Já, góðir hálsar, Laddi er mættur aftur eftir ansi gott og langt 'hlé' (þeir sem þekkja mig eitthvað vita að það þýðir 'leti'). Ritstíflunni var sturtað niður í klósettið í hádeginu og er nú vonandi á leið með hinu klóakinu út í Atlantshaf. Ekki hefði mig órað fyrir að svona margir hefðu gaman af því að lesa þessa þvælu og fjölmargir hafa nefnt við mig að líf þeirra vanti einhverja fyllingu eftir að ég fór í pásu. En ég er semsagt kominn aftur til að reyna að bæta úr því og reyna um leið að bæta líf þeirra örfáu (en samt dyggu) stuðningsmanna minna sem leggja leið sína hingað á hverjum degi (sumir jafnvel oftar)...
Við hjónin fórum að kjósa í sendiráðinu í gær. Ekki að það sé eitthvað ýkja merkilegt en samt sem áður, alltaf ákveðin athöfn fólgin í því að greiða atkvæði sitt á fjögurra ára fresti til handa pólitíkusum sem hugsa yfirleitt meira um sjálfa sig en kjósendurna. En að sjálfsögðu á maður að nýta kosningaréttinn sinn þó ekki væri nema bara til að skila auðu og gefa þannig öllum flokkum fingurinn á einu bretti. Ákvað þetta árið að í stað þess að kjósa rétt (eins og allir spyrja mann þrálátlega eftir að maður hefur kosið) að kjósa bara frekar rangt og má fólk bara túlka það eins og það vill!
Uppgötvaði svo um daginn (á nýjan leik) Íslendingabók á netinu mér til mikillar ánægju og skemmtunar. Komst að því að það er ekki nóg með að ég sé frábær í alla staði heldur er ég líka gríðarlega ættstór með eindæmum! Ingólfur Arnarson var t.a.m. 29xlanga-langafi minn, hvorki meira né minna. Egill Skallagrímsson var á svipuðu reki í lönguvitleysunni. Sömuleiðis er Snorri Sturluson langa x eitthvað langafi minn og skýrir það kannski að hluta til þessa skrifáráttu mína (er viss um að hann fékk ritstíflur eins og aðrir). Svo þarf nú ekki að fara ýkja langt aftur til að finna það út að langamma mín var dóttir biskups (sem er þá væntanlega langalangafi minn) og átti hann fleiri börn sem ekki eru síður merkileg. Eitt þeirra var víst forsætisráðherra á sínum tíma og annað var forsetafrú! Ekki að undra að maður sé svona vel af guði gerður þegar 'undirlagið' er svona gott ;)
Annars hefur tiltölulega lítið gerst síðan 25. mars annað en að við fórum til Íslands í fermingu og brúðkaup og eftir að við komum út aftur er fótboltinn hjá IF Guðrúnu byrjaður á fullu með litlum árangri. Tvö jafntefli og tvö töp er árangurinn það sem af er og ég í þokkabót fyrirliði í öllum fjórum leikjunum. Bara ef stórt ætterni gæti nú gert mig að betri knattspyrnumanni...
En að sjálfsögðu grætur maður ekki töp á knattspyrnuvellinum eftir að Manchester United tryggði sér Englandsmeistaratitilinn á dögunum í fyrsta sinn í þrjú ár! Kærkomið, svo ekki sé meira sagt og ég hef varla farið úr United búningnum eftir að Arsenal tryggvi United titilinn. Nú er bara að klára Chelsea af 19. maí og taka þetta tvöfalt! Ef Liverpool svo hundskast til að tapa á móti AC Milan í CL þá verður árið fullkomnað, að öðrum kosti má maður eiga von á því að úlpurnar (fyrir þá sem ekki vita er það gælunafn yfir Púlara) núi manni þessum CL titli um nasir þrátt fyrir að þeir hafi ekki svo mikið sem séð Englandsmeistaratitilinn síðan á níunda áratug síðustu aldar...