 'Glerplötusprengingunni miklu á Bremensgade 17' eins og ég kýs að kalla atvikið. Ástæðan fyrir því að ég nefni það aftur er að IKEA hefur ekki enn séð sóma sinn í því að hafa samband við okkur! Maður hefði nú haldið að svona stórt og virt fyrirtæki myndi líta það alvarlegum augum ef vara sem það framleiðir tekur allt í einu upp á því að springa í tætlur af engri sjáanlegri ástæðu og vildi rannsaka málið og e.t.v. innkalla vöruna ef í ljós kæmi að um alvarlegan framleiðslugalla væri að ræða. En þeim er víst nokk sama enda annálaðir fyrir einkar slæma þjónustu (nenna ekki einu sinni að setja saman vörurnar sínar sjálfir ;)) og kom í sjálfu sér ekkert á óvart. Ég ráðlegg bara öllum að halda sig fjarri hertu (eða kannski skertu?!?) IKEA gleri, aldrei að vita hvenær það 'gefur upp öndina'...
Í morgun var aftur orðið skaplegt fáksveður og því hafði ég engar afsakanir lengur fyrir að brúka ekki kvikindið til að selflytja mig í vinnuna. Verst var með helvítis rokið en ég lækkaði bara um gír og setti á rólega tónlist í iPod-num, ekkert að því að vera tvöfalt lengur að koma sér í vinnuna ef maður sleppur við að svitna eins og svín. Samt eitthvað rangt við það þegar eldgamlar kellingar bruna framúr manni á hjólum sem eru síst yngri en þær sjálfar, oh well...
Og fyrir ykkur sem eruð eitthvað morgunfúl þá get ég mælt með þessari síðu. Alltaf gaman þegar menn ausa úr skálum reiði sinnar yfir, tjah, öllu, sýnist mér! Kom mér allavega í gang í morgun! :D

