laugardagur, október 07, 2006

Skotinn í kaf!

Ein færsla! Það var allt og sumt. Eftir eina færslu með 'nýju' útliti fékk ég alls kyns hótanir um fjárnám og þess háttar og var vinsamlegast beðinn um að breyta þessu hið snarasta. Kom víst í ljós að Jonni taldi sig 'eiga' þetta útlit sem ég valdi (hafði ekki hugmynd um að hann væri að nota það sama) og fyrir vikið mætti ég ekki nota það líka. Verð víst að sætta mig við það, enda alveg á hreinu að hann 'á' greinilega útlitið, enda bjó hann það til alveg sjálfur (tjah, allavega valdi hann það sjálfur úr listanum af mögulegum útlitum)... ;)

Á miðvikudaginn fengum við heimsókn frá tengdó. Hann þurfti víst að mæta á einhvern fund á fimmtudaginn og þurfti því að koma til Kaupmannahafnar á miðvikudagskvöld og fékk að sjálfsögðu að gista hjá okkur um nóttina. Eins og góðum gestgjöfum sæmir þá buðum við honum og Sigríði til kvöldverðar þar sem á boðstólum var ágætis lasagna sem við vorum svo að klára í gærkvöldi (borgar sig að gera mikið í einu). Hann leyfði svo Þórunni að æfa sig í nálastungu og það er greinilegt að hún hefur æft sig vel því að hún stakk ekki á neinar taugar og tókst bara helvíti vel upp (þrátt fyrir smá blóðpoll á borðstofudúknum). Greinilegt að kallinn er töluvert minni kelling en ég... ;)

Um daginn dó víst DVD spilarinn okkar eftir annars ágæta ævi. Gæti kvartað yfir endingu en hann lifði þó rúmlega sjö ár þannig að það er kannski eðlilegt að hann hafi gefið upp öndina eftir þann tíma og mikla notkun. Allavega var ljóst að við þurftum að skipta honum út og hentum okkur því í Merlin þar sem við fengum glænýjan United spilara á 299 DKK. Ákváðum að hafa þetta bara ódýrt en þess ber þó að gera að þetta var eini region-free spilarinn í búðinni og jafnframt langódýrasti. Ef nýi spilarinn endist 1-2 ár þá myndi ég kalla þetta ofurfjárfestingu...

Var svo vakinn upp við hina stórskemmtilegu símhringingu í GSM símanum mínum aðfararnótt föstudags. Að vísu átti ég von á símtalinu en það er alltaf eitthvað verulega skrýtið við að vera vakinn upp klukkan 2:30 á næturna. Á hinum enda samtalsins var Ómar nokkur Gústafsson sem tjáði mér að hann og Hanna Gunna (og Agnes) væru úti á Kastrup að bíða eftir töskunum sínum. Ég vippaði mér því í föt og út í bíl til að sækja þau. Þegar heim var komið er ég ekki frá því að ég hafi fellt eitt eða tvö tár þegar þau keyrðu svo af stað aftur, allavega er ljóst að við eigum eftir að sakna bílsins töluvert... :(

Í gær var svo aftur haldið út á Kastrup (í metró og lest í þetta skiptið þó) til að sækja systur nr. 3 (lesist: Sólveig). Systir nr. 2 (lesist: Sigríður) hitti okkur þar og það voru miklir fagnaðarfundir þegar nr. 3 kom út um hliðið. Hún ætlar víst að dvelja hjá okkur fram á þriðjudag og nýta tímann vel til að máta allar flíkur sem í boði eru í H&M (karla og kvennadeildir). Sérstaklega skemmtilegt í ljósi þess að mér finnst fátt eins 'skemmtilegt' (lesist sem kaldhæðni) að rölta á milli búða og bíða eftir fólki sem er að máta... ;)

þriðjudagur, október 03, 2006

Bleh blóh blah...

Er ekki ráð að fara yfir helgarafrekin, svona rétt sem snöggvast og í grófum dráttum? Já, ég er sammála því, þetta er hundleiðinlegt en er víst órjúfanlegur þáttur af þessari bloggtilveru. Þeir sem hafa eitthvað á móti því mega hætta að lesa........núna!

Á föstudagskvöldið brugðum við undir okkur betri fætinum og fórum með Guggu og Björgvin út að borða (um að gera að nýta sér bílinn til að þurfa ekki að taka strætó/metró). Fórum á Thai stað rétt hjá Kongens Nytorv. Ágætis matur en eitthvað var starfsfólkið í ruglinu því þeim tókst að týna pöntuninni okkar þannig að við þurftum að bíða nokkuð lengi eftir matnum. En við fengum það bætt upp með því að fá alla drykki frítt þannig að í heildina var þetta bara hið besta mál... :)

Á laugardag tók Þórunn sig til og málaði útidyrahurðina, veitti víst ekki af (þeir sem hafa séð hurðina vita hvað hún var orðin ógeðslega ljót). Hún tók sig semsagt til og spartslaði í það allra versta, pússaði svo og henti svo tveimur umferðum af eiturgrænni málningu með háglansi á kvikindið. Árangurinn? Tjah, kannski flottasta hurðin á stigaganginum (og jafnvel víðar)! Ég fór svo að keppa um miðjan daginn þar sem við töpuðum fyrir BK Thor 3-1 í leik sem hefði getað dottið hvoru megin sem var. Hjálpaði kannski ekki til að vera bara með einn skiptimann, missa Baldvin útaf meiddan og að tveir af miðjumönnunum eru þungavigtarmenn sem eru ekki í neinu hlaupaformi. En þetta var samt gaman eins og alltaf og það er fyrir öllu... :D

Á sunnudag var vaknað snemma og haldið af stað í road trip. Sóttum fyrst Sigríði og brunuðum svo sem leið lá norður Strandvejen. Komum fyrst við í Louisiana safninu og skoðuðum það hátt og lágt. Skemmtilegt safn þar á ferðinni þó svo það geymi kannski engin 'fræg' listaverk. Garðarnir í kringum safnið eru líka ótrúlega flottir og útsýnið yfir Eyrarsundið spillir heldur ekki fyrir. Eftir safnröltið keyrðum við svo norður til Helsingjaeyrar og fórum í Krónborgarkastala (aftur). Í þetta sinnið höfðum við nægan tíma og skoðuðum því safnið hátt og lágt. Sáum t.a.m. vistarverur konungsfólksins, gestaálmuna og svo 'diskótekið' (eða ballherbergið). Fórum svo og skoðuðum dyflisurnar sem var hin besta skemmtun, allavega tókst mér að hræða líftóruna úr þeim systrum á vel völdum augnablikum! Héldum svo áfram á bílnum lengra upp með ströndinni, alla leið að Gilleleje þar sem við svo fórum aftur út á hraðbrautina og brunuðum í bæinn. Um kvöldið fórum við svo í bíó og sáum The Devil Wears Prada (ekki spyrja) sem var alls ekki eins slæm og ég hélt (allavega töluvert skárri en síðasta viðbjóðsmynd sem ég sá með Anne Hathaway)... ;)

Í gær var svo bara venjulegur mánudagur, ekkert merkilegt við það. Í dag er þriðjudagur og er jafnvel enn minna merkilegur. Tjah, nema að ég ætla í dag að prófa nýtt template, sjáum hvernig það kemur út...

En góðu fréttirnar eru þær að Þórunn hefur ekkert reynt að stinga mig síðan síðast og 'sárin' sem ég hlaut þá eru öll að gróa (hægt en örugglega). Auk þess eru í dag ekki nema 83 dagar til jóla þannig að maður hefur eitthvað að hlakka til... ;)