Einn dagur í einn dag í skírdag
Mánudagar eru alltaf frekar leiðinlegir dagar. Ef ekki væri fyrir salsakennsluna og Grey's Anatomy (uppáhalds þættir konunnar) þá mætti jafnvel segja að mánudagar séu glataðir! Og það var einmitt það sem gerðist í gær, páskafrí í dansinum og enginn þáttur af Grey's! Og hvað gerðum við svo til að gera daginn skemmtilegri? Jú, við fórum í ræktina, enough said...
Sigríður mágkona kom hérna við í gær okkur að miklum óvörum. Hún hafði víst tekið sig til og labbað af stað heiman frá sér og ætlaði að labba að sjónum. Eitthvað er hún áttavillt stelpan því hún fann ekki sjóinn fyrr en út á Amager (labbaði semsagt í suður en ekki í austur). Hún hafði það af að vera á rölti í næstum fjóra tíma og kom bara við hjá okkur til að nota klósettið (hvort það var númer eitt eða tvö fylgdi ekki sögunni).
Ég hef aldrei skilið þessa löngun fólks í að labba bara til að labba og það sérstaklega ekki innanbæjar. Ég vil hafa einhvern tilgang í röltinu, klífa fjallið, ganga dagleiðina, labba út í sjoppu. En þessi ganga sér til 'hressingar' og 'skemmtunar' er að mínu mati hvorki hressandi né skemmtileg. Í besta falli er hún þreytandi og í versta falli leiðinleg. Áðan labbaði ég út í strætó og úr strætó í lest og úr lestinni á völlinn þar sem við æfum fótbolta (og svo eins til baka nema öfugt). Tilgangur! Ekki bara rölt röltsins vegna...

2 Comments:
Þetta er svona eins að fara í bíltúr til að fá sér ís í Eden. Fáránlegt ...
Sérstaklega í ljósi þess að hann er bæði dýrari og verri en í ísbúðinni í Álfheimum sem er í þokkabót MIKLU nær ;)
Skrifa ummæli
<< Home