laugardagur, febrúar 25, 2006

Einn heima í rólegheitum...

Ah, ljúft er það núna! Ekki að það sé eitthvað leiðinlegt að hafa Þórunni og tengdafólkið í kringum sig en það er hinsvegar alltaf jafn þægilegt að vera einn heima á laugardegi. Not a care in the world!!! Er nýkominn úr ræktinni þar sem ég lyfti samtals einum fíl (þessum bómullarfylltu sem maður fær í BR) með höndunum. Er alveg búinn á því eftir það (mikill bómull greinilega). Konurnar fóru í bæinn og ætluðu að athuga hvort H&M hefði eitthvað skemmtilegt handa þeim sem og aðrar búðir. Á ekki von á þeim fyrr en seinnipartinn. Kannski maður hendi sér bara í vídeó eða eitthvað á meðan... :D

Talandi um það, við nýttum okkur tæknina og horfðum á íslenska Idol-ið í beinni útsendingu í gær! Já, þið heyrðuð rétt, íslenska Idol-ið! Ekki voru gæðin á því neitt sérstök svosem en þetta komst til skila í gegnum iSight-ið hans Júlla sem var svo hjálplegur að henda þessu upp fyrir kellurnar sínar (á ekki við mig þar samt). Var bara nokkuð skemmtilegt, sumir mjög góðir, aðrir, tjah, ættu ekki að syngja fyrir framan annað fólk...

Talandi um söngvara þá á hann Eiríkur Sveinn Hrafnsson 28 ára afmæli í dag og óska ég honum innilega til hamingju með þennan merka áfanga. Fyndið með hann samt, næstum tveir metrar á hæð en samt er hann vaxinn niður eins og átta ára gömul stelpa, merkilegur andskoti...

föstudagur, febrúar 24, 2006

Flöskudagur!

Enn og ný er komið að flöskudegi, síðasta degi vikunnar (hjá mér þ.e.). Einhverjar nota það sennilega sem ástæðu fyrir því að hella sér í stjórnlausa gleði og drykkju en ekki ég, ó sei sei nei. Í kvöld verður haldið til Sigríðar mágkonu þar sem mæðgurnar (tengdó og systurnar) munu kokka eitthvað upp og kjammsa svo á því. Alltaf þægilegt að geta bara mætt og vera fóðraður. Ef ég þyrfti ekki að fara þangað þá væri þetta eiginlega eins og dýragarður, apinn fóðraður. Ég vildi að ég væri api í dýragarði... :D

Fór í svaðalegan fóara í gær með 'Drengjunum'. Handboltinn var að keppa þannig að fótboltinn fékk að nota tímann þeirra á meðan. Gamlir (ég, Jonni, Jói og Baldvin) tókumst á við unga (einhverjar sultur) og lauk þeirri löngu og ströngu viðureign (einn og hálfur tími) með því að þeim ungu var bókstaflega slátrað. Ungir (sem ættu þá einnig að vera frískari) höfðu meira að segja skiptimann en það virtist ekki hjálpa þeim mikið því gamlir voru frískastir (af þessum tveimur liðum þ.e.). Lokastaðan var (að mig minnir) að gamlir höfðu einhver 20 mörk í plús á þá yngri. Eiginlega bara rugl. Allt er (næstum) þrítugum fært greinilega! :D

fimmtudagur, febrúar 23, 2006

Meistarinn!

Góðan daginn hvað ég var að gera góða hluti í vinnunni núna! Í öllum hamaganginum við að koma Rafrænni Reykjavík í loftið og stressinu í kjölfarið þá komst ég semsagt að því að fyrir tilstuðlan netts galla í hugbúnaði þá tók miklu lengri tíma að hlaða upp síðurnar þar en þurfti. Eftir smá kaf ofan í dýpstu rætur kóðans fann ég villuna og lagaði. Og þvílíkur munur!!! Erum eiginlega að tala um byltingu í samskiptum!!! Hvet alla sem vettlingi geta valdið eða á ketti haldið að kíkja á gleðina: Rafræn Reykjavík.

Mæðgurnar yfirgáfu mig allar blessunarlega í morgun, tala svo mikið að maður fær bara illt í tennurnar. Nei, segi nú bara svona. En Þórunn fór allavega í skólann eldsnemma og restin af genginu henti sér svo í Fields strax klukkan tíu. Það á víst að athuga hvort það sé ekki hægt að gera reyfarakaup þar áður en haldið verður á Strikið. Er bara þakklátur fyrir að þurfa að vinna, slepp þá við bæjarráp og búðarrölt... ;)

Handbolti eða fótbolti í kvöld svo, hauuuuuuuuu

miðvikudagur, febrúar 22, 2006

Ég nota BP bensín á hjólið mitt...

Þar sem ég á engan bíl þá get ég víst ekki sagt það. Eiginlega á ég ekki hjól heldur því ég er að nota gamla hjólið hennar Þórunnar því mínu var stolið um daginn. En þar sem allt hennar er mitt og allt mitt er mitt þá hlýt ég væntanlega að eiga hennar hjól líka, ekki satt? ;)

Annars er sérstök ástæða til að fagna því í dag er fæðingardagur Lord Baden-Powell, stofnanda skátahreyfingarinnar og er því dagurinn yfirleitt kallaður Baden-Powell dagurinn (frumlegt og skemmtilegt). Merkilegt nokk þá var konan hans, Olave Baden-Powell, líka fædd sama dag þannig að við getum bara haldið upp á afmæli þeirra beggja, slá tvær flugur í þremur höggum...

Tengdamútta og yngri mágkonan voru svo að renna í hlaðið, ætla að vera hérna fram á mánudag og versla grimmt í H&M (geri ég ráð fyrir). Komu klyfjaðar af fiski sem akkúrat small ofan í frystiskápinn auk þess sem upp úr farangrinum komu tvær túpur af Mills kavíar (sem ég finn ómögulega hérna í Köb). Er núna að gæða mér á beyglu með kavíar og eggi, algjör snilld. Ekki eins mikil snilld er að mæðgurnar eru núna sestar fyrir framan sjónkann að horfa á gamlar Eurovision keppnir sem þær keyptu (og borguðu fyrir) á leiðinni út. Eins gott að heyrnartólin mín geta blokkað út mesta hávaðann...

þriðjudagur, febrúar 21, 2006

Allt að gerast...

Jæja! Nú þarf aldeilis að spýta í lófa og girða í brók! Á morgun á ég semsagt að skila af mér restinni af því sem ég hef verið að vinna fyrir Rafræna Reykjavík auk þess sem ég er á fullu í öðru verkefni samhliða. Svaka stuð að hafa svona tvennt (og jafnvel meira) í gangi í einu. Einhvern veginn ná verkefnin alltaf að þvælast hvert fyrir öðru og á endanum gerist nánast ekki neitt í þeim fyrir vikið. En það er semsagt útlit fyrir að þetta sé eitthvað að fara að róast frá og með morgundeginum. Í dag, hinsvegar, verður sett í fluggírinn...

Tókum létta salsasveiflu í gærkvöldi. Merkilegt nokk þá gekk það bara þrusuvel og ólíkt betur heldur en síðast þegar við vorum svo léleg að taktlausustu aðilar hefðu sennilega hlegið að okkur. Í gær gekk hinsvegar allt eins og smurt (eða því sem næst) og við vorum að negla þessum sporum hægri vinstri. Ekki spillti fyrir að ég fór EKKI í vitlausan metró á leiðinni heim þannig að það mætti segja að gærkvöldið hafi verið sérlega vel heppnað í alla staði :D

Og það er réttast að geta þess að meistari Guðlaugur Ingi Guðlaugsson á afmæli í dag. Býð ég hann hjartanlega velkominn í 29 klúbbinn, var farinn að verða heldur einmana í þessum annars ágæta klúbbi... ;)

sunnudagur, febrúar 19, 2006

Til hamingju Ísland!

Sko Íslendinga! Þeir höfðu vit á því að kjósa og senda Sylvíu Nótt í þessa ömurlegu Júróvisjón keppni þetta árið. Ætla rétt að vona að hún geri jafn mikla lukku í Afríku, nei meina Aþenu, og hún gerði greinilega í gærkvöldi. Eiginlega voru þessi úrslit hálf hlægileg, tveir þriðju hlutar atkvæða af rúmlega 100þ greiddum atkvæðum. Mætti jafnvel segja að þetta hafi verið burst. Ein spurning, hvar endaði eiginlega hún Birgitta litla í þessari kosningu?!? :D

Við hjónin fórum í mat til Runa og Heiðrúnar á föstudagskvöldið í Tikka Masala fisk sem var hreint ágætur. Það þarf víst að fylgja sögunni að Runi sá um eldamennskuna, hann var einkar stoltur af þessum árangri sínum. Að sjálfsögðu var svo nóg af eftirréttum á meðan við tókum eitt létt Catan/Settlers. Ákváðum að vísu að þetta yrði í síðasta sinn í langan tíma, menn orðnir eitthvað þreyttir á spilinu (en þó bara þeir sem geta ekkert í því (og þá meina ég auðvitað Jonna og Þórunni)).

Horfði svo á arfaslakt United lið tapa fyrir lélegu Liverpool liði í gær. Eina markverða atvikið í leiknum var þegar Alan Smith rústaði á sér ökklanum (ekki það að ég mér finnist það eitthvað skemmtilegt, frekar óhuggulegt) sem segir kannski mest um leikinn. Við hjónin áttum svo bara náðugt kvöld í gærkvöldi og gláptum á meistara Connery kenna mönnum að brjótast inn í Alcatraz fangelsið í San Fransisco.

Ég veit ekki hversu vel menn muna eftir myndinni en það var eitt atriði sem stakk dálítið í augun. Connery er ásamt selasveitinni (Navy seals) búinn að kafa inn í fangelsið og þeir koma upp í herbergi með einni hurð sem er læst utanfrá. Connery tekur sig þá til og rennir sér í gegnum einhver eldspúandi göng og bjargar málunum, kemst hinu megin við hurðina og opnar. Það fylgdi víst sögunni að hann hafi lagt tímasetninguna sem var nauðsynleg til að komast í gegn á minnið. En hérna staldraði ég við. Var Connery ekki á sínum tíma að brjótast út úr fangelsinu en ekki inn í það? Og ef svo var, hefði hann þá ekki komið hinu megin að hurðinni í upphafi og getað bara opnað hana án þess að sýna þessi tilþrif í eldgöngunum?!?