fimmtudagur, apríl 20, 2006

Það er komið sumar...

...sól í heiði skín o.s.frv. Að vísu skein sólin ekki fyrri part dagsins en tók svo við sér síðdegis og þegar ég fór á æfingu þá var komið þetta fína sumarveður. Í tilefni sumarkomu þá spilaði ég alla æfinguna á stuttbuxum og var barasta ekkert kalt, það er víst loksins farið að hlýna hérna í Danaveldi. Og okkur veitir svo sannarlega ekki af að æfa sem mest og stilla saman strengina þar sem fyrsti leikur tímabilsins er á sunnudaginn. En við komum að því síðar...

Gleymdi auðvitað í gær að segja frá því að við Jonni fórum einmitt í gær í fyrsta sinn á nýju skrifstofuna 'okkar'. Það ágæta pláss er staðsett á Vesterbrogade 74, beint fyrir ofan Føtex verslun þannig að maður er eldfljótur að henda sér í búðina og kaupa sér eitthvað ef maður verður svangur. Þar sem það var íslenskur frídagur í dag þá var bara setið heima en við ætlum að henda okkur á morgun aftur og svo bara beint strik áfram í framhaldinu...

Kom heim áðan eftir æfinguna og þá sátu systurnar afskaplega einbeittar yfir hekli. Þórunn hafði semsagt boðið Sigríði í heimsókn í þeim tilgangi að kenna henni hina göfugu heklulist, það er ekki að spyrja að dugnaðinum í þessum skvísum! :D

miðvikudagur, apríl 19, 2006

Þriðjudagsgleymskan...

Hvort sem þið trúið því eða ekki þá gleymdi ég alfarið að setja inn færslu í gær enda stóð það allan tímann til. En eitthvað skammhlaup hefur greinilega orðið í gráu sellunum því ég mundi að sjálfsögðu ekki eftir því fyrr en núna í morgun...

Ég ætlaði einmitt að segja frá því að á mánudag (annan í páskum) þá ákváðum við hjónin að bjóða mágkonunni með okkur í pizzu. Hafði frétt að það væri sérdeilis góður staður í Grønnegade sem við yrðum bara að prófa. Við klæddum okkur því upp (bara casual samt) og ég meira að segja henti smá steinsteypu í hárið til að skorða það af, hentum okkur í Metró og hittum Sigríði á Kongens Nytorv. Staðurinn sem við ætluðum á, La Vecchia Signora (eins og hann heitir víst) er þar rétt hjá þannig að þetta átti bara að vera stuttur göngutúr og átveisla í framhaldi af því. Áætlunin gekk víst ekki alveg upp...

Þegar við komum á Kongens Nytorv er farið að þykkna töluvert upp (Þórunn hafði einmitt nefnt að taka með regnhlíf en við slepptum því af einhverri ástæðu) og þegar við höldum af stað þessa stuttu vegalengd byrjar að dropa. Droparnir verða fljótlega stærri og þéttari og áður en við vitum af er kominn hellidemba, bara eins og hellt sé úr fötu! En heppilega var staðurinn nálægt þannig að við áttum öruggt skjól framundan, eða það héldum við allavega. Þegar á staðinn er komið þá kemur í ljós að þessir kaþólsku ítalir sem reka hann líta greinilega svo á að annar í páskum sé frídagur og staðurinn því lokaður! Hellidemba úti og ekkert skjól að fá. Við örkuðum því af stað í rigningunni í áttina að Nörreport (drjúgur spotti) og fundum þar annan ítalskan stað, holdvot og köld að beini (og fína greiðslan mín að sjálfsögðu ónýt). En þar var tekið hlýlega á móti okkur og við sátum þar í góðu yfirlæti (vorum nánast ein á staðnum) í á þriðja tíma...

Lexía (mánu)dagsins: Athuga fyrst hvort það sé opið, svo fara af stað... ;)

mánudagur, apríl 17, 2006

Lambalæri og páskaegg

Ákvað að taka mér 'páskafrí' í færslunum, eða, eins og það er kallar, ég nennti því ekki. Betra að taka bara eina svona heildarfærslu eftir páskana í heild sinni, óþarfi að dreifa litlu á marga daga...

Eins og við var að búast var maturinn hjá Stefáni og Sóleyju (og Margréti Nótt) ákaflega góður og ekki spillti fyrir að þau buðu okkur uppá franska súkkulaðiköku í eftirrétt, nokkuð ljóst að maður grennist nú ekki eftir hana. Gripum svo í Popppunkt þar sem við Stefán, eða 'Stuðmenn' eins og ég kýs að kalla liðið okkar, höfðum að lokum sigur á 'Grýlunum' sem höfðu leitt keppnina lengstum framan af. En sigurinn var engu að síður verðskuldaður, hefði verið rugl að tapa, sérstaklega eftir að hafa svarað vísbendingaspurningu um ZZ Top!

Við vöknuðum svo snemma á laugardaginn og hentum okkur í búðina til að klára af páskainnkaupin. Við höfðum ákveðið fyrir löngu að laugardagurinn yrði 'Laddi and Þórunn's Day of Fun' og við það var staðið og vel það. Byrjuðum á því að henda okkur smá rúnt um Frederiksberg Have og löbbuðum svo þaðan niður í bæ og alla leið niður á Kongens Nytorv. Fengum okkur þar brunch í sólinni með hinum 'sólsleikjunum', klúbbsamlokan rann afskaplega ljúft niður. Þrömmuðum svo til baka upp á Ráðhústorg og hentum okkur á Tycho Brahe safnið og sáum þar 3D IMAX mynd um einhverjar pöddur. Var svosem allt í lagi en samt engan veginn peningana virði. Hentum okkur svo eftir myndina í Tívolí og fengum okkur að borða á glænýjum japönskum stað þar. Komum svo heim rúmlega 10 tímum eftir að við lögðum af stað, gleðidagurinn var því svo sannarlega vel heppnaður...

Þórunn vaknaði svo fyrir allar aldir í gær og ætlaði að henda sér í lærdóm. Hún entist sennilega svona hálftíma áður en hún 'gafst upp' og dró mig af stað út að skokka (sem ég nennti nú alls ekki en gerði þó). Skokkuðum niður að sjó og út á nýja strandgarðinn sem er aldeilis orðinn flottur. Endaði með að vera bara helvíti nettur skokktúr og fín brennsla fyrir páskaeggin sem biðu eftir okkur heima.

Þegar heim var komið bjó ég til tvo eftirrétti fyrir páskamáltíðina sem við höfðum boðið Sigríði, Stefán og Sóleyju (og Margréti Nótt) í um kvöldið. Henti í ananasfrómas og í súkkulaðibitaköku dauðans, við hjónin höfðum semsagt ákveðið að skipta með okkur verkum í þessu, ég sæi um eftirréttinn en hún um aðalréttinn. Um hálf fimm fór svo lambalærið inn í ofninn og fékk að malla þar til sex þegar gestirnir komu. Skemmst er frá að segja að maturinn var gríðarlegur hittari og rann vel niður og eftirréttirnir svo í kjölfarið. Stefán og Sóley fóru heim fljótlega upp úr níu með þá stuttu og við hin settumst fyrir framan sjónvarpið þar sem ég sofnaði yfir einhverjum leiðinlegum slúðurþætti. Á skalanum einn til tíu gef ég þessum páskasunnudegi níu komma fimm á ánægjuleikaskalanum, vel heppnaður í alla staði...

Það eina 'neikvæða' er þó að við eigum ennþá eftir tvö heil páskaegg sem maður neyðist til að borða fyrr en síðar... ;)