föstudagur, september 08, 2006

Næstum því sigur...

Það má eiginlega segja að Team Punnani hafi stolið af okkur sigrinum í leiknum í gær (sem var btw annar leikurinn á jafn mörgum dögum). Þeir skoruðu og jöfnuðu 3-3 á síðustu sekúndu því að dómarinn flautaði leikinn af strax á eftir. Eitthvað var talað um dómaraskandal en ég kýs að kalla þetta hrikalega óheppni. En við eigum samt hrós skilið, sérstaklega í ljósi þess að við höfðum enga varamenn og misstum Stjána rokk útaf eftir 10 mínútur og spiluðum því einum færri næstum allan leikinn. Auk þess fengum við tvö gul spjöld (sem kosta að viðkomandi fer útaf í 10 mínútur) þannig að á köflum vorum við tveimur færri í leiknum! En töpuð stig eru töpuð stig...

Eftir leikinn var haldið í mat + kökur hjá Heiðrúnu afmælisbarni sem var sérlega vel útilátið eins og venja er. Er ennþá saddur, svei mér þá!

Í dag byrjar svo Klakamótið þar sem Íslendingafélögin í Danmörku (og jafnvel víðar) hittast yfir bjór og fótbolta. Spilað verður á morgun og hinn 7 á móti 7 þar til eitt lið stendur uppi sem sigurvegari. FC Ísland á titil að verja og að sjálfsögðu stendur ekkert annað til en að halda aftur niður í miðbæ Kaupmannahafnar með bikarinn góða... :D

fimmtudagur, september 07, 2006

Í tómu rugli!

Eitthvað hef ég verið annars hugar undanfarið því ég hef algjörlega gleymt blogginu mínu! Gæti verið tilkomið vegna þess að ég held að ég hafi sjaldan eða aldrei verið jafn ótrúlega aktívur í vinnunni, hreinlega setið non-stop við tölvuna að vinna frá því ég mætti á mánudaginn! Svo höfum við líka verið boðin heim ansi oft undanfarna daga og það hefur í raun ekki verið neinn 'letitími' síðan að sumarfríið kláraðist. En altént, þetta hefur markvert gerst...

Sigríður mágkona átti auðvitað afmæli á þriðjudaginn (Júlli tengdó að vísu líka) og bauð okkur í kvöldkaffi af því tilefni á Eystri Ofbeldisgötu (eins og hún kýs að kalla hana sjálf). Hún hafði tekið sig til og bakað súkkulaðiköku og eplapæ auk þess að bjóða upp á osta og smákökur. Ótrúlegur dugnaður í stúlkukindinni sem er greinilega að stimpla sig rækilega inn í bakstrinum. Allavega fór enginn svangur heim úr boðinu... ;)

Fann aftur gamla góða fákinn og, eftir smá pumpun og sætishækkun, þá var maður kominn aftur í gamla góða hjólagírinn og tilbúinn að takast á við hjólaumferðina og vindinn hérna í Köben. Ótrúleg þægindi sem fylgja þessu, verst að þetta er ekki eins auðvelt og þægilegt í Reykjavík... ;)

Í gær var svo mikil spenna í loftinu því Íslendingar voru í baráttunni á tveimur vígstöðum, bæði á Laugardalsvellinum og hérna úti í Köben því FC Ísland átti leik í átta liða úrslitum bikarkeppninnar. Hörkuleikur sem hefði getað endað á hvorn veginn sem var en því miður (fyrir okkur) þá hafði B1901 Köbenhavn sigur með tveimur mörkum í lokum, 4-2 (kunnuglegar tölur). En eins og sönnum Íslendingum sæmir þá vorum við ekki að gráta það mjög lengi heldur drifum okkur í sturtu og beint á O'Learys þar sem Íslendingar höfðu ákveðið að fjölmenna til að horfa á Ísland vs. Danmörk. Gríðarleg stemmning í kofanum og sennilega var skiptingin um 50-50, allavega létu þeir Íslendingar sem mættu á svæðið vel í sér heyra! Því miður þá gekk þetta ekki í dag frekar en fyrri daginn en við skemmtum okkur allavega stórvel. :D

Í kvöld er svo annar leikur hjá FC Ísland gegn Team Punnani og vonandi náum við að berja duglega á þeim og hirða öll stigin sem í boði eru. Á eftir verður svo haldið til Heiðrúnar en mærin sú á víst 28 ára afmæli í dag og að sjálfsögðu fær hún þrefalt húrrahróp og jafnvel eitt gott ógí-ógí-ógí í tilefni af því! :D

sunnudagur, september 03, 2006

Síðasti dagur sumarfrís... :(

Allt verður fyrr en síðar endi að taka. Sú er víst nú raunin með sumarfríið mitt því á morgun byrjar gamla góða rútínan þar sem vinnan spilar afskaplega stórt hlutverk. Ekki svo að skilja að mér leiðist eitthvað voðalega í vinnunni en ég skal alveg viðurkenna að þetta frí var ansi kærkomið. En ég ætla bara að vera jákvæður og hlakka bara til að mæta aftur á Vesterbrogade og hitta þar fyrir Jonna og hina Danina...

Talandi um Jonna! Honum varð það á að skora sjálfsmark í gær í leik FC Íslands við Fox United. Vil þó segja Jonna það til varnar að þetta var meira gríðarleg óheppni en nokkuð annað og eiginlega bara ótrúleg tilviljun. Og það var engan veginn það sem réði úrslitum í þessum leik hvort eð er því við vorum bara skítlélegir og töpuðum verðskuldað (að mínu mati) 4-2 eftir að hafa leitt 2-1 í hálfleik. Ætla ekki að koma með neinar afsakanir, betra liðið vann bara leikinn í gær, einfalt mál...

Eftir leikinn hitti ég svo Þórunni og Sigríði á Grábræðratorgi þar sem þær systur sátu og kjömmsuðu á einhverju góðgæti og drukku bjór með. Ég var ekki lengi til að panta mér pizzu og kók og sporðrenndi hvoru tveggja þeim til samlætis. Svo fór gærkvöldið bara í gríðarlega afslöppun og gerðum við hjónin bókstaflega ekki neitt og hvíldum okkur svo vel á eftir!

Já, og meðan ég man! Ég gleymdi víst algjörlega í upptalningu minni á 'afrekum' sumarsins á Íslandi að minnast á stórgóða og skemmtilega ferð okkar hjónanna til Flateyjar! Eiginlega ótrúlegt að ég skyldi gleyma því þar sem þetta var sennilega hápunktur sumarsins! Fórum semsagt þangað í helgarferð með Gimma og Svönu og Eika og Láru og gistum í húsi sem foreldrar Láru eiga þar. Mögnuð upplifun að koma þarna út í eynna og ekki spillti fyrir ferðin í náttúrulega heita pottinn út á miðjum Breiðafirðinum, dáldið öðruvísi upplifun að sitja í heitum potti með seli syndandi í kringum sig úti á miðju ballarhafi á skeri sem á flóði er undir sjávarmáli. Það er eitthvað sem venjulegir túristar upplifa sennilega aldrei... ;)