Sunnudagurinn hans Pálma
Hver er eiginlega þessi Pálmi?!? Pálmi Gunnarsson kannski? Eða Pálmi Gests?? Hef aldrei skilið hvernig þessi Pálmi tengist páskunum á nokkurn hátt. En dagurinn hans er altént fyrsti dagur hinna eiginlegu páska þannig að eitthvað hlýtur hann að hafa lagt til málanna... ;)
Fór á morgun af stað klukkan rúmlega tíu á æfingu í ausandi rigningu, var við það að fara að snúa við og leggjast aftur undir sæng. Heppilega hélt ég mér við fyrirfram ákveðna áætlun því á leiðinni á æfingu hætti að rigna og ekki nóg með það, þegar við byrjuðum að sparka í knöttinn var að birta til og við fengum þetta fína sólskin alla æfinguna. Því miður var mætingin ákaflega slök því við vorum bara sjö sem mættum. En við reyndum að sjálfsögðu að gera gott úr því, eins og góðum dátum sæmir!
Fór svo að horfa á fótbolta seinnipartinn og náði að horfa á tvo heila leiki, Liverpool vs. Bolton og svo stórleik United á móti Arsenal. Skemmst er frá að segja að United vann verðskuldaðan 2-0 sigur á þreyttu Arsenal liði og var sigurinn síst of stór. Alltaf gaman að vinna Arsenal!
Jonni var eitthvað að 'gorta' sig af því að hafa heimsótt heil 3% landa í heiminum (að vísu ekki, var eiginlega að tala um hversu slappur hann væri). Ég get nú næstum þrefaldað þessa tölu hans því skv. þessari síðu hef ég víst heimsótt 8% landa heimsins. Aukinheldur fær maður svona skemmtilegt landakort sem merkir inná þau lönd sem maður hefur kíkt á, ansi skemmtilegt og fræðandi.

3 Comments:
4%....hmmm.....Þetta er allt í áttina hjá mér... Má ekki annarst telja með hálfsdags stopp? ;)
11% ... helv. er það lítið. Hlýt að vera gleyma einhverju!
6%...mar verður að fara að bæta úr þessu
Skrifa ummæli
<< Home