föstudagur, febrúar 23, 2007

Innisnjóaður...

Hinn gríðarlegi 'snjóstormur' var víst á ferðinni aftur í nótt hérna í Danmörku með tilheyrandi móðursýki og röskun á öllu lífi Dana. Dönum er ráðlagt að vera sem minnst á ferðinni (sjá frétt í Politiken) og einhverjir skólar eru víst búnir að aflýsa kennslu. Strætó fór ekki af stað fyrr en að nálgast hádegi í gær, metró var sömuleiðis í einhverju rugli fram eftir morgni (sem er fyndið í ljósi þess að þetta er neðanjarðarlest) og heilu línurnar í S-toginu voru lagðar niður allan daginn. Magnað hvað 10-20 sentímetrar af snjó geta sett heila þjóð gjörsamlega úr skorðum...

Ég lenti einmitt í því í gær að þurfa að taka lest frá Herlev (sem er uppi í sveit btw) aftur niður í miðbæ og það tók sko aldeilis sinn tíma. Þegar komið var á lestarstöðina var ekki einu sinni tími á næstu lest og því engin leið að vita hvort eða hvenær hún kæmi. Þetta hafðist að vísu að lokum en þá voru örugglega liðnar góðar 20 mínútur frá því á stöðina var komið. Það var búið að ráðgera að halda fund á Kagsaa í kvöld útaf Icelandair Open en við Baldvin ákváðum snarlega að fresta því, nenni ekki að standa í rugli í tvo daga í röð með að komast frá Herlev...

Annars var ástæðan fyrir veru minni í Herlev í gær sú að við fórum þangað í handboltanum að spila æfingarleik við sama lið og við tókum æfingaleik fyrir tveimur vikum. Þetta var eiginlega stórfurðulegur leikur í alla staði. Við vorum ekki nema átta manns (einn varamaður semsagt) og báða þjálfarana vantaði í liðið auk nokkurra annarra sem eru vanalega í hópnum. Fyrir vikið þá vorum við skítlélegir í fyrri hálfleik, klúðruðum dauðafærum og einum þremur vítum og vorum undir, mjög verðskuldað, 15-8 þegar dómararnir flautuðu til hálfleiks. Við ákváðum í hálfleiknum að reyna bara að hafa gaman af þessu, taka á því í vörninni og reyna að saxa á forskotið eins og við gætum. Þetta tókst svona líka vel að andstæðingarnir skoruðu sitt fyrsta mark í seinni hálfleik ekki fyrr en eftir að tíu mínútur voru liðnar af hálfleiknum og í heildina ekki nema sjö mörk allan hálfleikinn. Við hinsvegar skoruðum á sama tíma 17 mörk og unnum að lokum leikinn 22-25 við gríðarlegan fögnuð. Já, það borgar sig greinilega að taka á í vörninni og skora í sókninni! :D

fimmtudagur, febrúar 22, 2007

Femínískar beljur

Ágætt að gera vitnað í Bo Halldórs í titlinum en það er að vísu nákvæmlega það sem mér datt í hug þegar ég las þessa hérna frétt. Og ekki nóg með að hótelið sé búið að loka á liðið þá hefur það í kjölfarið ákveðið að hætta við að koma til landsins, allavega ef eitthvað er að marka þetta hér. Langar bara að segja eitt við 'femínísku beljurnar' og bændurna á Hótel Sögu: Til hamingju! Þeim hefur semsagt tekist að beita nógu miklum þrýstingi til þess að hópur fólks sem ekkert hefur gert af sér á Íslandi ákveður að hætta við að fara þangað. Frábær landkynning það! Svo kemur í ljós í þokkabót að það stóð aldrei til að þetta væri ráðstefna af nokkru tagi, nei, nei, ætluðu bara að skoða landið, Gullfoss og Geysi og álíka 'attractions'. Fólk hefði átt að hafa meiri áhyggjur af klámsölunni, mansalinu, dvergakláminu og öllu því, áttu þessi viðskipti öll kannski að fara fram á Gullna hringnum eða í Bláa lóninu. Er það nema von að Bo tali illa um þetta lið?!? Er ekki líka réttast að fara að finna alla þá sem þegar eru á landinu (íslenska ríkisborgara sem aðra) og vísa þeim úr landi sem hafa 'brenglað' siðgæðismat??? Held að það væri þjóðráð!

Annaras er víst allt á kafi í snjó hérna í Köben og eru Danirnir strax komnir í þann pakka að kella þessa litlu ofankomu 'snestorm' eins og þeim einum er lagið. Heimasíða Kastrup varar við seinkunum og aðrar samgöngur eru í svipuðu rugli. Alveg fyndið hvað smá snjór setur Danina úr jafnvægi, svona svipað og það er góðviðri á Íslandi þegar það kemur smá sólarglenna. Spurning hvor þjóðin er klikkaðri? ;)

þriðjudagur, febrúar 20, 2007

Sekur uns sakleysi er sannað

Er nú ekki vanur að vera að tala um 'hitamál' hérna en fannst ég verða að taka aðeins þátt í þessum 'skrípaleik' sem er í gangi í kringum þessa svokölluðu klámráðstefnu sem á að halda á Íslandi í byrjun mars. Var að horfa á Kastljósið frá því í gærkvöldi þar sem einhver rauðsokkutrunta var hörð á því að yfirvöld ættu hreinlega að stoppa þátttakendur þessarar ráðstefnu um leið og þeir stíga út úr flugvél í Keflavík og senda þá bara beint aftur til heimalandsins með næstu vél. Borgarstjórinn í Reykjavík hefur tekið þetta skrefinu lengra og falið lögreglu að rannsaka hvort að þetta fólk sé nokkuð viðriðið mansal og barnaklám og hefur þar með dæmt þetta fólk sekt um þessa hluti, þangað til búið er að sýna fram á annað. Allt á semsagt að reyna að gera til að koma í veg fyrir að þetta fólk fái að hittast hér á landi til að halda sína ráðstefnu.

Ég veit kannski ekki betur en ég hélt að fólk væri yfirleitt saklaust uns sekt þeirra væri sönnuð og að fólk nyti því alltaf vafans. Auk þess er það afar hæpið að siðferðisvitund eins eigi að ganga yfir aðra því að þó svo að rauðsokkur séu á móti klámi í hvaða mynd sem það birtist þá er aldrei hægt að sakfella fólk fyrir að hafa slæmt siðferði svo fremi að það brjóti ekki gegn lögum. Siðferði hefur í flestum tilfellum ekkert með lög að gera og það sem einum finnst ógeðslegt finnst öðrum kannski bara allt í lagi, báðir hafa auðvitað rétt á sinni skoðun á málinu og, það sem er enn mikilvægara, réttinn á að fá að hafa sína skoðun í friði. Ég hef persónulega ekkert á móti því að fólk fari til Íslands til að skemmta sér svo fremi að það brjóti ekki íslensk lög (sem það hefur ekki gert). Þangað til það gerist á bara að láta þetta í friði því að það er einmitt eitt af því sem vantar oft í lýðræðisríkinu Íslandi, umburðarlyndi gagnvart því sem manni finnst ekki við hæfi (en er þó fullkomlega löglegt)...

En að öðru. Hef verið hrikalega latur að blogga undanfarið. Ekki það að ég hafi ekki frá neinu að segja, hef bara ekki haft neina nennu til að hripa eitthvað niður. Ég veit þó að tengdó hefur kvartað nokkrum sinnum við Þórunni og ég bið hana bara innilega afsökunar á því, skal reyna að taka mig saman í andlitinu... :D

Héldum afmælisveislu um þarsíðustu helgi, hentum í nokkrar kökur og kræsingar og buðum 'innsta kjarnanum' að gæða sér á þeim. Mæli eindregið með því að fólk haldi uppá afmælið sitt því að þá fær það nefnilega alveg hreint ágætar gjafir í staðinn! Ég fékk iPod Shuffle, PSP leik, Indiana Jones DVD safnið, svitalyktareyði + sturtusápu, bækur og einnig forláta bakka undir tölvuna til að geta haft hana uppi í rúmi/sófa/wherever án þess að hún steiki á manni lærin. Heimturnar voru því aldeilis góðar þetta árið og þakka ég kærlega fyrir mig og vona að veitingarnar hafi runnið ljúflega niður...

Síðasta laugardag var svo bjórkvöld hjá íþróttafélaginu og mér telst til að um 50 manns hafi mætt og klárað eina 18 kassa af bjór (sem gerir 432 dósir af bjór eða um 143 lítrar) og einhvern slatta af skotum. Við Oddur vorum svo fram yfir fjögur að þrífa upp eftir liðið (þakka sérstaklega þeim sem skyldi eftir sig 'minjagrip' fyrir utan klósettið fyrir 'unaðinn'). Annars held ég að allir hafi skemmt sér vel, allavega var fólk orðið vel skrautlegt í lokin! ;)

Annars hefur svosem ekki mikið verið í gangi, höfum bæði verið með einhverja kvefdruslu undanfarna daga og viku sem virðist ekkert vera að sýna á sér fararsnið. Pöntuðum okkur svo ferð til Íslands um páskana þannig að við mætum galvösk í páskaeggin (nr. 4 takk, frá Nóa/Siríus)... ;)