þriðjudagur, nóvember 28, 2006

Status quo

Before you open your mouth, always look both ways for midgets.
Denny Crane

Erum laus við Eika og Láru úr kofanum! Ekki að það sé eitthvað sérstakt gleðiefni í sjálfu sér því að á morgun kemur ný holskefla þegar Gimmi og Svana knýja dyra til að láta reyna á gæði svefnsófans góða. Annars er bara helvíti gaman að fá gesti af og til, brýtur upp gráan hversdagsleikann og gefur lífinu smá lit (pretty gay, dude)... :P

En allavega þá eru Eiki og Lára semsagt farinn yfir á Öresundskollegíið með allt sitt hafurtask þar sem Ingvi var svo góður að redda fyrir þau gestaherbergi út vikuna fyrir skitnar 100 DKK á nóttina. Okkur (og þeim líka) fannst réttast að þau hefðu smá næði fyrst þau verða hérna svona lengi, auk þess sem það getur ekki verið skemmtilegt að gista hjá okkur hjónunum sem förum yfirleitt aldrei seinna að sofa en svona tíu, hálf ellefu og erum alltaf vöknuð fyrir allar aldir! Fyrir þá sem huga á heimsóknir til Köben þá er fínt að þið vitið af þessum möguleika með gestaherbergin, nennum ekki endalaust að sitja uppi með allskyns pakk sem okkur finnst kannski ekki skemmtilegt (foreldrar og vinir undanskyldir, að sjálfsögðu)... ;)

Sit hérna einn heima þessa stundina því Þórunn er á kvöldvakt. Var rétt í þessu að klára afganginn af kjötbollusósunni sem ég eldaði fyrir Eika og Láru í gærkvöldi með soðnum hveitistöngum og hvítlauksbrauði. Heppilega eldaði ég allt of mikið því þetta var sérdeilis prýðilegur matur (Nigella Lawson fær hrós í hattinn fyrir uppskriftina) og ég er ekki frá því að gestunum hafi bara þótt þetta sæmilegt líka. Allavega kvartaði enginn en þau vildu kannski bara vera kurteis og segja ekki neitt frekar en að kvarta. Anywho...

Æfing á eftir, fínt að geta sparkað í bolta og/eða leikmenn til að fá smá útrás...

mánudagur, nóvember 27, 2006

Helgarsprokið

Það er óhætt að segja að helgin hafi verið viðburðarrík! Bæjarferðir, jazz, nekt, slagsmál, allt sem góð helgi þarf að innihalda til að vera eftirminnileg... ;)

Eiki og Lára komu hérna um hádegið á laugardag og það var að sjálfsögðu haldið í bæinn fljótlega eftir það. Kíktum á Nyhavn og tókum smá rölt um hluta af Strikinu. Hentum okkur svo í betri gallann og hittum drengina (og gellurnar þeirra) í fótboltanum á Royal Palace sem er staður sem bíður upp á þrjá tíma af mat og drykk (allt-sem-þú-getur-í-þig-troðið) í þrjá tíma fyrir fasta upphæð. Bjór og rauðvín flæðandi. Tilefnið var lokahóf fótboltans og höfðu drengirnir hist fyrr um daginn og tekið smá ratleik með tilheyrandi drykkju fyrr um daginn. Þeir voru því orðnir vel 'hressir' þegar við mættum og eins hægt er að ímynda sér þá varð hressleikinn síst minni er á leið því starfsfólk staðarins bar í þá drykki í stríðum straumum alla þessa þrjá tíma. Veitt voru verðlaun fyrir björtustu vonina (sem Oddur vann), mestu framfarir (sem Jonni vann réttilega) og fyrir besta leikmann (sem Jón Auðunn hlaut verðskuldað).

Eftir þessa þrjá tíma var okkur svo gert að hafa okkur á brott en þó ekki án vandræða því áður en við vissum af var starfsfólk staðarins nánast komið í götubardaga við einhverja úr hópnum. Málið snérist semsagt um rauðvínsflösku með örlitlum dreggjum í sem einhver hafði smyglað með sér út af staðnum. Eigendur staðarins voru víst ekki sáttir við það heldur gripu til ofbeldis sem leystist þó farsællega að lokum þrátt fyrir mikinn æsing og á tímabili leit út fyrir að uppúr myndi sjóða...

Næst var haldið á bar þar sem drykkjunni var haldið áfram. Jonni nýtti sér verðlaunin sín sem hann fékk fyrr um kvöldið til hins ýtrasta en það var forláta drykkju-/stripleikur í formi píluspjalds þar sem ákveðnir hlutar spjaldsins gerðu þér að drekka en aðrir að fækka fötum. Þegar við ákváðum að kveðja liðið þá var Jonni einungis á nærbuxunum og bolnum og Eiki (hinn) dauður þannig að nokkuð ljóst að fjörið var mikið... ;)

Í gær var svo bara sofið út og svo haldið niður í bæ í smá túristarölt. Löbbuðum að Marmarakirkjunni og að höllinni og ákváðum svo af rælni að kíkja niður á Nyhavn og athuga hvort hægt væri að komast í siglingu um síkin. Svo heppilega vildi til að þegar við komum á staðinn eru 10 mínútur í siglingu þar sem boðið var upp á lifandi jazztónlist á meðan. Og það sem meira var þá var þessi sigling líka í lengri kantinum og veðrið í þokkabót algjör snilld. Við skemmtum allavega konunglega á meðan henni stóð og slógum taktinn á meðan fjörug hljómsveitin hélt uppi fjörinu.

Eftir siglinguna skildu leiðir því við Þórunn fórum að hitta Sólveigu sem fór svo aftur til Íslands í morgun. Fórum og fengum okkur pizzu og svo í Tívolí til að fá smá jólastemmningu. Áttuðum okkur að vísu ekki á því að Tívolí lokar klukkan tíu á sunnudögum en ekki ellefu eins og við héldum og því fengum við ekki nema um klukkutíma af jólafjöri. Sólveig og Sigríður rétt náðu að henda sér eina ferð í rússíbanann og svo var haldið aftur heim...

Semsagt, mjög góð helgi og útlit fyrir góða viku þar sem Eika og Lára fara ekki fyrr en næsta sunnudag og Gimmi og Svana væntanleg á miðvikudaginn. Jau jauuuuuuuuu! :D