mánudagur, desember 24, 2007

Aðfangadagur!

Þrettándi var Kertasníkir,
- þá var tíðin köld,
ef ekki kom hann síðastur
á aðfangadagskvöld.

Hann elti litlu börnin,
sem brostu, glöð og fín,
og trítluðu um bæinn
með tólgarkertin sín.


- Jóhannes úr Kötlum

Þá er aðfangadagur runninn upp, eina ferðina enn. Náði næstum því að tæma listann minn af must-do's fyrir daginn í dag að undanskildu því að við nenntum ekki að fara niður í bæ í gær. Verður bara að hafa það, letin vann sigur á jólafílingspakkanum þetta árið. Annars var Kertasníkir eitthvað að ruglast í nótt því að hann gleymdi að gefa mér í skóinn! Þetta er sérstaklega merkilegt í ljósi þess að hann mundi eftir að gefa Þórunni í hennar skó en hann hafði verið svo elskulegur að kaupa handa henni miða á Jesus Christ Superstar þann 29. des. næstkomandi. En hann gaf henni að vísu tvo miða þannig að ég fæ sennilega að fljóta með, samt fúlt að fá ekki neitt, hefði meira að segja sætt mig við skemmda kartöflu frekar en táfýlu og sokkaló...

En ég ætla allavega að óska lesendum mínum gleðilegra jóla og vona að þeir fái nú allir eitthvað fallegt og skemmtilegt í jólagjöf í kvöld. Passið ykkur samt á því að borða ekki of mikið því að það er ekkert eins leiðinlegt eins og að taka utan af pökkunum afvelta. Það getur að vísu reddast ef maður er með eitt stykki pakkasækjara/-lesara sem sér um að koma þeim til manns upp í sófa, þá þarf maður auðvitað ekkert að hreyfa sig. Ætli maður dobbli ekki tengdó bara í það hlutverk og borði massíft yfir sig af steikinni! :D

Gleðileg jól!

sunnudagur, desember 23, 2007

Messa er við Þorlák er kennd...

Tíundi var Gluggagægir,
grályndur mann,
sem laumaðist á skjáinn
og leit inn um hann.

Ef eitthvað var þar inni
álitlegt að sjá,
hann oftast nær seinna
í það reyndi að ná.


Ellefti var Gáttaþefur,
- aldrei fékk sá kvef,
og hafði þó svo hlálegt
og heljarstórt nef.

Hann ilm af laufabrauði
upp á heiðar fann,
og léttur, eins og reykur,
á lyktina rann.


Ketkrókur, sá tólfti,
kunni á ýmsu lag. -
Hann þrammaði í sveitina
á Þorláksmessudag.

Hann krækti sér í tutlu,
þegar kostur var á.
En stundum reyndist stuttur
stauturinn hans þá.


- Jóhannes úr Kötlum

Windowpeeper, Doorsniffer og Meathook, skrýtin nöfn á þessum jólasveinum. Annars er ekkert skrýtið við það að vera kominn til Íslands, eiginlega bara óttalega hversdagslegt. Fyrir utan auðvitað að þurfa að vera á bíl til að komast á milli staða, veðrið (auðvitað) og að hitta allt fólkið sem maður hefur ekki séð síðan í sumar. Og ég kvarta nú ekki heldur yfir snjófölinni sem er yfir öllu þessa stundina heldur, hleypir jólafílingnum í nýjar hæðir hreinlega!

Er þessa stundina að hlusta á The Christmas Song með Nat King Cole. Hef verið að bíða með það þangað til einmitt í dag, ekki við hæfi að hlusta á þetta lag fyrr því þetta er jólalagIÐ með stórum greini. Á eftir ætlum við svo að kíkja á afana og ömmuna og kasta á þau jólakveðju í samfloti við Dóa og Kaju og svo er stefnan jafnvel sett á Laugaveginn seinna í kvöld, sjáum til hvernig viðrar og hvernig stemmningin verður. Annars verðum við bara heima í rólegheitum eins og lög gera ráð fyrir...

Til að hjálpa til við jólastemmninguna þá er þessi auglýsing alltaf killer... :)