fimmtudagur, nóvember 16, 2006

Feitur fimmtudagur

Hefði kannski átt að fara sparlega með stóryrðin í gær því að ég fór í strætó í vinnuna í dag. Að vísu hef ég ágætis afsökun því að ég er að fara að keppa í handbolta í kvöld og ætla að fara beint úr vinnunni í leikinn. Ekki séns að ég nenni að hjóla alla leið þangað vitandi það að þá þurfi ég líka að hjóla alla leið heim eftir leikinn. Ég er kannski varamaður en ég er enginn vitleysingur... ;)

Annars tók ég eftir því í gær þegar ég hjóla H.C. Andersens Boulevard að það er búið að opna Tívolí! Já, gott fólk, jólatívolí er semsagt í fullum gangi með öll sín skrilljón jólaljós (öll í boði Stig Gerlach nb). Að vísu er ég ekki viss um að þetta sé svo gott mál því fyrir mér eru algjör helgispjöll að byrja að hugsa um jól fyrr en í fyrsta lagi 1. desember. Hef undanfarið heyrt eina og eina jólaauglýsingu í sjónvarpinu og er ekki allskostar sáttur. Til að kóróna þetta allt er svo búið að skreyta út um allan bæ, jólaljósin komin upp á Amagerbrogade (ekki búið að kveikja að vísu), búið að skreyta Magasin og í morgun, þegar ég kom í vinnuna, var verið að setja upp skreytingar á Føtex búðinni hér fyrir neðan! Ætla að reyna að loka eyrum og augum fyrir þessari 'árás' þangað til eftir mánaðarmót þó það verði nánast óvinnandi vígi...

En það er nokkuð ljóst að Danir eru í gleðiskapi þessa dagana og fer það greinilega vaxandi (eða kannski rísandi?!?), allavega ef eitthvað er að marka þessa frétt. Alltaf fjör hjá þessum Dönum! :D

miðvikudagur, nóvember 15, 2006

Móður miðvikudagur

Ég get ekki annað en verið helvíti stoltur af sjálfum mér þessa stundina! Málið er semsagt að í morgun vaknaði ég drulluþreyttur eftir síðbúna fótboltaæfingu í gærkvöldi, leit út um gluggann og sá að það hafði greinilega rignt vel og duglega í nótt og þungt yfir. Það var alveg á nippinu að ég nennti að hjóla í vinnuna en, viti menn, ég tók mér tak og skellti mér bara í gleðina og sé svo sannarlega ekki eftir því núna (nema þegar ég fer að hugsa um að ég þarf þá að hjóla heim líka)...

Annars hef ég svosem ekki frá neinu að segja, frekar viðburðarlítið líf þessa dagana. Gæti auðvitað tuðað meira yfir þessu með göngukallana/-konurnar, jafnvel nöldrað yfir öllum þessu straumi af innflytjendum. Ég gæti líka látið gamminn geysa um stöðu íslensku krónunnar eða gert grín að því að Ingibjörg Sólrún fékk ekki nema 70% atkvæða í sæti sem hún ein sóttist eftir í prófkjöri Samfylkingarinnar. Ef ég væri í virkilega góðu stuði gæti ég líka hneyklast á því að Eyjavitleysingarnir vilja greinilega fá Árna 'Five-fingers' Johnsen aftur á þing eða því að hjólinu hans Jonna var stolið í gær og það ekki í fyrsta sinn. En ég verð bara að viðurkenna að ég nenni því ekki í dag og sennilega ekki á morgun heldur...

Og svo fyrir þá sem bíða jafn spenntir og ég eftir TD: TPOD (það er semsagt Tenacious D: The Pick Of Destiny fyrir ykkur sem fylgjast ekki með) þá er hægt að lina þjáningarnar (vegna biðinnar) yfir þessu.

þriðjudagur, nóvember 14, 2006

Þröngur þriðjudagur

Var á minni daglegu siglingu í gegnum fréttasíðurnar á netinu þegar ég rakst á þessa frétt. Eru menn (karlMENN og kvenMENN) ekki að grínast?!? Er það virkilega þannig að þegar fólk horfir á 'göngukallinn' að það fyrsta sem það hugsar er: "Helvítis kynjamisrétti er þetta, af hverju er ekki mynd af konu?!?" Fyrir mér er þetta gjörsamlega kynlaus vera, tákn fyrir mannfólk óháð kyni. Með sömu rökum væri hægt að halda því fram að þarna væru á ferðinni indíánar og, tjah, sennilega Grænlendingar, ekki er neinn að amast út af því! Væri ekki réttast að hafa 'kallana' allavega í réttum litum ef hægt er að tengja þá við kyn??? Sýnir bara hvað þessa kynjabarátta er á miklum villigötum...

Önnur umræða sem er komin í þokkalegt rugl er þessi um innflytjendurna á Íslandi. Horfði einmitt á Silfur Egils frá því á sunnudag og þar var mikið bullað og kastað fram heimskulegum fullyrðingum. Múslimar eru allir stimplaðir sem glæpa- og hryðjuverkamenn og 'þetta fólk' (ekki mín orð nb) er víst ekki velkomið til landsins að mati sumra. Það vill víst greinilega gleymast að glæpa- og hryðjuverkamenn eru til alveg gjörsamlega óháð trú eða þjóðerni, væri ekki nær að hindra þá í að flytja til landsins. Eini maðurinn sem talaði af viti var sá yngsti. Ég stóð í þeirri meiningu að viska yxi með hárum gráum en í þessu tilfelli þýða greinilega fleiri grá hár meiri fordóma og vanþekkingu...

Annars er ég þokkalega blautur á rassinum núna því mér fannst ég ekki geta annað en rifið fram fákinn í stað þess að hanga eins og zombie í strætó eina ferðina enn. Gallinn er að þegar það er svona mikil bleyta úti þá verður hnakkurinn svo afskaplega blautur að manni líður eins og maður hafi misst þvag eftir hjólatúra eins og þann sem ég réðst í áðan. En heppilega sit ég í stól í vinnunni þannig að það sér enginn hvað ég er rassblautur, verra er þó að ég þarf að sitja í þessu fram eftir degi...

Og fyrst ég er í svona ágætu tuð og kvartstuði þá er vel við hæfi að þið kíkið á þessa snilld og jafnvel líka þessa hér. Alveg tvímælalaust eitthvað sem ég myndi kaupa ef þetta yrði gefið út á geisladisk og/eða DVD (jafnvel þó ég kunni ekki orð í finnsku)... :D

mánudagur, nóvember 13, 2006

Vikusamantektin

Helvíti er það orðið lélegt þegar maður þarf að hafa vikusamantekt en ekki einfalda helgarsamantekt! Sýnir bara hversu latur maður er að henda inn færslum. Auk þess gerir þetta mér mjög erfitt fyrir því ég get ekki fyrir mitt litla líf munað hvað ég var að gera í síðustu viku! Það hefur allavega ekki verið mjög merkilegt fyrst ég man ekki eftir því. En við skulum samt reyna að sjá hvað kemur upp úr kollinum við smá áreynslu...

Miðvikudagur og fimmtudagur eru eiginlega bara blur, man ekkert hvað ég gerði annað en að vinna. Fór ekki einu sinni á handboltaæfingu því ég var að vinna á fimmtudagskvöldið. En ef ég hugsa aftur til föstudags þá kviknar á einhverjum perum því að þá fórum við hjónin út að borða, hvorki meira né minna. Og það sem meira var, fórum bara helvíti fínt út að borða því stefnan var sett á Hereford Beefstouw við hliðina á Tívolí. Þar gæddum við okkur á dýrindis nautalund með bakaðri kartöflu og á eftir fékk mér með ís með einhverri þeirri bestu súkkulaðisósu sem ég hef nokkurn tímann fengið. Stórgóður matur og, það sem er mikilvægast, algjörlega í boði fyrirtækisins... ;)

Á laugardag var dagurinn tekinn mjög rólega, gláptum á bíómynd og lágum í leti fram eftir degi en héldum svo til Jonna og Erlu í kvöldmat. Þau höfðu tekið sig til og eldað svínalundir fylltar með spínati borið fram með kartöflugratíni. Í eftirrétt hafði Erla svo búið til ostaköku með súkkulaði og bláberjakeimi sem var eiginlega of góð! Hefði alveg þegið þrjá auka maga a la kýrnar til að geta komið meiru af þessari köku niður. Spurning um að láta Jonna koma með afganga í vinnuna á morgun bara! :D

Í gær var svo annar rólegur dagur. Hentum í þvottavél (sem þykir víst alltaf fréttnæmt) og tókum smá göngutúr í rokinu, ákaflega hressandi. Ég fór svo upp í Tingbjerg (sem er einhvers staðar á Stór-Kaupmannahafnarsvæðinu) til að keppa í handbolta. Eiginlega var þetta stórfurðulegur leikur því að til að byrja með þurftum við að bíða í 10 mínútur (eftir að leikurinn átti að vera byrjaður) eftir öðrum dómaranum og að lokum skilaði dómari sér í hús, þó ekki sá sem við vorum að bíða eftir. Dómarinn reyndist vera kvenmaður (þarf víst að koma fram að ég hef ekkert á móti kvendómurum per se) sem reyndist svo vera hið mesta skass og greinilega ekki 'vinveitt' Íslendingum því hún gerði hreinlega í því að dæma á móti okkur (að okkar mati auðvitað). Auk þess var leikklukkan eitthvað biluð í fyrri hálfleik því að það vantaði mörk heimamanna. Í hálfleik sýndi taflan því 0-9 þegar staðan var í raun 11-9. Við byrjuðum seinni hálfleik betur og eftir þrjár mínútur höfðum við jafnað í 11-11. Hér skildu þó leiðir. Næstu 27 mínúturnar skoruðu andstæðingarnir (Stadion 2) hvorki fleiri né færri en 26 mörk á meðan við skoruðum bara 6. Við erum því að tala um 37-17 tap! Hélt eftir 36-17 að við gætum ekki gert verr en ég hafði greinilega rangt fyrir mér... :D

IKEA hefur svo ekki enn haft samband, traustvekjandi...