miðvikudagur, apríl 12, 2006

Páskafrí!!!

Jæja, þá er páskafríið formlega byrjað! Sit einmitt og glápi á sjónvarpið (eins og páskadagskráin mín hljóðaði uppá) þar sem verið er að sýna Lethal Weapon 3 á TV3+. Að vísu er þetta auglýsingastöð þannig að maður fær reglulega klósett- og/eða bloggpásur sem ég er einmitt að nýta mér núna...

Við hjónin tókum okkur til í gær og röðuðum öllum geisladiskunum okkar, já, þið heyrðuð rétt, röðuðum geisladiskunum! Við erum greinilega bæði orðin eitthvað geðveik (raðaði einmitt DVD myndunum í stafrófsröð um daginn). En allavega, við þurftum að sjálfsögðu að ákveða eitthvað kerfi á röðunina og úr varð að við skiptum geisladiskunum upp í nokkra flokka sem eru eftirfarandi:
  • Erlend tónlist
  • Íslensk tónlist
  • Klassísk tónlist
  • Kvikmyndatónlist og söngleikir
  • Safndiskar

Að sjálfsögðu er svo diskunum raðað í stafrófsröð innan hvers flokks, annað væri auðvitað bara fáránlegt... ;)

3 Comments:

At 10:36 e.h., Blogger Jonni said...

í hvaða flokk fer skátatónlistin og norska jóla safnplatan?

 
At 12:51 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

!!!! Ég fæ hjartaáfall.. ég var einmitt að horfa á friends þátt um það sama!!! þið eruð að breytast í Monicu og chandler.... hjálp hjálp!!

 
At 8:48 f.h., Blogger Grímur Jónsson said...

Skátatónlistin fór í 'safnplötur' og norska jólaplatan fór í nýjan flokk, ruslatunnuna! :D

 

Skrifa ummæli

<< Home