miðvikudagur, október 05, 2005

Með skottið fullt af rusli...

Sá í Morgunblaðinu núna rétt í þessu frétt þess efnis að Lindsay Lohan hafi lent í árekstri. Það er að sjálfsögðu ekki merkileg frétt á nokkurn hátt. Ég þekki Lindsay afskaplega lítið en hef þó (eins og fleiri) á vissan hátt fylgst með ferli hennar í gegnum tíðina. Hún er einmitt enn eitt dæmið um sorglega þróun...

Ég er að sjálfsögðu að tala um þessa áráttu 'fræga og fallega' fólksins í að grenna sig fram úr öllu hófi. Er virkilega til fólk sem hrífst af anorexíu útlitinu?!? Ég stóð í þeirri meiningu að 'hölt heríón hóra' útlitið hafi dáið á síðustu öld (og kemur vonandi aldrei aftur). En því miður þá sér maður sífellt fleiri dæmi þess að algjörlega fine tjellingar eru að grenna sig eins og þær fái borgað fyrir það. Var eitthvað að útlitinu á Lindsay áður? Hún var bara ósköp venjuleg með ávalar línur og svona en núna lítur hún út eins og tannstöngull, engin brjóst, engin rass. Það er samt gott að vita til þess að það eru fleiri sem hafa áhyggjur af henni Lindsay eins og feedlindsay.com ber glögglega merki.

Hún er auðvitað ekki sú eina sem er svona sjúklega grönn orðin því að Nicole Richie, vinkona hennar, er greinilega á sama megrunarkúrnum sem hefur orðið til þess að hliðstæðri síðu hefur verið smellt á netið fyrir hana (var nú aldrei neitt fyrir augað samt). Paris Hilton er líka í sama pakkanum, er sennilega með neikvæða fituprósentu. Ég gæti haldið áfram, t.d. er vinkona mín hún Mischa Barton líka hrifin af anorexíu útlitinu.

Ég spyr enn og aftur, er fólk almennt svona hrifið af þessu?!? Persónulega þá finnst mér þetta hreinlega bara ógeðslegt. Það verður að vera eitthvað kjöt á beinunum, einhverjar línur, eitthvað að grípa í. Þegar fólk segir að Jennifer Lopez sé með stóran rass þá verð ég bara hinn versti. Það er ekkert að því að hafa smá 'junk in the trunk', er bara kvenlegt og flott! Ég vil sjá mjúkar línur a la Kate Winslet eða Monica Bellucci (sem eru báðar alveg fine að mínu mati).

Held að það sé kominn tími til að fara að fóðra þessar gærur og það hið snarasta. Gefum þeim bara nóg af fitu og sykri og þá erum við að dansa (ekki of mikið samt, vil engar feitar gærur heldur)...

mánudagur, október 03, 2005

to be continued...

Hvað er það sem fær fólk (og þá á ég við leikara, leikstjóra, framleiðendur og jafnvel kvikmyndaver) til þess að gera framhaldsmyndir af annars ágætum myndum?!? Ekki svo að skilja að allar framhaldsmyndir séu slæmar, svo sannarlega ekki! Það eru til framhaldsmyndir sem eru jafngóðar ef ekki hreinlega bara betri en forverinn. Má þar nefna Empire Strikes Back (besta myndin í seríunni), Aliens, Lord of the Rings: The Two Towers (er að vísu bara einn þriðji af einni langri mynd en fær að fljóta með) eða Evil Dead II (sem var að vísu bara endurgerð á þeirri fyrstu en er samt algjör snilld). Svo var nú Rocky II (og jafnvel III og IV) ekki svo slæm heldur (allavega þegar ég var minni og gerði ekki allt of miklar kröfur)...

En því miður þá er líka til afskaplega mikið af vondum framhaldsmyndum. Af hverju var t.d. verið að gera Weekend at Bernie's II?!? Eða jafnvel Grease 2?!? Hvað voru menn eiginlega að hugsa þar (eða var það kannski tilfellið, að það var engin hugsun á bak við það)??? Í sumum tilvikum er jafnvel gengið enn lengra en bara að gera eina framhaldsmynd eins og dæmin sýna með Police Academy sem var (síðast þegar ég vissi allavega) með hvorki fleiri né færri en sjö framhaldsmyndir, hver annarri verri!!!

Það sem er verst í þessu öllu saman er að vond framhaldsmynd er ekki bara vond fyrir hana sjálfa. Ó, nei! Hún nefnilega hefur neikvæð áhrif á forverann líka. Besta dæmið (eða kannski bara það sem kom fyrst upp í hugann) er t.d. Matrix. Fyrsta myndin var rosaleg! Frumleg (þó hugmyndin hafi verið stolin) og spennandi og flottar brellur ofan á flottan söguþráð. Svo kom framhald (Matrix Reloaded) sem var svona á mörkunum en slide-aði þó því að manni var lofað svakalegum endi á öllu klabbinu. En hvað gerðist? Út kom Matrix Revolutions og eiginlega eyðilagði allt sem á undan hafði komið. Allir mögulegir 'söguþráðarsnúningar' (plot-twist þ.e.) sem maður hafði séð fyrir sér voru jarðaðir og þessi flotta hugmynd varð að lélegri hasarmynd. Það eina sem hefði getað gert þetta verra væri ef þeir hefðu fengið Arnold eða Sly í þetta í lokin svona til að toppa þetta algjörlega. Fyrir vikið þá legg ég það ekki á mig lengur að horfa á fyrstu myndina, einfaldlega vegna þess að framhaldsmyndirnar hafa algjörlega eyðilagt alla stemmningu sem nokkurn tímann varð til eftir að hún kom fyrst út...

Svo er líka til annað. Það er þegar teknar eru vondar myndir og gert af þeim framhald. Var fólk ekki búið að þjást nóg yfir fyrri myndinni? Af hverju er t.d. verið að gera framhald af Road House og Hollow Man?!? Er eitthvað hægt að bæta við þessar afskaplega slöppu myndir sem réttlætir að gert sé framhald af þeim (sem verða jafnvel enn verri)??? Í þessum tilvikum geta kvikmyndaverin ekki einu sinni skýlt sér á bak við það hversu mikið forverarnir tóku inn í miðasölu...

Hér eftir ætla ég að forðast framhaldsmyndir eins og heitan eldinn, nema auðvitað þær sem uppfylla ákveðin skilyrði:
  • Séu gerðar eftir bók sem er framhald af annarri bók sem gerð var góð mynd eftir og framhaldsbókin er jafn góð eða betri en forverinn (fat chance...)
  • Kevin Smith kemur á einhvern hátt nálægt gerð þeirra
  • Jar-Jar Binks sé ekki með
  • Enginn í leikarahópnum sé Svíi
  • Að forverinn sé það góð mynd og það full af góðum hugmyndum að möguleiki sé á að framhaldið verði gott án þess þó að endurgera bara forverann (ekki líklegt...)
  • Eftirfarandi leikarar séu ekki í henni:
    • Sandra Bullock

Ég ætla því að bíða spenntur eftir The Passion of the Clerks sem verður án efa mikið meistarastykki. Ef ekki, nú þá get ég alveg eins hent áritaða Clerks DVD-inum mínum...