fimmtudagur, desember 07, 2006

Ég fékk jólagjöf...

...og líka afmælisgjöf í gær! Fékk símtal í gemsann minn rétt fyrir þrjú frá Þórunni þar sem hún tjáði mér að hún væri stödd fyrir utan skrifstofuna og ég ætti að taka saman mitt hafurtask og hitta hana þar. Þar sem ég er hlýðinn og góður eiginmaður þá gerði ég auðvitað eins og hún bað, smellti draslinu mínu í tösku og henti mér niður að hitta hana. Þar tjáði hún mér að hún ætlaði að ræna mér úr vinnunni, fara með mig í Jupiter og kaupa handa mér afmælis- og jólagjöf! Ég gat auðvitað ekkert annað sagt en já og takk og ég er því þessa stundina stoltur eigandi fáksins sem hægr er að sjá á myndinni hér til hægri (mitt er að vísu grænt)! :D

Ég var því mættur eldsnemma á skrifstofuna í morgun því að auðvitað varð ég að prófa hvernig fákurinn reyndist við að koma mér í vinnuna. Verð að segja að hann stóð sig með stakri prýði enda er þetta afahjól (bedstefarcykel) af bestu gerð (þar sem maður situr nánast upprættur) auk þess að vera með keðjuhlíf (sem er algjört must), bögglabera (fæ körfu (að aftan, að framan er gay) fljótlega), sjö gírum (svo ég geti farið eins hratt og hægt og ég vil) og innbyggð ljós þar sem framljósið er meira að segja með nýjustu útgáfu af dínamó sem er innbyggð í framhjólið og veitir ekkert viðnám (eitthvað break-through technology). Algjör snilld í alla staði og verður án efa mikið brúkað næstu dagana, vikurnar, mánuðina og árin!

"Eitthvað sem gaman er og gott að fá..."

miðvikudagur, desember 06, 2006

Jólaáhorfið

Eins og ég lofaði í gær þá hef ég sett saman lista með kvikmyndum (og að vísu einum sjónvarpsþætti) sem nauðsynlegt er að horfa á fyrir hver einustu jól, sumar meira að segja oftar en einu sinni. Og það þýðir ekkert að svindla neitt, annað hvort allar eða enga (og þá farið þið að sjálfsögðu í jólaköttinn)!

Í stafrófsröð er listinn eftirfarandi:
  • Bad Santa [2003]
    Billy Bob Thornton er virkilega vondur og sídrukkinn jólasveinn sem er í þokkabót þjófur og illmenni. Kolsvartur húmor af bestu gerð, rétt eins og jólamyndir ættu að vera ;)

  • Blackadder's Christmas Carol [1988]
    Eina 'kvikmyndin' á listanum sem er ekki kvikmynd. Rowan Atkinson fer á kostum (sem endranær) í hlutverki Ebenezer Blackadder sem lærir að það að vera vondur getur í raun verið gott. :)

  • Christmas Vacation [1989]
    Þessi var gerð þegar Chevy Chase var enn fyndinn og skemmtilegur (í dag er hann mest pirrandi og sorglegur). Jólamyndin með stóru J-i og ákveðnum greini og gjörsamlega ómissandi fyrir hver jól. Ef þú ætlar bara að horfa á eina jólamynd fyrir þessi jól, þá ÞARF það að vera þessi!

  • Die Hard [1989]
    Hvað er betra en að horfa á Bruce Willis slátra nokkrum þýskum glæpamönnum og bjarga þar með jólunum...?

  • Die Hard 2 [1990]
    ...tjah, nema kannski að sjá hann gera það aftur ári síðar á jafn dramatískan og spennandi hátt. Bruce Willis, konungur jólanna!

  • Home Alone [1990]
    Jólin eru rétti tíminn til að endurnýja kynnin við barnastjörnurnar og því er tilvalið að horfa á Macaulay Culkin (meðan hann var lítill og sætur) lúskra á óprúttnum innbrotsþjófum með öllum ráðum og dáðum (efast nú samt að þeir myndu lifa þetta af í 'alvörunni')...

  • Hot Pursuit [1987]
    Hefur nákvæmlega ekkert með jólin að gera (gerist að sumri til) en engu að síður ómissandi á öllum kvikmyndalistum. Mynd fyrir alla aldurshópa og árstíðir!

  • The Long Kiss Goodnight [1996]
    Kannski er ég svona bilaður en mér finnst spennumyndir ómissandi hluti af jólastemmningunni. Hér ættu allir spennufíklar að finna eitthvað fyrir sig því Geena Davis og Samuel L. Jackson plaffa niður 'vondu kallana' hægri vinstri og klikkja út með smellnum one-liner á eftir. That's a duck, not a dick!

  • Love Actually [2003]
    Ég varð bara að hafa þessa með enda snilldarmynd í alla staði, gleði, sorg, rómantík, jól. Fær hiklaust fimm vasaklúta af fjórum mögulegum.

  • The Nightmare Before Christmas [1993]
    Þessi hefur allt, dans, söng, hrylling og leirbrúður. Jói beinagrind stelur jólunum með smá ívafi...

  • The Santa Clause [1994]
    Er sennilega sá eini í heimi sem hefur gaman af þessari. Tim Allen verður jólasveinninn (með greini) eftir að hann óvart drepur fráfarandi sveinka (allt á smekklegan hátt, er PG mynd). Tilheyrandi ærsl og læti fylgja í kjölfarið...

  • Scrooged [1988]
    Síðust en svo sannarlega ekki síst er svo nútíma útgáfa af þessu annars klassíska ævintýri Charles Dickens. Bill Murray er hér í hlutverki Scrooge (heitir að vísu Frank Cross í myndinni) sem er óttalegur durtur en þrír draugar koma fyrir hann vitinu og allir eru syngjandi glaðir að lokum.

Nú er bara að taka fram spólusafnið, grafa upp gersemarnar, hella jólaöli í könnu, taka fram loftkökurnar, hjúfra sig undir teppi og glápa á gleðina þar til augun ætla út úr höfðinu á manni. Ég er allavega farinn út í búð að kaupa loftkökurnar...

þriðjudagur, desember 05, 2006

Jólafílingur!

Þar sem það eru ekki nema 19 dagar til jóla (með deginum í dag) þá er ekki úr vegi að koma sér í smá jólaskap. Ekki að það sé eitthvað mikið mál þar sem það er búið að skreyta úti um alla borg og ég sé einmitt 20 metra háa jólatréð á Ráðhústorginu á leiðinni í vinnuna. En þegar jól eru í nánd þá þarf að dusta rykið af jólalögunum góðu sem hafa legið í dvala frá því síðustu jól. Datt í hug að það væri kannski ráðlegt að búa til lista með 'bestu' jólalögunum sem væri þó ekki lengri en svo að hann myndi rúmast á einum 74 mínútna geisladiski (eða kannski 80 mín). Hér er afraksturinn.
  1. Last Christmas - George Michael [4:25]
    Var ekki einhvern tímann sagt að á jólum ættu allir að vera 'merry and gay'? ;)

  2. Ég hlakka svo til - Svala Björgvins [4:03]
    Kom víst út meðan Svala var enn ung og efnileg, í dag er hún auðvitað bara sorgleg en lagið er fínt engu að síður, ég hlakka allavega til! :D

  3. Baby, Please Come Home - U2 [2:20]
    Eina jólalagið (sem ég veit um) sem U2 hafa nokkurn tímann tekið, stórgott þó það sé nú kannski ekkert sérstaklega jólalegt...

  4. Christmas Collage - ??? [3:33]
    Fann þetta af rælni á Now! That's What I Call Christmas safnplötunni sem ég á víst í iTunes safninu mínu. Einstaklega skemmtileg blanda af gömlum sálmum og lögum.

  5. Ég fæ jólagjöf - Katla María [4:04]
    Ah, hvar væru jólin án Kötlu Maríu...

  6. Christmas in Hollis - Run D.M.C. [2:59]
    Engin skyldi jól halda án þess að hafa þau smávegis hip-hop. Stuðboltarnir í Run D.M.C. taka 'öðruvísi' jólalag og gera það með miklum stæl!

  7. Rockin' Around the Christmas Tree - Brenda Lee [2:06]
    Jólarokk af gamla skólanum, alltaf rokk og ról í kringum jólahrísluna.

  8. Christmas Vacation - Mavis Staples [2:53]
    Titillag samnefndrar jólamyndar sem er einnig gjörsamlega nauðsynlegt áhorf fyrir öll jól, verður sennilega bara betri með hverju áhorfinu!

  9. All I Want for Christmas - Spike Jones [3:09]
    Grínarinn Spike Jones þráir ekkert heitar um þessi jól en að fá aftur framtennurnar sínar, vonum að jólasveinninn verði honum hliðhollur þessi jólin...

  10. Let It Snow - Dean Martin [1:56]
    Dean-arinn klikkar aldrei og ég er líka alveg gjörsamlega sammála honum, myndi ekki fúlsa við smá snjókomu þessa stundina :D

  11. Sagan af Jesúsi - Baggalútur [4:15]
    Snilldarlag með snilldartexta, jólagleði eins og hún gerist best, eina sem vantar er maltið+appelsínið og loftkökurnar...

  12. Happy Christmas (War is Over) - John Lennon & Yoko Ono [3:34]
    Lennon óskar öllum gleðilegra jóla, árs og friðar, í bókstaflegri merkingu.

  13. Swiss Colony Beef Log - Eric Cartman [2:16]
    Eric Cartman er greinilega gríðarlegt jólabarn auk þess sem hann er fantagóður söngvari :D

  14. Kósíheit par exelans - Baggalútur [4:14]
    Baggalútsmenn kunna svo sannarlega að gera góð lög, hvort sem það eru jólalög, sumarlög eða fjárlög. Ef maður er ekki kominn með vatn í munninn eftir þetta lag þá er einhver átröskun í gangi (sem er btw líka í laginu) ;)

  15. A Fairytale of New York - Pogues [4:33]
    Í senn mjög jólalegt lag en jafnframt ótrúlega óviðeigandi en hvað er svosem betra en að eyða jólanótt í fangageymslum lögreglunnar með hinum rónunum...

  16. O Holy Night - Eric Cartman [1:56]
    Eric er mættur aftur og í þetta skiptið með lag sem allir þekkja (nema hann auðvitað). Þrátt fyrir grínið er hátíðleikastuðull ca. 7 á bilinu 0-10 sem gerir það að verkum að maður getur fengið smá gæsahúð við hæstu tónana (ólíklegt samt) ;)

  17. Peace On Earth/Little Drummer Boy - Bing Crosby & David Bowie [2:38]
    Þeir félagar í essinu sínu og taka nettan slagara við ómþýðan undirleik. Bing er auðvitað jólakóngurinn bar none.

  18. I Believe in You - Sinead O'Connor [5:40]
    Veit svosem ekki hversu mikið jólalag þetta er en flott er það engu að síður. Sinead er auðvitað snilld með sinn bónaða skalla og fallegu rödd.

  19. Helga Nótt - Egill Ólafsson [3:31]
    Er á því að enginn syngi betur á íslensku en Egill (sem er viðeigandi miðað við nafnið). Hátíðleikinn hreinlega lekur inn um eyrun við þessa hlustun!

  20. The Christmas Song - Nat King Cole [3:12]
    Það er viðeigandi að Nat King Cole eigi síðasta lagið sem er jafnframt uppáhalds jólalagið mitt. Við Eiki erum sammála um að það séu helgispjöll að hlusta á þetta meistaraverk fyrr en í fyrsta lagi á Þorláksmessu, hugsa að ég geymi mér líka gleðina þangað til þá :)

Þetta ætti að halda fólki í mátulega miklu jólaskapi langt fram undir aðfangadag, ef ekki þá er kannski réttast að ég taki mig til á morgun og listi upp 'jólamyndir' sem nauðsynlegt er að horfa á fyrir hver jól, rigga því til á morgun...

Annars bað Þórunn mig að koma því að að hún setti inn nýjar myndir á myndasíðu okkar hjóna í gær. Þið sem hafið áhuga á að líta gleðina augum þá er hægt að kíkja á það hér eða með því að smella á tengilinn hérna hægra megin. Njótið vel!

mánudagur, desember 04, 2006

Samantektin

Jæja, þá erum við aftur orðin tvö í kotinu eftir töluverðan gestagang í síðustu viku. Er samt alls ekkert að kvarta, búið að vera helvíti gaman þó svo skemmtilegheitin hafi komið töluvert niður á svefninum. Skrýtið hvað þessir Íslendingar (sem búa á Íslandi þ.e.) hafa gaman af því að vaka lengi frameftir! En förum aðeins yfir það helsta sem gerðist markvert meðan á dvöl þeirra stóð...

Á miðvikudaginn komu Gimmi og Svana og um kvöldið voru svo tónleikarnir góðu. Það verður að segjast eins og er að þessir tónleikar voru sennilega með þeim betri sem ég hef upplifað! Hver stórsöngvarinn af öðrum steig á svið og fengum við að heyra allt frá rokki til óperusöngs. Þar voru ekki ófrægari menn en Páll Óskar, Helga Möller og Regína Ósk, auk þess sem semi-celeb á borð við Heiðu (Idol) og Nönu (Idol líka) mættu líka. Senuþjófarnir voru samt þau Friðrik Ómar sem tók Queen lagið 'Somebody to Love' af mikilli innlifun og Bryndís (konan hans Atla idol) sem tók Tinu Turner smellinn 'Private Dancer', hélt fyrst eftir að hún byrjaði að syngja að brögð væru í tafli, hún hljómaði bókstaflega nákvæmlega eins og Tina! Eiki og Lára stóðu sig auðvitað líka vel og geta verið stolt af sinni frammistöðu...

Eftir tónleikana héldu allir söngvararnir ásamt fylgdarliði (okkur Gimma og Svöna þar með talin) á nálægan bar þar sem setið var að sumbli langt fram á nótt. Ekki leiðinlegt að skemmta sér aðeins með heimsfrægum (á Íslandi) Íslendingum... ;)

Á fimmtudagskvöld var svo haldið í Tívolí þar sem tækin voru prófuð og eplaskífur og jólaglögg smökkuð með tilheyrandi árangri. Eftir Tívolí var svo þrammað uppeftir Gammel Kongevej (sem var þó lengri leið en búist var við í upphafi) þar sem við plöntuðum okkur svo á Vinstue 90 sem er helst þekktur fyrir það sem þeir kalla Slow Beer. Þessi bjór er víst bruggaður á staðnum og er án kolsýru. Hann er sennilega kallaður Slow Beer því það tekur fimm mínútur fyrir þá að afgreiða hann í hvert sinn en gestunum virtist líka hann mjög vel því þeir settu þessar fimm mínútur ekki fyrir sig að minnsta kosti...

Á föstudag var haldið í bæinn þar sem við kíktum í frukost á Nyhavn (sem var samt hálf mis) og svo skiptum við liði þar sem fólk vildi kíkja í búðir. Um kvöldið hélt svo öll hersingin heim til Runa og Heiðrúnar þar sem við sóttum pizzur og fórum svo á kollegíbarinn þar sem var setið við spjall og spil af ýmsustu gerð. Lærði meira að segja nýjan drykkjuleik sem kemur sér örugglega vel einhvern tímann síðar. Einhver þreyta var þó í mannskapnum eftir kvöldin á undan og við vorum bara komin heim óvenju snemma þetta kvöldið, klukkan þrjú (fyrri kvöld höfðum við komið heim enn síðar)... ;)

Gimmi og Svana þurftu svo að vakna snemma á laugardeginum til að ná flugi um hádegið. Við Þórunn tókum okkur svo til eftir að þau voru farin og settum upp megnið af jólaskrautinu og hentum okkur svo í búð og keyptum flæskesteg sem við elduðum svo um kvöldið og buðum Eika og Láru uppá, fannst ótækt að þau færu frá Danmörku án þess að fá alvöru danskan jólamat. Verð nú að segja að þetta heppnaðist stórvel og puran var mátulega sölt og stökk! :D

Í gær var svo bara ákveðið að slaka á og safna kröftum eftir 'erfiða' viku. Fór að vísu og spilaði einn handboltaleik sem er ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að ég skoraði eitt mark og fiskaði eitt víti. Annars töpuðum við ekki með tuttugu mörkum (þau voru nítján) og höfum þá fínu afsökun að það vantaði svona helminginn af liðinu (lame afsökun samt)... ;)