fimmtudagur, september 21, 2006

Handboltavertíðin er formlega hafin!

Fyrsti leikur vetrarins í handboltanum, og jafnframt fyrsta tapið, varð staðreynd fyrir um tveimur tímum síðan í Rypark Hallen. Þar áttust við 'stórliðin' IF Guðrún (eða stóru og feitu Íslendingarnir eins og Danirnir kalla okkur) og Team Tissø (....... (sjálfval lesenda á uppnefni hér)). Þessi leikur var víst í bikarkeppninni og því til mikils að vinna en sigurliðið fékk víst að launum að spila annan leik í sömu keppni við annað lið á meðan tapliðið fékk ekkert og baunir, túkall. Sigur Tissø (hvað er það eiginlega, tisse = pissa => pissueyja?!?) 34-29 verður víst að teljast sanngjarn því þeir voru sérdeilis sprækur af Dönum að vera og við áttum eiginlega aldrei séns. Þeir leiddu bókstaflega allan leikinn og í eina skiptið sem staðan var jöfn var þegar dómarinn flautaði leikinn í gang. Að vísu vorum við aldrei langt á eftir þeim og í stöðunni 22-21 þá hefði í raun allt getað gerst en þá var íslenska blaðran sprungin og óþreyttir Danirnir völtuðu yfir okkur í lokin...

En góðu fréttirnar (það eru alltaf góðar fréttir) eru samt sem áður þær að handboltinn er byrjaður aftur og ég náði meira að segja að skora mark (sem gerist víst ekki á hverjum degi)! Þannig að ég er bara sáttur og ég veit að Þórunn (sem hafði fyrir því að koma og horfa á herlegheitin) var bara nokkuð sátt (við mig allavega) líka... ;)

Annars fengum við heldur betur glaðning í dag! Um daginn hafði Hanna Gunna samband og bauð okkur að fyrra bragði að fá lánaðan bíl þeirra hjóna á meðan þau verða á Spáni næstu tvær vikurnar. Að sjálfsögðu þáðum við boð þeirra með þökkum og hjónakornin komu hérna heim um hádegisbilið og ég skutlaði þeim svo út á Kastrup. Þannig að næstu tvær vikurnar verðum við cruise-andi um bæinn með shade-arann á nefinu og vinstri höndina hangandi út um gluggann blast-andi phat-u europoppi eins og choco-arnir gera á Íslandinu. Laddi hnakki, já svei mér þá, hví ekki?!? ;)

miðvikudagur, september 20, 2006

Bit, bit, bit og aftur bit!

Það kom auðvitað á daginn að æfingin í gær hefði frekari eftirköst en rýtingsstungur (sjá færslu frá í gær). Þar sem komið er fram á haust og við erum ennþá með æfingarnar á sama tíma og þær voru í sumar þá vill víst bregða við að þegar fer að síga að lokum æfingar þá erum við komnir í ljósaskiptin. Og hvað felur það í sér? Jú, auðvitað helvítis flugurnar sem þá fara á stjá! Ég er bókstaflega allur í bitum og bölva þessum andsk... vörgum fyrir allar þær þjáningar sem þær láta mig þola. Æ mig auman...

En það var svosem meira á döfinni í dag en vinna og klór því að Þórunn kíkti til mín niður á Vesterbrogade (í fyrsta skipti nota bene) til að kíkja á aðstöðuna. Að sjálfsögðu nýttum við tækifærið fyrst við vorum komin niður í bæ og fórum í Tívolí og fengum okkur pizzu og svo kakó og köku á eftir. Aldeilis flottræfilshátturinn á okkur hjónakornunum þessa dagana í Köben! :D

þriðjudagur, september 19, 2006

Svona rétt fyrir svefninn...

Ákvað að henda inn smá færslu fyrst ég var við tölvuna (þurfti aðeins að grípa í smá vinnu (alltaf crisis í gangi þar)). Magnað hvað þessir kúnnar geta verið heimtufrekir, eins og ég hafi ekkert betra að gera en að laga (mínar eigin) villur á kvöldin?!? Ætla framvegis að segja þeim að það gerist ekkert fyrr en eftir helgi, alveg óháð því hvaða dagur er... ;)

En ég gerði nú samt heilan helling í vinnunni í dag og ekki nóg með það heldur fór ég fyrr heim en venjulega til að henda í þvottavél. Þórunn var sko aldeilis ánægð með sinn mann þegar hún kom heim, o sei sei já! Spurning um að gera svona 'glaðning' að reglulegum hlut, það er auðvitað hægt að gera svo margt annað en að henda í þvottavél. T.d. er hægt að ryksuga, þurrka af, þrífa klósettið eða jafnvel mála ofnana... ;)

Annars var ég (og Gummi og Jón Auðunn) stungnir all svakalega í bakið áðan. Þannig er mál með vexti að við þremenningarnir skipum víst stjórn IF Guðrúnar og til stóð að hitta fráfarandi formann og gjaldkera á heimili þess síðarnefnda eftir fótboltaæfinguna reglulegu. Gummi (sem venjulega mætir á æfingarnar) var meira að segja meiddur og gerði sér sérstaka ferð að sækja okkur (á bíl, blessaður) og á leiðinni til Hauks (það er fráfarandi gjaldkeri) hringjum við í hann til að fá leiðbeiningar um hvernig við komumst þangað. Og hvað haldiði? Eru þeir kumpánarnir ekki bara búnir að slaufa fundinum án þess að láta okkur vita! Gummi (sem var búinn að aflýsa áður ráðgerðum plönum) var sérstaklega ósáttur því hann býr úti í rassgati og var semsagt búinn að gera sér ferð niður í bæ til einskis. Við Jón Auðunn fengum þó altént far áleiðis af æfingu þannig að þetta var ekki alveg glatað... ;)

mánudagur, september 18, 2006

Helgarsamantekt

Viðburðarrík helgi svo ekki sé meira sagt! Byrjuðum á því að hitta Jonna, Erlu, Runa og Heiðrúnu niðri í bæ á föstudagseftirmiðdag og fengum okkur lunch saman. Það var að vísu hápunktur þessa dags því eftir það var haldið heim á leið og kvöldinu svo eytt fyrir framan sjónvarpið þar sem við gláptum á 'Vild med dans' (sem er btw uppáhaldsþátturinn hennar Þórunnar) og á eftir var svo skipt yfir á Emmy verðlaunaafhendinguna. Svaka fjör semsagt! :D

Á laugardaginn var svo leikur í fótboltanum á móti Jydunum í FK Jyden (held að þeir séu frá Jótlandi og þaðan sé nafnið komið). Það reyndist vera hörkulið og buðu okkur upp á fína og góða mótspyrnu. Við höfðum að lokum sigur í leiknum 3-2 með mörkum frá Jóni Auðunni, Bjarna (sem var að spila sinn fyrsta leik fyrir FC Ísland) og svo setti Addi Braga sigurmarkið. Þau undur og stórmerki gerðust svo að ég fékk gult spjald (og þ.a.l. tíu mínútna brottvísun). Það sem er merkilegt við það 'afrek' er að þetta er í annað skipti á ferlinum sem ég fæ spjald í knattspyrnuleik. Það sem var kannski enn merkilegra var að samherjar mínir virtust ekki fatta hvað hafði gerst því að sennilega helmingur liðsins vissi ekki einu sinni af því eftirá! En það er svona þegar maður er prúðasti leikmaður í heimi og segir aldrei stakt orð við dómarann né mótherjana, þá er víst talið óhugsandi að maður geti fengið spjald eða tiltal hjá dómaranum... ;)

Eftir leikinn fórum við hjónin svo í Tívolí og fengum okkur kvöldmat á ítalska staðnum (sem þarfnast engra frekari skýringa við, þeir sem hafa komið í Tívolí vita hvaða stað ég á við).

Í gær komu svo Hanna Gunna, Ómar, Illa og Betti (sem voru í helgarferð) í brunch til okkar og á eftir var haldið á Shamrock til að sjá United tapa (verðskuldað) fyrir Arsenal.

Þannig að helgin bauð hreinlega upp á allt, sigra og töp, gleði og (enga) sorg, mat og drykk. Er hægt að hugsa sér það betra? :D