föstudagur, febrúar 09, 2007

Skíði og önnur skemmtun

Djöfull er maður orðinn eitthvað slappur við þetta! Það er orðið helvíti slæmt þegar tengdamóðir manns er farinn að kvarta við konuna yfir bloggleysinu og að sjálfsögðu vil ég síst af öllu koma tengdó blessuninni í uppnám. Þannig að hér er allavega eitthvað fyrir hana (sem aðrir geta svo líka reynt að njóta ef þeir vilja)...

Eins og líðum ætti að vera ljóst þá fórum við hjónin til Ítalíu um daginn í skíðaferð. Eitt orð: GEÐVEIKT! Að vísu leit um tíma út fyrir að einhver veikindi ætluðu að koma í veg fyrir gleðina því að daginn fyrir brottför vaknaði ég um miðja nótt og upplifði í kjölfarið það sem Grímur frændi kallar Gullfoss og Geysi (nánari útskýringar eru óþarfar). Ég lá svo fyrir fram eftir degi með hita sem heppilega var farinn daginn eftir og því var okkur ekkert að vanbúnaði að halda af stað í gleðina. Flugum frá Kastrup til Bergamo (sem er fyrir utan Mílanó) og þar tók svo við rútuferð í eina fjóra tíma upp í fjöllinn til Canazei (myndasíða úr ferðinni hér) þangað sem ferðinni var heitið. Við vorum ekki komin þangað fyrr en um miðnætti þannig að það eina sem við gerðum þann daginn var að taka upp úr töskunum og henda okkur í háttinn.

Daginn eftir var svo vaknað eldsnemma, gallinn mundaður, skíðunum hent á bakið og arkað af stað í lyftuna sem var steinsnar frá hótelinu. Í stuttu máli sagt fengum við sex og hálfan dag af frábærri skíðamennsku í einmuna blíðu allan tímann, sólin skein og það var bara einn dag sem var eitthvað rok að ráði. Við skíðuðum bókstaflega um allt svæðið sem telur í allt 1220 km af brekkum og hundruðir lyfta. Gerðum okkur svo glaðan dag á afmælisdaginn minn og fórum út að borða á La Stalla sem var lítill og vinalegur veitingastaður sem við fengum upplýsingar um hjá fararstjórunum. Frábær matur og góð stemmning þar og viðeigandi í tilefni dagsins. Það var svo með miklum trega sem við tókum af okkur skíðin í síðasta sinn (í bili a.m.k.) um hádegið á laugardag og pökkuðum þeim saman fyrir heimferðina. Það er nokkuð ljóst að þetta verður gert aftur og það sem allra fyrst... :D

Já, og af því að ég minntist nú á afmæli þá átti ég semsagt þrítugsafmæli um daginn og er því opinberlega kominn á fertugsaldurinn (ekki hálfsextugur samt eins og Oddur var að rugla með um daginn (sorry kallinn, virkar bara ekki þannig)). Af því tilefni verður boðað til veislu á morgun þar sem elítan (invite only) ætlar að mæta (Oddur fær ekki að koma eftir þessi leiðinlegu ummæli) og gæða sér á allskyns veitingum að hætti hússins. Blóm og gjafir vinsamlega þegnar með þökkum! :D