Fríkaður föstudagur
Glampandi sól og blíða, það er páskaveðrið sem er í boði hérna í Kaupmannahöfn, ekki amalegt það. Ekki það að ég sé úti að sleikja sólskinið, osei sei nei, sit bara inni að leika mér í tölvunni. Fór að vísu í ræktina áðan og lyfti og hljóp (er allur að koma til í þessu) og Þórunn situr við lærdóminn í 'norðurálmu' íbúðarinnar. Semsagt, páskadagskráin (sú ráðgerða) er enn í fullu fjöri...
Fór á æfingu eldsnemma í gærmorgun, vildum hafa hana snemma til að slíta ekki í sundur daginn. En að sjálfsögðu þá nýttu menn sér fríið í að gera eitthvað allt annað en að spila fótbolta því við vorum bara sjö sem mættum (again). Að vísu var þetta alveg prýðileg æfing, tókum léttan reit, smá spil og svo skotæfingu í lokin (ekki veitir af). Undir lokin var okkur svo hent út af svæðinu (megum víst ekki vera þar) og verðum því að finna annan völl fyrir næstu æfingu... ;)
Fór svo heim til Jonna að skanna nokkur skjöl sem endaði bara með að ég var þar fram á kvöld. Erla fór að læra og Jonni var bara einn með kútinn þannig að ég ákvað að hanga bara með honum. Horfðum á nokkra Friends þætti og slökuðum vel á í anda páskanna...
Í kvöld er stefnan svo sett á Øresundskollegíið þar sem Stefán og Sóley (og Margrét Nótt) eru búin að bjóða okkur í langan föstudagsmat, verður ábyggilega eitthvað vel útilátið ef ég þekki þau rétt, spurning um að svelta sig fram að því...

