föstudagur, maí 26, 2006

Mánuföstudagur

Í dag er mánudagur. Það getur eiginlega ekki annað verið því að ég var sannfærður um það í allan gærdag að þá væri sunnudagur. Eiginlega synd og skömm þegar maður fær frí svona inni í miðri viku, þá ruglast innbyggða dagatalið alveg gjörsamlega og fyrir vikið er ég í engu föstudagsskapi í dag. Kannski ég nái að snúa þessu til baka á morgun, ef ekki þá þarf ég bara að búa til mitt eigið dagatal og lifa eftir því...

Miðvikudagurinn sem leit út fyrir að verða bara ansi venjulegur og leiðinlegur miðvikudagur átti sko aldeilis eftir að koma mér á óvart. Runi hafði samband við mig og Jonna fljótlega upp úr hádeginu og fór að preppa eitthvað karlakvöld því að: 1. daginn eftir var frí og 2. Jonni hafði þá nýlokið við að skutla Erlu og Guðjóni Inga út á Kastrup þar sem þau flugu til Íslands og verða framyfir helgi. Við stukkum að sjálfsögðu á þessa ráðagerð hans og bókuðum tíma í keilu klukkan 23:00 (já, það þarf víst að panta með góðum fyrirvara hér í Köben)...

Jonni hafði fengið lánaðan bílinn hjá Runa til að geta skutlað barni og buru um morguninn þannig að eftir vinnu keyrðum við heim til Runa þar sem Heiðrún bauð okkur í mat. Björgvin kíkti svo á okkur og við hentum okkur í smá fússball og rugl og svo í keilu á eftir. Náðum góðum tveimur tímum í keilunni þar sem við Jonni sáum um stigaskorið en Runi og Björgvin um drykkjuna! Við vorum svo ekki komnir til baka til Runa fyrr en rúmlega eitt þannig að úr varð að ég fengi bílinn hans lánaðan, skutlaði Jonna og Björgvini svo heim...

Ekki spillti fyrir að í gærmorgun (fimmtudag) var svo leikur hjá FC Ísland og mæting klukkan 9:30. Þar sem ég var á bílnum hans Runa þá var þetta AFSKAPLEGA þægilegt í þetta sinnið. Renndi af stað um kortér í níu, sótti Jonna og við félagarnir vorum svo mættir stundvíslega í leikinn. Leikurinn var nú ekki mikið fyrir augað en þar sem andstæðingarnir, Fælledens BK, eru sennilega með slakasta liðið í deildinni unnum við hann sannfærandi 5-1 og hefði sigurinn vel getað orðið stærri. Eftir leikinn skiluðum við bílnum aftur til Runa og ætluðum svo að fara að gera eitthvað saman (ég og Jonni þ.e.). En þreyta eftir leikinn og lítill svefn um nóttina gerði þær áætlanir að engu og við fórum bara hvor til síns heima og lögðum okkur. Ungur og hraustir drengir, o sei sei já... ;)

miðvikudagur, maí 24, 2006

Mótvindur

Þessa dagana er komið dæmigert vorveður hérna í Kaupmannahöfn. Vorveður er eins og allir þekkja blanda af sól, rigningu og roki og undanfarna daga hefur verið lang minnst af þessu fyrsta. En í dag er þó sól en það merkilega við svona vorveður er að það er aldrei bara eitt af framangreindu í einu, annað hvort tvennt af þrennu eða jafnvel allt í einu. Það er þó ekki rigning þessa stundina (gæti þó komið á hverri stundu) en það hlýtur að þýða að það sé vissulega rok...

Og það er þetta rok sem er svo pirrandi. Ekki af því að ég sé eitthvað viðkvæmur fyrir roki, ætti eiginlega að vera orðinn ónæmur eftir að hafa búið á Íslandi í 25 ár. Nei, málið er að þetta er ferlegt þegar ég er að hjóla í vinnuna! Ekki bara af því að það sé erfiðara (ekkert að því) heldur af því að það virðist vera alveg sama í hvaða átt maður er að hjóla, það er alltaf mótvindur!!! Þetta hlýtur að vera eitthvað sérdanskt fyrirbæri, þar sem vindur getur farið í allar áttir í einu. Kannski er þetta samsæri gegn mér og minni aumu tilraun til að hjóla í vinnuna. E.t.v. eru veðurguðirnir að refsa mér fyrir að reyna að spara mér tíma og fyrirhöfn og sleppa því að troðast í almenningssamgöngunum hér í borg. Kannski þeir séu á samning hjá strætó/lestunum/metró og fái borgað fyrir að stríða þessum vitleysingum sem kjósa heldur að nota hjólið til að komast til og frá vinnu/skóla/whatever. Ég er allavega ekki sáttur og mótmæli allur!

mánudagur, maí 22, 2006

Maður leiksins (næstum því)...

Laugardagur
Dagskrá laugardagsins var frekar einföld, leikur við De Grönne Bude og svo Júróvisjóngleði heima hjá Jonna og Erlu um kvöldið. Byrjum á leiknum...

Hitti piltana á Nörreport á leiðinni upp á Ryparken þar sem leikurinn átti að fara fram. Jón Auðunn þjálfari tilkynnti mér það strax þar að ég myndi spila í miðverðinum í staðinn fyrir Gumma sem var í 'steggjun' og því löglega afsakaður. Hef ekki spilað í miðverði síðan ég man ekki hvenær, allavega ekki byrjað þar en ég stóð mig bara prýðilega, þó ég segi sjálfur frá. Og það er nokkuð ljóst að aðrir voru á sömu skoðun því ég varð annar í vali um mann leiksins á eftir Eika (sem spilaði í hinni miðvarðarstöðunni) og ég kaus mig ekki einu sinni sjálfur! Allavega gaman að fá atkvæði fyrir það að spila vel frekar en að eiga klúður aldarinnar. Leikurinn vannst 3-1 með mörkum frá Begga, Svenna og Jóa.

Eftir leikinn var haldið heim og við hjónin hentum okkur í betri fötin og tókum svo leigubíl til Jonna og Erlu (því það rigndi og við nenntum ekki að fara í strætó/metró) og þar hittum við allt gengið (Jonna, Erlu, Runa, Heiðrúnu og pollana). Erla og Jonni buðu upp á mexíkóskan kvöldverð og eftir prýðilega máltíð var hafist handa við Júróvisjónáhorf. Ákváðum að hafa smá keppni í leiðinni. Hver og einn átti að hlusta á öll lögin (sem gæti að vísu verið túlkað sem mannréttindabrot í sjálfu sér) og eftir það reyna að sjá út hvaða fimm lög myndu skipa fimm efstu sætin og að auki hvaða tvö lög yrðu neðst. Ég átti eiginlega í mestu vandræðum með að ákveða lélegasta lagið því að þetta var hvert öðru verra en að lokum hafðist að velja þessi sjö lög...

Stigagjöfin tók svo við og mikil gleði braust út þegar ljóst var frá upphafi í hvað stefndi. Finnska lagið var by far besta lagið í þessari keppni (ekki mikil samkeppni að vísu) og gaman að það var ekki eitthvað hundleiðinlegt poppdrasl sem vann þetta eina ferðina enn. Þegar að öll stig höfðu verið talin kom í ljós að við Erla vorum næst þessu með fjögur af fimm löndum réttum í efstu sætum og þetta eina sem klikkaði hjá okkur báðum var í topp sjö. Ég náði meira að segja að giska á botnlagið (afberandi slakt lag líka) en klikkaði á 23. sætinu. En í heildina nokkuð sáttur við spádómsgáfuna að þessu sinni...

Sunnudagur
Gerði ekki neitt af viti. Tókst þó að setja í þrjár þvottavélar en að öðru leyti var þetta frekar tíðindalítill dagur eins og sunnudagar eiga að vera. Hauuuuuuuuuu!